Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Jafnréttisáætlun Kópavogs 2023-2026

Málsnúmer: 2210956

Ferill máls

01

Velferðar- og mannréttindaráð - 11. fundur

Aðgerðaáætlun jafnréttisáætlunar Kópavogsbæjar lögð fram til kynningar og afgreiðslu.

Drögum að aðgerðaáætlun jafnréttisáætlunar vísað aftur til meðferðar starfsmanna Kópavogsbæjar þar sem skilgreina þarf betur aðgerðirnar og tímasetja þær.

02

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 107. fundur

Vinna við aðgerðaráætlun Kópavogsbæjar í jafnréttismálum.

Vinna við aðgerðaráætlun Kópavogsbæjar í jafnréttismálum.

03

Bæjarstjórn - 1289. fundur

Fara yfir niðurstöður íbúasamráðs.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum jafnréttis- og mannréttindastefnu Kópavogs 2023-2026.

04

Bæjarráð - 3153. fundur

Fara yfir niðurstöður íbúasamráðs.

Bæjarráð samþykkir að vísa Jafnrétti- og mannréttindaáætlun Kópavogs 2023-2026 til afgreiðslu bæjarstjórnar.

05

Bæjarráð - 3153. fundur

Fara yfir niðurstöður íbúasamráðs.

06

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 103. fundur

Fara yfir niðurstöður íbúasamráðs.

Lokadrög jafnréttis- og mannréttindastefnu Kópavogs samþykkt og vísað til bæjarráðs.

07

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 102. fundur

Vinna við gerð jafnréttisáætlunar.

Jafnréttis- og mannréttindastefna Kópavogsbæjar 2023-2026 undirbúin fyrir íbúasamráð.

08

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 101. fundur

Stefnuvinna.

09

Bæjarráð - 3135. fundur

Auður Kolbrá Birgisdóttir, jafnréttisráðgjafi Kópavogsbæjar, kynnir drög að jafnréttis-og mannréttindastefnu Kópavogsbæjar. Óskað eftir umsögn frá bæjarráði.

Bæjarráð þakkar Auði Kolbrá Birgisdóttur fyrir kynningu að drögum að jafnréttis- og mannréttindastefnu Kópavogs. Bæjarráð áætlar að umsögn liggi fyrir síðsumars. Sviðsstjóra stjórnsýslusviðs falið að vinna umsögn.

10

Menntaráð - 115. fundur

Jafnréttis- og mannréttindaráð óskar eftir umsögn menntaráðs um drög að

jafnréttis- og mannréttindastefnu. Máli frestað frá fundi menntaráðs 16. maí.

Auður Kolbrá Birgisdóttir, jafnréttisráðgjafi, kynnti drög að jafnréttisáætlun.

Menntaráð fagnar drögum að nýrri jafnréttisáætlun og leggur til minniháttar breytingar á orðalagi sem fram komu á fundinum.

11

Umhverfis- og samgöngunefnd - 165. fundur

Lögð fram drög að jafnréttis- og mannréttindastefnu Kópavogsbæjar. Jafnréttis- og mannréttindaráð hefur óskað eftir umsögn frá umhverfis- og samgöngunefnd um drög að jafnréttis- og mannréttindastefnu. Auður Kolbrá Birgisdóttir lögmaður af stjórnsýslusviði kynnir.

Lagt fram og kynnt.

12

Íþróttaráð - 133. fundur

Lögð fram drög að jafnréttis- og mannréttindastefnu Kópavogsbæjar. Jafnréttis- og mannréttindaráð hefur óskað eftir umsögn frá íþróttaráði um drög að jafnréttis- og mannréttindastefnu.

Leó Snær Pétursson vék af fundi kl. 17:10

Íþróttaráð gerir engar athugasemdir við framlögð drög að jafnréttis- og mannréttindastefnu Kópavogsbæjar.

13

Lista- og menningarráð - 155. fundur

Umsögn um Jafnréttis- og mannréttindastefnu.

Lista- og menningarráð leggur til að umfjöllun um aðgengi verði víkkuð út þannig að hún nái ekki eingöngu til opinberra stofnana heldur líka til annarrar þjónustu í bæjarfélaginu. Einnig að í umfjöllun um fræðslu um fjölbreytileika verði nefnd dæmi um hvers konar fræðslu, t.d. hinsegin fræðslu. Þá er lagt til að undir liðnum menntun, tómstundir og atvinna verði fjallað um mikilvægi að jöfnu aðgengi að menningarstarfsemi bæjarins.

14

Skipulagsráð - 143. fundur

Lagt fram erindi Auðar Kolbrár Birgisdóttur f.h. jafnréttis- og mannréttindaráðs dags. 4. maí 2023 þar sem óskað er umsagnar skipulagsráðs um drög að jafnréttis- og mannréttindastefnu Kópavogsbæjar dags. í apríl 2023.

Auður Kolbrá gerir grein fyrir erindinu.

Lagt fram og kynnt. Vísað til umsagnar skipulagsdeildar.

15

Bæjarráð - 3131. fundur

Auður Kolbrá Birgisdóttir, jafnréttisráðgjafi Kópavogsbæjar kynnir drög að jafnréttis og mannréttindastefnu Kópavogsbæjar. Óskað eftir umsögn frá bæjarráði.

Bæjarráð frestar erindinu til næsta fundar.

16

Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks - 13. fundur

Frá jafnréttis- og mannréttindaráði er drögum að jafnréttis- og mannréttindastefnu Kópavogs vísað til umsagnar notendaráðs í málefnum fatlaðs fólks.

Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks gefur drögum að jafnréttis- og mannréttindastefnu Kópavogs mjög jákvæða umsögn að teknu tilliti til athugasemda sem fram komu á fundinum.

17

Íþróttaráð - 132. fundur

Á fundinn mætti Auður Kolbrá Birgisdóttir, jafnréttisráðgjafi Kópavogsbæjar og kynnti drög að jafnréttis og mannréttindastefnu Kópavogsbæjar. Drög að stefnunni eru tilbúin og er óskað eftir umsögn frá íþróttaráði.

Íþróttaráð þakkar Auði fyrir góða kynningu og frestar málinu til næsta fundar.

18

Lista- og menningarráð - 154. fundur

Jafnréttis- og mannréttindaráð óskar eftir samráði við nefndir og ráð bæjarins um jafnréttis- og mannréttindastefnu.

Lista- og menningarráð þakkar Auði Kolbrá Birgisdóttur fyrir kynningu að drögum að jafnréttis- og mannréttindastefnu Kópavogs. Ráðið stefnir að því að veita umsögn eftir næsta fund.

Auður yfirgaf fund kl. 9:20.

19

Velferðarráð - 120. fundur

Frá jafnréttis- og mannréttindaráði er drögum að jafnréttis- og mannréttindastefnu Kópavogs vísað til umsagnar velferðarráðs.

Velferðarráð gefur drögum að jafnréttis- og mannréttindastefnu Kópavogs jákvæða umsögn og óskar eftir þátttöku við mótun aðgerða í aðgerðaáætlun til að ná markmiðum stefnunnar.

20

Menntaráð - 114. fundur

Jafnréttis- og mannréttindaráð óskar eftir umsögn menntaráðs um drög að jafnréttis- og mannréttindastefnu.

Máli frestað til næsta fundar.

21

Umhverfis- og samgöngunefnd - 164. fundur

Lögð fram drög af jafnréttis- og mannréttindastefnu Kópavogs og óskað eftir umsögn umhverfis- og samgöngunefndar. Auður Kolbrá Birgisdóttir umsjónaraðili jafnréttis- og mannréttindaráðs kynnir.

Frestað

22

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 99. fundur

Áframhaldandi vinna við jafnréttis- og mannréttindastefnu.

23

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 98. fundur

Áframhaldandi stefnuvinna.

24

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 97. fundur

Áframhaldandi vinna við jafnréttisáætlun.

Fundurinn þakkar Jóhönnu verkefnastjóra velferðarsviðs fyrir góða kynningu og umræður.

25

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 96. fundur

Vinna við jafnréttisáætlun.

Áframhaldandi vinna við gerð stefnu í jafnréttis- og mannréttindamálum.

26

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 95. fundur

Vinna við gerð jafnréttisáætlunar/stefnu í jafnréttismálum.

Sviðsstjóri velferðarsviðs, Sigrún Þórarinsdóttir mætir á fundinn og situr fyrir svörum ráðsins um stöðu jafnréttis- og mannréttindamála á velferðarsviði.

Jafnréttis- og mannréttindaráð þakkar Sigrúnu fyrir komuna og áhugavert samtal um starf Velferðarsviðs Kópavogsbæjar.

27

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 93. fundur

Umræða um áframhaldandi vinnu við áætlun um jafnréttismál.

28

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 92. fundur

Áframhaldandi vinna við stefnu og jafnréttisáætlun.

29

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 91. fundur

Undirbúningsvinna fyrir nýja stefnu jafnréttis- og mannréttindaráðs sem og jafnréttisáætlun 2023-2026.

Formaður kynnti verkefnaskilgreiningu með aðgerðaráætlun fyrir vinnu að nýrri jafnréttisáætlun.