Bæjarstjórn - 1080. fundur
í bæjarstjórnarsal
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Margrét Björnsdóttir - forseti
- Gunnar Ingi Birgisson - aðalfulltrúi
- Aðalsteinn Jónsson - 1. varaforseti
- Rannveig H Ásgeirsdóttir - aðalfulltrúi
- Ómar Stefánsson - aðalfulltrúi
- Pétur Krogh Ólafsson - aðalfulltrúi
- Ólafur Þór Gunnarsson - aðalfulltrúi
- Hjálmar Hjálmarsson - aðalfulltrúi
- Páll Magnússon - bæjarritari
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - varafulltrúi
- Margrét Júlía Rafnsdóttir - varafulltrúi
- Tjörvi Dýrfjörð - varafulltrúi
- Pálmi Þór Másson - bæjarlögmaður
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Forsætisnefnd tók til umræðu breytingartillögur bæjarfulltrúa á tillögu um samþykktir Kópavogsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar, sem lögð var fram til fyrri umræðu bæjarstjórnar á fundi 11. júní sl.$line$Forsætisnefnd vísar með breytingum tillögu að samþykktum Kópavogsbæjar og fundarsköpum bæjarstjórnar til seinni umræðu bæjarstjórnar.
· 1.gr. [ÓÞG] o Í stað 11 standi 15. Bæjarstjórn fellir tillöguna með sex atkvæðum en fimm bæjarfulltrúar greiddu atkvæði með henni. · 1.gr. [MJR] o Í stað 11 standi 13. Bæjarstjórn fellir tillöguna með sex atkvæðum en fimm bæjarfulltrúar greiddu atkvæði með henni. · 5. tl. 5. gr. [Frá bæjarstjóra] o Brott falli "bæjarstjórnar" og í stað komi "bæjarfélagsins". Bæjarstjórn samþykkir tillöguna einróma. · 10. tl. 5. gr. [Frá forsætisnefnd] o Við bætist 10. tl.: "Að staðfesta erindisbréf fyrir nefndir, ráð og stjórnir þar sem kveðið er á um hlutverk þeirra, valdsvið, starfshætti og framsal til fullnaðarákvörðunar og starfshætti þeirra í samræmi við lög, reglugerðir og almennar samþykktir bæjarstjórnar. Bæjarstjórn staðfestir erindisbréf til starfsmanna í þeim tilvikum þar sem þeim er framselt fullnaðarákvörðunarvald." Bæjarstjórn samþykkir tillöguna einróma. · 1. mgr. 7. gr. [Frá bæjarstjóra] o Við bætist "tvo" [varaforseta]. Bæjarstjórn samþykkir tillöguna einróma. · 1. mgr. 10. gr. [Frá bæjarstjóra] o Við bætist: "sem skipuð er forseta bæjarstjórnar og varaforsetum". Bæjarstjórn samþykkir tillöguna einróma. · 2. mgr. 10. gr. [Frá forsætisnefnd] o Við bætist: "fyrir fastan fundartíma nefndarinnar, næstan á undan bæjarstjórnarfundi" Bæjarstjórn samþykkir tillöguna einróma. · 14. gr. [Frá forsætisnefnd] o Nýtt heiti: "Skrifarar og fundarritari" Bæjarstjórn samþykkir tillöguna einróma. · 16. gr. [Frá bæjarstjóra] o Skiptist í tvo kafla;"I. Fundarsköp" og "II. Ritun fundargerða." Bæjarstjórn samþykkir tillöguna einróma. · g-liður 16. gr. [HH] o Út falli setningin "Bæjarstjóri hefur óbundið málfrelsi" Bæjarstjórn fellir tillöguna með sex atkvæðum en fjórir bæjarfulltrúar greiddu atkvæði með tillögunni. Einn bæjarfulltrúi sat hjá við afgreiðsluna. · Nýr II. kafli 16. gr. um ritun fundargerða. [Frá bæjarstjóra] o "Í fundargerð skal getið hvar og hvenær fundur er haldinn og hverjir sitji fundinn. Skrá skal þau mál sem tekin eru fyrir, dagsetningu þeirra, aðila máls og meginefni og hvernig mál er afgreitt. Sé mál ekki afgreitt einróma skal greina í fundargerð hvernig atkvæði hafa skipst. Þegar lagðar eru fram fundargerðir nefnda nægir að skrá í fundargerð bæjarstjórnar um hvaða nefndir er að ræða, dagsetningu fundargerða og fjölda töluliða. o Um ritun fundargerða bæjarstjórnar skal að öðru leyti farið eftir leiðbeiningum um ritun fundargerða sveitarstjórna, sbr. auglýsingu þess efnis nr. 22/2013, eða síðari leiðbeiningum sem settar hafa verið samkvæmt 2. mgr. 19. gr. sveitarstjórnarlaga." Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með tíu atkvæðum og hjásetu eins bæjarfulltrúa. · 18. gr. [Frá bæjarstjóra] o Við bætist: "Varamenn taka sæti í bæjarstjórn í þeirri röð sem þeir eru kosnir þegar aðalmenn þess lista sem þeir eru kosnir af forfallast". Og "að öðru leyti". Bæjarstjórn samþykkir tillöguna einróma. · 2. mgr. 21. gr. [Frá forsætisnefnd] o Að brott falli: "nema með sérstöku leyfi bæjarstjóra". Bæjarstjórn samþykkir tillöguna einróma. · 25. gr. [Frá forsætisnefnd] o Við heiti greinarinnar bætist: "starfsaðstaða" Bæjarstjórn samþykkir tillöguna einróma. · 1. mgr. 25. gr. [PÓ] o Við bætist: sem taki mið af reglum nr. 39/1992 um greiðslu ferðakostnaðar. Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með átta atkvæðum og hjásetu þriggja bæjarfulltrúa. · 2. mgr. 25. gr. [MB og ÓS] o Þar sem stendur "Bæjarfulltrúum skal séð fyrir skrifstofuaðstöðu á bæjarskrifstofum" verði: "Bæjarfulltrúum skal séð fyrir sameiginlegri starfsaðstöðu á bæjarskrifstofum". Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með níu atkvæðum og hjásetu tveggja bæjarfulltrúa. · 2. mgr. 25. gr. [ÓÞG] o Bætist við ný grein sem hljóði svo: "Bæjarfulltrúum skal séð fyrir skrifstofuaðstöðu á bæjarskrifstofum". Bæjarstjórn fellir tillöguna með sex atkvæðum en fimm bæjarfulltrúar greiddu atkvæði með tillögunni. · 1. mgr. 27. gr. [Frá bæjarstjóra] o Brott falli "og varamenn". Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með tíu atkvæðum og hjásetu eins bæjarfulltrúa. · 1. mgr. 28. gr. [Frá forsætisnefnd] o Í stað komi : "skipunartíma þess, sbr. 47. gr. samþykktar þessarar" í stað "upphafi kjörtímabils". Bæjarstjórn samþykkir tillöguna einróma. · 3. mgr. 29. gr. [Frá forsætisnefnd] o Við bætist: "gilda ákvæði 24. gr. samþykktar þessarar eftir því sem við á" í stað "Geti bæjarráðsmaður ekki sótt fund skal hann tilkynna bæjarstjóra um forföll og óska eftir því að varamaður verði boðaður eða tilkynna að hann muni boða sjálfur varamann í sinn stað". Bæjarstjórn samþykkir tillöguna einróma. · Ný 1. mgr. 31. gr. [Frá bæjarstjóra] o "Framboðslista, sem fulltrúa á í bæjarstjórn en ekki í bæjarráði, er heimilt að tilnefna áheyrnarfulltrúa til setu í bæjarráði". Bæjarstjórn samþykkir tillöguna einróma. · 2. mgr. 31. gr. [Frá forsætisnefnd] o Hljóði svo: "Áheyrnarfulltrúi í bæjarráði skal vera aðalmaður í bæjarstjórn, sbr. 3. mgr. 50. gr. sveitarstjórnarlaga. Varaáheyrnarfulltrúi skal vera aðal- eða varamaður í bæjarstjórn." Bæjarstjórn samþykkir tillöguna einróma. · 35. gr. [HH] o Inn komi ný málsgrein svo hljóðandi: "Hlutfall fulltrúa hvers framboðslista í nefndir og ráð á vegum Kópavogsbæjar skal taka mið af fjölda greiddra atkvæða sem hver framboðslisti hlýtur í undangengnum sveitarstjórnarkosningum." Bæjarstjórn fellir tillöguna með sex atkvæðum en einn bæjarfulltrúi greiddi atkvæði með tillögunni. Fjórir bæjarfulltrúar sátu hjá við afgreiðsluna. · 36. gr. [Frá forsætisnefnd] o Heiti greinarinnar verði: "Valdsvið nefnda og framsal bæjarstjórnar til nefnda á valdi til fullnaðarafgreiðslu mála" Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með tíu atkvæðum og hjásetu eins bæjarfulltrúa. · 2. mgr. 36. gr. [Frá forsætisnefnd] o Ný málsgrein hljóði svo: "Bæjarstjórn getur falið kjörnum nefndum sem taldar eru upp í 47. gr. samþykktar þessarar, heimild til að afgreiða á grundvelli erindisbréfs skv. 10. tl. 5. gr., án staðfestingar bæjarstjórnar, mál á verksviði þeirra ef: 1. lög eða eðli máls mæla ekki sérstaklega gegn því, 2. þau varða ekki fjárhag sveitarfélagsins umfram það sem kveðið er á um í fjárhagsáætlun, og 3. þau víkja ekki frá stefnu bæjarstjórnar í veigamiklum málum. Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með tíu atkvæðum og hjásetu eins bæjarfulltrúa. · Ný 37. gr. [Frá bæjarstjóra] o Hljóði svo: "Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna skulu lagðar fyrir bæjarstjórn til kynningar. Þær ályktanir eða tillögur í fundargerðum sem þarfnast staðfestingar bæjarráðs eða bæjarstjórnar eru lagðar fyrir sem sérstök mál og eru afgreidd með formlegum hætti. Ályktun nefndar sem hefur fjárútlát í för með sér skal lögð fyrir bæjarráð." o Númeraröð annarra greina breytist til samræmis við nýja gr. nr. 37. Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með átta atkvæðum en einn bæjarfulltrúi greiddi atkvæði gegn tillögunni. Tveir bæjarfulltrúar sátu hjá við afgreiðsluna. · 1. mgr. 38. gr. [HH] o Málsgreinin breytist þannig að meginreglan verði opnir fundir og verður svohljóðandi: Fundir nefnda skulu almennt vera opnir. Nefnd er heimilt að halda fund fyrir luktum dyrum komi fram ósk um slíkt svo fremi sem lög eða eðli máls hamli því ekki. Fundi félagsmálaráðs og barnaverndar skal að jafnaði halda fyrir luktum dyrum. Bæjarstjórn fellir tillöguna með sjö atkvæðum en einn bæjarfulltrúi greiddi atkvæði með tillögunni. Þrír bæjarfulltrúar sátu hjá við afgreiðsluna. · 38. gr. [Frá bæjarstjóra] o Við bætist: "Ósk um opinn fund skal beina til formanns nefndar". Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með tíu atkvæðum en einn bæjarfulltrúi greiddi atkvæði gegn tillögunni. · Ný 2. mgr. 44. gr. [HH] (gengur lengra en tillaga ÓÞG) o Njóti framboðslisti sem á kjörinn fulltrúa í bæjarstjórn ekki kjörfylgis í hlutfallskosningu til fastanefndar, er þeim framboðslista heimilt að tilnefna áheyrnarfulltrúa í nefndina. Áheyrnarfulltrúa er skylt að þiggja þóknun fyrir nefndarstörf með sama hætti og kjörnum nefndarfulltrúum. Áheyrnarfulltrúi hefur málfrelsi og tillögurétt á nefndarfundum en ekki atkvæðisrétt. Tillaga dregin til baka af HH. · 44.gr. [Frá forsætisnefnd] o Greininni er skipt upp í þrjár málsgreinar og inn kemur ný 2. mgr. og verður svohljóðandi: Bæjarstjórn er skylt að ákveða kjörnum fulltrúum í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum bæjarfélagsins hæfilega þóknun fyrir þau störf, samkvæmt mati bæjarstjórnar, í samræmi við reglur sem hún setur. Áheyrnarfulltrúum þeirra framboða eða stjórnmálasamtaka sem fulltrúa eiga í bæjarstjórn skal einnig greidd þóknun fyrir setu í allt að 5 nefndum og ráðum samtals, hverjum lista, enda hafi fulltrúi/ar þess lista ekki náð kjöri í viðkomandi nefnd í kosningum skv.47. gr. Bæjarstjórn er með sama hætti heimilt að ákveða að greiða öðrum áheyrnarfulltrúum þóknun fyrir störf þeirra í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum bæjarfélagsins. Ákvæði til bráðabrigða 2. málsgrein 43.gr. taki gildi eftir sveitarstjórnarkosninga 2014. Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með tíu atkvæðum og hjásetu eins bæjarfulltrúa. · 1. tl. A-liðar 47. gr. [HH] o Fjöldi bæjarráðsfulltrúa verður 7. Breytingin taki gildi frá og með næstu sveitarstjórnarkosningum. Tillaga ógild skv. ákvörðun forseta, þar sem hún fer gegn lögum. · 16. tl. B-liðar 47. gr. [Frá forsætisnefnd] o Á brott falli: "Ráðið fer jafnframt með vinabæjasamskipti". Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með níu atkvæðum en tveir bæjarfulltrúar greiddu atkvæði gegn tillögunni. · 16. tl. B-liðar 47. gr. [HH] o Við bætist: "Lista- og menningarráð fer með stjórn Lista- og menningarsjóðs Kópavogsbæjar og ber ábyrgð á úthlutun sjóðsins. 0,5% af 6,7% útsvarsstofni mynda tekjustofn sjóðsins." Bæjarstjórn fellir tillöguna með fimm atkvæðum en fjórir bæjarfulltrúar greiddu atkvæði með tillögunni. Tveir bæjarfulltrúar sátu hjá við afgreiðsluna. · 52. gr. [Frá forsætisnefnd] o Ný grein sem hljóði svo: "Bæjarstjórn er heimilt að fela starfsmönnum fullnaðarafgreiðslu mála á sama hátt og með sömu skilyrðum og nefnd eru í 36. gr. samþykktar þessarar. Heimild þessi skal sett í erindisbréf viðkomandi starfsmanna og í erindisbréf viðkomandi nefndar sem málið heyrir undir og staðfest er af bæjarstjórn. Bæjarstjórn skal setja skýrar reglur um afgreiðslu starfsmanna en viðkomandi fagnefndir hafa eftirlit með þeim og kalla reglulega eftir skýringum og upplýsingum um ákvarðanir sem teknar eru á grundvelli þeirra. Starfsmanni er alltaf heimilt að vísa ákvörðun skv. 1. mgr. til viðkomandi fagnefndar til fullnaðarafgreiðslu." Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með átta atkvæðum og hjásetu þriggja bæjarfulltrúa. · 62. gr. [HH] o Lagt til að 20% þurfi til að knýja fram íbúakosningu. Bæjarstjórn fellir tillöguna með sjö atkvæðum en þrír bæjarfulltrúar greiddu atkvæði með tillögunni. Einn bæjarfulltrúi sat hjá við afgreiðsluna. · 62. gr. [Frá forsætisnefnd] o Lagt til að 25% þurfi til að knýja fram íbúakosningu. Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með tíu atkvæðum og hjásetu eins bæjarfulltrúa. · Ný 63. gr. [Frá forsætisnefnd] o Ný grein sem hljóði svo: "Kópavogsbær skal leitast við að hafa sem víðtækast samráð við íbúa bæjarins og miðla upplýsingum um starfsemi bæjarins með rafrænum hætti í gegnum vefinn kopavogur.is. Þar geti íbúar komið á framfæri ábendingum sínum." Bæjarstjórn samþykkir tillöguna einróma. · Ný 64. gr. [HH] o Hverfisstjórnir. Á fjögurra ára fresti í upphafi hvers kjörtímabils skal kosið í sérstakar hverfisstjórnir. Bæjarstjórn skal ákveða hverfaskiptingu bæjarins og skal leitast við að hafa sem víðtækast samráð við hverfisstjórnir um þau málefni sem varða nærumhverfi hvers hverfis fyrir sig. Kosið skal í hverfisstjórnir með sama hætti og aðrar nefndir og ráð bæjarins. Hverfisstjórn skal funda að jafnaði einu sinni í mánuði og halda fundargerðir með sama hætti og aðrar nefndir og ráð bæjarins. Ef 30% íbúa eins hverfis óska eftir íbúakosningu vegna máls sem snertir þeirra hverfi sérstaklega skal orðið við þeirri beiðni innan tiltekins hverfis. Yfir 50% hlutfall greiddra atkvæða telst bindandi niðurstaða. Bæjarstjórn fellir tillöguna með fjórum atkvæðum en tveir bæjarfulltrúar greiddu atkvæði með tillögunni. Fimm bæjarfulltrúar sátu hjá við afgreiðsluna. · Ný 64. gr. [RHÁ] o Hverfisstjórnir. Hverfaráð skulu starfa í Kópavogi og skal bæjarstjórn setja þeim erindisbréf. Kjósa skal í ráðið í september ár hvert með skipunartíma til tveggja ára og skal helmingur ráðsmanna víkja á hverju ári. Fjöldi ráðsmanna verði 8 og að auki sitji í ráðinu bæjarfulltrúi eða varabæjarfulltrúi með málfrelsi og tillögurétt, sem leiðir starf hvers ráðs og er tengiliður þess við bæjarstjórn. Hverfaráð skal funda fyrir opnum dyrum og halda fundargerðir með sama hætti og aðrar nefndir og ráð bæjarins. Bæjarstjórn fellir tillöguna með fjórum atkvæðum en tveir bæjarfulltrúar greiddu atkvæði með tillögunni. Fimm bæjarfulltrúar sátu hjá við afgreiðsluna. Forseti bar undir fundinn í heild sinni tillögu um Samþykkt um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar svo breytta. Bæjarstjórn samþykkti tillöguna einróma.
Frá stjórn Kópavogsfélagsins, dags. 14. júní, tillaga um starfsemi í byggingunum á Kópavogstúni og umhverfi bygginganna.
Lagðar fram fundargerðir bæjarráðs frá 13. og 20. júní, afgreiðslur byggingarfulltrúa frá 11. júní, fundargerðir atvinnu- og þróunarráðs frá 12. júní, félagsmálaráðs frá 18. júní, forsætisnefndar frá 21. júní, forvarna- og frístundanefndar frá 13. júní og framkvæmdaráðs frá 12. júní.
2691. fundur
Tillaga sem lögð var fram í bæjarráði 13. júní sl:$line$"Undirrituð leggja til að samningi við Smartbíla um ferðaþjónustu í Kópavogi verði sagt upp á grundvelli 6 mánaða uppsagnarákvæðis.$line$Guðríður Arnardóttir, Ólafur Þór Gunnarsson, Hjálmar Hjálmarsson"$line$Tillaga um að vísa afgreiðslu tillögunnar til bæjarstjórnar var samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum. Tveir bæjarfulltrúar sátu hjá.$line$Einnig lögð fram greinargerð bæjarlögmanns og greinargerð lögfræðings velferðarsviðs.
2692. fundur
Á fundi bæjarráðs 20. júní lagði Guðríður Arnardóttir fram eftirfarandi tillögu:$line$"Undirrituð þakkar svarið og óskar eftir skriflegri greinargerð bæjarlögmanns á hugsanlegum sektarákvæðum vegna lausagöngu katta ef reglum um kattahald er ekki framfylgt. Leggur jafnframt til að lausaganga katta verði bönnuð á varptíma fugla.$line$Guðríður Arnardóttir"$line$Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Forseti bar undir fundinn tillögu að sumarfundum bæjarstjórnar, sem samþykkt var í bæjarráði 20. júní, sbr. lið 13:$line$Lagt er til að fundartímar bæjarráðs í júlí og ágúst 2013 verði sem hér segir:$line$Þann 11. og 25. júlí og 8. og 22. ágúst.$line$$line$Lagt er til að fundir bæjarstjórnar falli niður í júlí og ágúst.$line$$line$Samkvæmt lögum nr. 138/2011 með síðari breytingum fer bæjarráð með vald bæjarstjórnar í sumarleyfi hennar, en sumarleyfi bæjarstjórnar hefst að loknum yfirstandandi fundi.$line$
84. fundur
14. fundur
1353. fundur
11. fundur
17. fundur
52. fundur
Á fundi framkvæmdaráðs 12. júní 2013 var til umfjöllunar umsókn um lóðina Vesturvör 50, frá Steinbock þjónustunni ehf. kt. 460472-0249. Lóðin hefur verið auglýst á heimasíðu Kópavogsbæjar. Framkvæmdaráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að umsækjanda verði úthlutað lóðinni Vesturvör 50.
Á fundi framkvæmdaráðs 12. júní 2013 var til umfjöllunar umsókn um lóðina Hafraþing 1-3, frá HSH byggingameisturum ehf. kt. 681096-2059. Umsækjandi uppfyllir skilyrði úthlutunarreglna. Lóðin hefur verið auglýst á heimasíðu Kópavogsbæjar. Framkvæmdaráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að umsækjanda verði úthlutað lóðinni Hafraþing 1-3.
Kosningar skv. 57. gr. bæjarmálasamþykktar til eins árs, fimm fulltrúar.
Kosningu hlutu: Af A-lista: Rannveig Ásgeirsdóttir Ármann Kr. Ólafsson Ómar Stefánsson Af B-lista: Guðríður Arnardóttir Ólafur Þór Gunnarsson Áheyrnarfulltrúi: Hjálmar Hjálmarsson
Kosning forseta, 1. og 2. varaforseta, tveggja skrifara og varamanna þeirra.
Tilnefningar í stjórn Markaðsstofu.
Aðalmaður: Pétur Ólafsson Varamaður: Hildur M. Jónsdóttir Tillagan samþykkt með tíu atkvæðum og hjásetu eins fulltrúa. Bókun Hjálmars Hjálmarssonar: "Ég tek ekki þátt í þessari afgreiðslu." Tillaga með vísan til 16. gr. bæjarmálasamþykktar: "Bæjarstjórn samþykkir að fela forseta og skrifurum frágang fundargerðar og undirritun hið fyrsta að loknum fundi." Tillagan samþykkt einróma.