Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 3135. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Orri Vignir Hlöðversson - formaður
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Hanna Carla Jóhannsdóttir - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir - aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Jóna Vigdís Kristinsdóttir - starfsmaður stjórnsýlusviðs

Ritari

  • Jóna Vigdís Kristinsdóttir

Samkvæmt 35. gr. laga nr. 138/2011 og 32. gr. samþykktar Kópavogsbæjar fer bæjarráð með sömu heimildir og bæjarstjórn hefur ella í sumarleyfi hennar.

Dagskrá fundar

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

01

Húsnæðisáætlun 2023

Lögð fram húsnæðisáætlun 2023 í samræmi við reglugerð um húsnæðisáætlanir

sveitarfélaga nr. 1248/2018. Sveitarfélög skulu gera húsnæðisáætlun til tíu ára í senn

sem er uppfærð árlega og skal staðfest af sveitarstjórn.

Frestað til næsta fundar.

Bókun bæjarráðs:

"Fjármálasviði er falið að leggja fyrir næsta fund umsögn um fyrirliggjandi greiningar og mat Kópavogsbæjar á þeim liðum sem sveitarfélögum eru falin samkvæmt reglugerð um húsnæðisáætlanir sveitarfélaga nr. 1248/2018."

kl. 09:16 tekur Ásdís Kristjánsdóttir sæti á fundinum.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

02

Jafnréttisáætlun Kópavogs 2023-2026

Auður Kolbrá Birgisdóttir, jafnréttisráðgjafi Kópavogsbæjar, kynnir drög að jafnréttis-og mannréttindastefnu Kópavogsbæjar. Óskað eftir umsögn frá bæjarráði.

Bæjarráð þakkar Auði Kolbrá Birgisdóttur fyrir kynningu að drögum að jafnréttis- og mannréttindastefnu Kópavogs. Bæjarráð áætlar að umsögn liggi fyrir síðsumars. Sviðsstjóra stjórnsýslusviðs falið að vinna umsögn.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

03

Gjaldskrá leikskólagjalda

Frá sviðsstjóra menntasviðs, lögð fram gjaldskrá leikskólagjalda sem áætlað er að taki gildi 01.09.2023.

Fundarhlé hófst kl. 11:41, fundi fram haldið kl. 11:56.

Bæjarráð samþykkir með 4 atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur framlagða gjaldskrá leikskólagjalda.

Bókun:

"Ný leikskólagjaldskrá í Kópavogi er í framhaldi af nýsamþykktum tillögum um breytt starfsumhverfi leikskólanna sem fela í sér sex tíma gjaldfrjálsa leikskólavist, eða 30 klukkustundir á viku. Foreldrar fá svigrúm til þess að ráðstafa tímunum innan vikunnar.

Bæjarráð telur mikilvægt að komið verði sérstaklega til móts við útivinnandi foreldra undir tekjuviðmiðun sem eiga ekki kost á því að draga úr vistun barns eða barna sinna á leikskólum en eiga erfitt með að mæta gjaldskrárhækkunum. Horft verði til úrræða fyrir þennan hóp að þremur mánuðum liðnum og við gerð fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár."

Ásdís Kristjánsdóttir

Orri Hlöðversson

Andri Steinn Hilmarsson

Hanna Carla Jóhannsdóttir

Bergljót Kristinsdóttir

Helga Jónsdóttir

Bókun

"Undirritaðar gera athugasemd við að upplýsingar um verulegar gjaldskrárhækkanir hafi ekki verið skýrar í kynningarefni til foreldra eftir samþykkt bæjarstjórnar. Þetta hefur valdið töluverðum ruglingi meðal foreldra."

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir

Theodóra S. Þorsteinsdóttir

Bergljót Kristinsdóttir

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

04

Tillaga um breytingu á verklagi og viðmiðum við gjaldskrárbreytingar

Frá bæjarstjóra, dags. 04.07.2023, lögð fram tillaga um breytingu á verklagi og viðmiðum við gjaldskrárbreytingar.

Bæjarráð samþykktir með 4 atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur, framlagða tillögu um breytingu á verklagi og viðmiðum við gjaldskrárbreytingar.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

05

Starfshópur um starfsumhverfi leikskóla

Lagðar fram viðaukatillögur eitt og tvö, við tillögur starfshóps um skipulag og starfsumhverfi í leikskólum Kópavogs til samþykktar bæjarráðs.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa viðaukatillögunum til umsagnar sviðsstjóra umhverfissviðs og sviðsstjóra menntasviðs.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

06

Menningarmiðja Kópavogs

Erindið lagt fram í bæjarráði þann 22.06.2023. Á þeim fundi óskaði bæjarfulltrúi Sigurbjörg E. Egilsdóttir eftir upplýsingum um hvort farið hafi verið að verklagsreglum við ákvörðun um þjónustu arkitekts. Nú lagt fram minnisblað lögfræðideildar, dags. 03.07.2023.

Lagt fram og rætt.

Bókun:

Undirrituð óskar eftir að fá upplýsingar um öll þjónustuinnkaup síðustu fjögur ár frá þeim ráðgjafa/arkitekt sem hér um ræðir ásamt skýringar við hvert verk."

Theodóra Þorsteinsdóttir

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

07

Dalaþing, Norton ehf. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstrarleyfi

Frá lögfræðideild, dags. 03.07.2023, lögð fram umsögn vegna beiðni um rekstrarleyfi gististaðar - Dalaþing 28.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita neikvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.

Ýmis erindi

08

Umhyggjudagurinn 2023

Frá Umhyggju, félagi langveikra barna, dags. 03.07.2023, lögð fram beiðni um stuðning vegna umhyggjudags sem haldinn verður í ágúst.

Bæjarráð samþykkir samhljóða að verða við erindinu og vísar því til bæjarritara.

kl. 12.24 víkur Sigurbjörg Erla Egilsdóttir af fundi.

Fundargerðir nefnda

09

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 370. fundur frá 23.06.2023

Fundargerð í sjö liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

10

Umhverfis- og samgöngunefnd - 165. fundur frá 20.06.2023

Fundargerð í átta liðum.


10.2 - 23051341 - Hjólabrettaskál í Kópavogsdal

Áframhaldandi umræða um gerð og staðsetningu hjólabrettarskálar í Kópavogi. Málið var síðast á dagskrá umhverfis- og samgöngunefndar 18. október 2022. Ármann Halldórsson deildarstjóri framkvæmdadeildar kynnir.

Umhverfis- og samgöngunefnd horfir jákvætt á staðsetningu hjólabrettaskálarinnar í Kópavogsdal við Smárahvammsvöll og hvetur til að framkvæmdir hefjist eins fljótt og unnt er. Vísað til bæjarráðs til samþykkis.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa afgreiðslu málsins til skipulagsráðs.


Fundargerðir nefnda

11

Hafnarstjórn - 131. fundur frá 30.06.2023

Fundargerð í þremur liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

12

Fundargerð fundar Heilbrigðisnefndar Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness frá 03.07.2023

Fundargerð fundar Heilbrigðisnefndar Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness frá 03.07.2023.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

13

Fundargerð 931. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 22.06.2023

Fundargerð 931. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 22.06.2023.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

14

Fundargerð 412. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 29.03.2023

Fundargerð 412. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 29.03.2023

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

15

Fundargerð 413. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 19.04.2023

Fundargerð 413. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 19.04.2023.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

16

Fundargerð 414. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 21.06.2023

Fundargerð 414. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 21.06.2023.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

17

Fundargerð 42. eigendafundar stjórnar Sorpu bs. frá 19.06.2023

Fundargerð 42. eigendafundar stjórnar Sorpu bs. frá 19.06.2023.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

18

Fundargerð 481. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 06.06.2023

Fundargerð 481. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 06.06.2023.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

19

Fundargerð 482.fundar stjórnar Sorpu bs. frá 16.06.2023

Fundargerð 482.fundar stjórnar Sorpu bs. frá 16.06.2023

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

20

Fundargerð 371. fundar stjórnar Strætó frá 09.06.2023

Fundargerð 371. fundar stjórnar Strætó frá 09.06.2023, lögð fram leiðrétt útgáfa.

Lagt fram.