Beint í efni
Til baka í fundargerðir
Breytingartillaga á bæjarmálasamþykkt
Málsnúmer: 1306180
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2850. fundur
Frá Innanríkisráðuneyti, dags. 7. desember, lagt fram erindi um staðfestingu ráðherra á breytingu á bæjarmálasamþykkt Kópavogs. Samþykktin hefur verið send til birtingar í B-deild Stjórnartíðinda og er áætlaður birtingardagur þann 21. desember nk.
Lagt fram.
02
Bæjarstjórn - 1146. fundur
Frá bæjarritara, lögð fram breytingartillaga á bæjarmálasamþykkt Kópavogs vegna skipulagsbreytinga að því er varðar nefndir og ráð bæjarins og framsal bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu mála. Bæjarstjórn vísaði breytingartillögu að bæjarmálasamþykkt Kópavogs til seinni umræðu með 11 atkvæðum.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum breytingartillögu á bæjarmálasamþykkt Kópavogs vegna skipulagsbreytinga að því er varðar nefndir og ráð bæjarins og framsal bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu mála.
03
Bæjarstjórn - 1144. fundur
Frá bæjarritara, lögð fram breytingartillaga á bæjarmálasamþykkt Kópavogs vegna skipulagsbreytinga að því er varðar nefndir og ráð bæjarins og framsal bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu mála.
Bæjarstjórn vísar breytingartillögu að bæjarmálasamþykkt Kópavogsbæjar til seinni umræðu með 11 atkvæðum.
04
Bæjarstjórn - 1142. fundur
Frá bæjarritara, lögð fram breytingartillaga að bæjarmálasamþykkt Kópavogs. Lögð er til breyting á 47. gr. samþykktarinnar um skipan nefnda og 33. gr. og 49. gr. um umboð til bæjarstjóra um gerð kjörskrár. Bæjarstjórn samþykkti með 11 atkvæðum að vísa breytingartillögu að bæjarmálasamþykkt Kópavogsbæjar til seinni umræðu.
Bæjarstjórn samþykkir framlagða breytingartillögu að bæjarmálasamþykkt Kópavogsbæjar með 11 atkvæðum.
05
Bæjarstjórn - 1141. fundur
Frá bæjarritara, lögð fram breytingartillaga að bæjarmálasamþykkt Kópavogs. Lögð er til breyting á 47. gr. samþykktarinnar um skipan nefnda og 33. gr. og 49. gr. um umboð til bæjarstjóra um gerð kjörskrár.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum að vísa breytingartillögu að bæjarmálasamþykkt Kópavogsbæjar til seinni umræðu.
06
Bæjarráð - 2743. fundur
Frá innanríkisráðuneytinu, dags. 8. september. staðfest breyting á bæjarmálasamþykkt með gildistöku þann 8. september 2014.
Lagt fram.
07
Bæjarstjórn - 1100. fundur
Lögð fram breytingartillaga á samþykktum um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköpum bæjarstjórnar, sem vísað var til síðari umræðu bæjarstjórnar á fundi bæjarstjórnar þann 24. júní sl. Skv. 4. tl. 9. gr. erindisbréfs forsætisnefndar ber nefndinni að fjalla um tillögur á breytingum á samþykktum bæjarins.$line$Forsætisnefnd fjallaði um málið á fundi sínum þann 1. júlí og vísaði afgreiðslu til næsta fundar. Tekið fyrir að nýju á fundi forsætisnefndar þann 10. júlí og vísað til bæjarstjórnar til seinni umræðu.
Fundarhlé kl. 17.11. Fundi fram haldið kl. 17.19$line$Fundarhlé kl. 17.20. Fundi fram haldið kl. 17.36$line$Fundarhlé kl. 17.42. Fundi fram haldið kl. 17.54$line$$line$Lagt er til að 47. gr. samþykktanna breytist þannig:$line$Töluliður 2 í kafla B falli út.$line$Samþykkt með 7 atkv. og 4 sitja hjá$line$$line$Töluliður 8 í kafla B falli út.$line$Samþykkt með 8 atkv. og 3 sitja hjá$line$$line$Töluliður 21 í kafla B falli út.$line$Samþykkt með 8 atkv. og 3 sitja hjá$line$$line$Töluliður 19 í kafla B verði og sjö til vara.$line$Samþykkt með 11 atkv. $line$$line$Töluliður 20 í kafla B verði og sjö til vara.$line$Samþykkt með 11 atkv. $line$$line$Töluliðir B-kafla færist upp sem þessu nemur.$line$$line$Tillagan er borin upp í heild sinni og samþykkt með 7 atkv. Fjórir sitja hjá.$line$$line$$line$Bókun Ásu Richardsdóttur, Péturs Hrafns Sigurðssonar, Birkis Jóns Jónssonar og Ólafs Þórs Gunnarssonar:$line$"Að leggja niður atvinnu- og þróunaráð er vanhugsuð aðgerð þar sem ekki er búið að finna verkefnum þess stað í stjórnkerfi bæjarins. Markaðstofa Kópavogs er vanbúin til að taka við þeim verkefnum og ljóst að bæjarstjórn Kópavogs verður að hafi forystu um að gefa stofunni aukið afl og skýra og skilgreina stöðu hennar og hlutverk. $line$Jafnframt er brýnt að endurskoða skipurit bæjarins.$line$Ofangreint er ekki síst mikilvægt í ljósi þess að framundan er framkvæmd Sóknaráætlunar höfuðborgarsvæðisins þar sem hlutdeild Kópavogs getur orðið veruleg - sé vel á málum okkar haldið - í samvinnu við önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu."$line$$line$Bókun Ármanns Kr. Ólafssonar, Margrétar Friðriksdóttur, Karenar E. Halldórsdóttur, Hjördísar Ýrar Johnson, Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Sverris Óskarssonar og Guðmundar Geirdal:$line$"Markmið breytinganna á bæjarmálasamþyktinni er að auka skilvirkni og hagkvæmni. Markaðsstofa Kópavogs er vel til þess fallin að taka við verkefnum atvinnu og þróunarráðs enda skörun verkefna mikil og tenging við atvinnulífið verður enn betri."
08
Forsætisnefnd - 27. fundur
Lögð fram breytingartillaga á samþykktum um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköpum bæjarstjórnar, sem vísað var til síðari umræðu bæjarstjórnar á fundi bæjarstjórnar þann 24. júní sl. Skv. 4. tl. 9. gr. erindisbréfs forsætisnefndar ber nefndinni að fjalla um tillögur á breytingum á samþykktum bæjarins.$line$Forsætisnefnd fjallaði um málið á fundi sínum þann 1. júlí og vísaði afgreiðslu til næsta fundar. Tekið fyrir að nýju.
Lagt fram minnisblað bæjarlögmanns um stjórn Héraðsskjalasafns og greinargerð bæjarstjóra um starfsemi framkvæmdaráðs.$line$Forsætisnefnd vísar breytingartillögum til seinni umræðu bæjarstjórnar.
09
Bæjarráð - 2737. fundur
Lögð fram að nýju breytingartillaga á bæjarmálasamþykkt, samkvæmt bókun í bæjarráði þann 24. júní.
Hlé var gert á fundi kl. 8:41. Fundi var fram haldið kl. 9:02.$line$$line$Fulltrúar minnihlutans lögðu fram eftirfarandi bókun:$line$"Undirritaðir telja þörf á að endurskoða skipurit bæjarins. Vinna er þegar hafin í forsætisnefnd vegna þess og því skýtur skökku við að nú eigi að gera breytingar í fljótræði án samráðs við fulltrúa minnihlutans. Þessi vinnubrögð eru ekki í anda þess sem meirihlutinn hefur boðað um samvinnu og samstarf. $line$Pétur Hrafn Sigurðsson, Birkir Jón Jónsson, Ólafur Þór Gunnarsson"$line$$line$Áshildur Bragadóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Kópavogs, sat fundinn undir þessum lið að hluta.$line$$line$Bæjarráð vísar afgreiðslu tillagnanna til bæjarstjórnar.
10
Forsætisnefnd - 26. fundur
Lögð fram breytingartillaga á samþykktum um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköpum bæjarstjórnar, sem vísað var til síðari umræðu bæjarstjórnar á fundi bæjarstjórnar þann 24. júní sl. Skv. 4. tl. 9. gr. erindisbréfs forsætisnefndar ber nefndinni að fjalla um tillögur á breytingum á samþykktum bæjarins.
Forsætisnefnd vísar málinu til næsta fundar.
11
Bæjarráð - 2736. fundur
Fundarhlé kl. 9:45. Fundi fram haldið kl. 10.01 Fulltrúar minnihlutans óska eftir því að breytingar á bæjarmálasamþykkt verði sérstakur dagskrárliður á næsta fundi bæjarráðs, þann 10. júlí n.k.
12
Bæjarstjórn - 1099. fundur
Lögð fram eftirfarandi breytingartillaga frá Ármanni Kr. Ólafssyni við núgildandi bæjarmálasamþykkt. Breytingar á samþykktum skal ræða á tveimur fundum bæjarstjórnar.$line$Lagt er til að 47. gr. samþykktanna breytist þannig:$line$Töluliður 2 í kafla B falli út.$line$Töluliður 8 í kafla B falli út.$line$Töluliður 21 í kafla B falli út.$line$Töluliður 19 í kafla B verði og sjö til vara.$line$Töluliður 20 í kafla B verði og sjö til vara.$line$Töluliðir B-kafla færist upp sem þessu nemur.$line$Greinargerð$line$Lagt er til að atvinnu- og þróunarráð verði lagt niður. Stjórn Markaðsstofu Kópavogs verði eftir atvikum falin verkefni ráðsins.$line$Þá er lagt til að framkvæmdaráð verði lagt niður og bæjarráði falið verkefni ráðsins í nýju erindisbréfi sem lagt verður fram.$line$Einnig er lagt til að stjórn Héraðsskjalasafns verði lögð niður og lista- og menningarráð taki við verkefnum stjórnarinnar. Erindisbréf ráðsins verði breytt til samræmis við það.$line$Í 19. og 20. tölulið B kafla 47. gr. hefur misfarist að færa fjölda varamanna til samræmis við fjölda aðalmanna.$line$
Birkir Jón Jónsson lagði til að tillögunni yrði frestað og vísað til bæjarráðs til úrvinnslu.Hlé var gert á fundi kl. 21:03. Fundi var fram haldið kl. 21:14.Tillaga um frestun var felld með sjö atkvæðum en fjórir greiddu atkvæði með henni.Hlé var gert á fundi kl. 21:53. Fundi var fram haldið kl. 21:54.Bæjarstjórn samþykkir með sjö atkvæðum gegn fjórum að vísa breytingartillögunum til seinni umræðu bæjarstjórnar.
13
Bæjarráð - 2697. fundur
Frá innanríkisráðuneytinu, dags. 14. ágúst, varðandi staðfestingu ráðuneytisins á nýrri bæjarmálasamþykkt Kópavogsbæjar.
Lagt fram.
14
Bæjarráð - 2695. fundur
Lögð fram að nýju ný bæjarmálasamþykkt, sem samþykkt var á fundi bæjarstjórnar þann 25. júní sl., með breytingum skv. ábendingum innanríkisráðuneytisins. Lögð fram samantekt bæjarlögmanns um breytingarnar.
<o:p></o:p>
Bæjarráð samþykkir tillöguna einróma.
<o:p></o:p>
33. gr.
Við bætist ný 4. mgr. svohljóðandi:
<o:p></o:p>
Bæjarráð samþykkir tillöguna einróma.
<o:p></o:p>
43. gr.
Við bætist nýr 1. ml. svo hljóðandi:
"Framboðslisti sem fulltrúa á í bæjarstjórn en ekki í fastanefnd má tilnefna áheyrnarfulltrúa til setu í fastanefnd með málfrelsi og tillögurétt."
<o:p></o:p>
Bæjarráð samþykkir tillöguna einróma.
<o:p></o:p>
<o:p></o:p>
Bæjarráð samþykkir tillöguna einróma.
<o:p></o:p>
Ný 65. gr. með heitið "Gildistaka"
Svo hljóðandi:
<o:p></o:p>
Bæjarráð samþykkir tillöguna einróma.
</o:p>
15
Bæjarstjórn - 1080. fundur
Forsætisnefnd tók til umræðu breytingartillögur bæjarfulltrúa á tillögu um samþykktir Kópavogsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar, sem lögð var fram til fyrri umræðu bæjarstjórnar á fundi 11. júní sl.$line$Forsætisnefnd vísar með breytingum tillögu að samþykktum Kópavogsbæjar og fundarsköpum bæjarstjórnar til seinni umræðu bæjarstjórnar.
Hlé var gert á fundi kl. 16:59. Fundi fram haldið kl. 17:08.
Hlé var gert á fundi kl. 18:21. Fundi fram haldið kl. 18:37.
Matarhlé var gert kl. 18:40. Fundi fram haldið kl. 19:15.
Hlé var gert á fundi kl. 19:25. Fundi fram haldið kl. 19:29.
Hlé var gert á fundi kl. 19:32. Fundi fram haldið kl. 19:33.
Hlé var gert á fundi kl. 19:39. Fundi fram haldið kl. 20:01.
Hlé var gert á fundi kl. 20:12. Fundi fram haldið kl. 20:15.
Hlé var gert á fundi kl. 20:25. Fundi fram haldið kl. 20:36.
Við seinni umræðu eru lagðar fram eftirfarandi breytingartillögur við Samþykkt um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar:
· 1.gr. [ÓÞG]
o Í stað 11 standi 15.
Bæjarstjórn fellir tillöguna með sex atkvæðum en fimm bæjarfulltrúar greiddu atkvæði með henni.
· 1.gr. [MJR]
o Í stað 11 standi 13.
Bæjarstjórn fellir tillöguna með sex atkvæðum en fimm bæjarfulltrúar greiddu atkvæði með henni.
· 5. tl. 5. gr. [Frá bæjarstjóra]
o Brott falli "bæjarstjórnar" og í stað komi "bæjarfélagsins".
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna einróma.
· 10. tl. 5. gr. [Frá forsætisnefnd]
o Við bætist 10. tl.:
"Að staðfesta erindisbréf fyrir nefndir, ráð og stjórnir þar sem kveðið er á um hlutverk þeirra, valdsvið, starfshætti og framsal til fullnaðarákvörðunar og starfshætti þeirra í samræmi við lög, reglugerðir og almennar samþykktir bæjarstjórnar. Bæjarstjórn staðfestir erindisbréf til starfsmanna í þeim tilvikum þar sem þeim er framselt fullnaðarákvörðunarvald."
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna einróma.
· 1. mgr. 7. gr. [Frá bæjarstjóra]
o Við bætist "tvo" [varaforseta].
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna einróma.
· 1. mgr. 10. gr. [Frá bæjarstjóra]
o Við bætist: "sem skipuð er forseta bæjarstjórnar og varaforsetum".
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna einróma.
· 2. mgr. 10. gr. [Frá forsætisnefnd]
o Við bætist: "fyrir fastan fundartíma nefndarinnar, næstan á undan bæjarstjórnarfundi"
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna einróma.
· 14. gr. [Frá forsætisnefnd]
o Nýtt heiti: "Skrifarar og fundarritari"
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna einróma.
· 16. gr. [Frá bæjarstjóra]
o Skiptist í tvo kafla;"I. Fundarsköp" og "II. Ritun fundargerða."
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna einróma.
· g-liður 16. gr. [HH]
o Út falli setningin "Bæjarstjóri hefur óbundið málfrelsi"
Bæjarstjórn fellir tillöguna með sex atkvæðum en fjórir bæjarfulltrúar greiddu atkvæði með tillögunni. Einn bæjarfulltrúi sat hjá við afgreiðsluna.
· Nýr II. kafli 16. gr. um ritun fundargerða. [Frá bæjarstjóra]
o "Í fundargerð skal getið hvar og hvenær fundur er haldinn og hverjir sitji fundinn. Skrá skal þau mál sem tekin eru fyrir, dagsetningu þeirra, aðila máls og meginefni og hvernig mál er afgreitt. Sé mál ekki afgreitt einróma skal greina í fundargerð hvernig atkvæði hafa skipst. Þegar lagðar eru fram fundargerðir nefnda nægir að skrá í fundargerð bæjarstjórnar um hvaða nefndir er að ræða, dagsetningu fundargerða og fjölda töluliða.
o Um ritun fundargerða bæjarstjórnar skal að öðru leyti farið eftir leiðbeiningum um ritun fundargerða sveitarstjórna, sbr. auglýsingu þess efnis nr. 22/2013, eða síðari leiðbeiningum sem settar hafa verið samkvæmt 2. mgr. 19. gr. sveitarstjórnarlaga."
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með tíu atkvæðum og hjásetu eins bæjarfulltrúa.
· 18. gr. [Frá bæjarstjóra]
o Við bætist: "Varamenn taka sæti í bæjarstjórn í þeirri röð sem þeir eru kosnir þegar aðalmenn þess lista sem þeir eru kosnir af forfallast". Og "að öðru leyti".
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna einróma.
· 2. mgr. 21. gr. [Frá forsætisnefnd]
o Að brott falli: "nema með sérstöku leyfi bæjarstjóra".
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna einróma.
· 25. gr. [Frá forsætisnefnd]
o Við heiti greinarinnar bætist: "starfsaðstaða"
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna einróma.
· 1. mgr. 25. gr. [PÓ]
o Við bætist: sem taki mið af reglum nr. 39/1992 um greiðslu ferðakostnaðar.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með átta atkvæðum og hjásetu þriggja bæjarfulltrúa.
· 2. mgr. 25. gr. [MB og ÓS]
o Þar sem stendur "Bæjarfulltrúum skal séð fyrir skrifstofuaðstöðu á bæjarskrifstofum" verði: "Bæjarfulltrúum skal séð fyrir sameiginlegri starfsaðstöðu á bæjarskrifstofum".
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með níu atkvæðum og hjásetu tveggja bæjarfulltrúa.
· 2. mgr. 25. gr. [ÓÞG]
o Bætist við ný grein sem hljóði svo: "Bæjarfulltrúum skal séð fyrir skrifstofuaðstöðu á bæjarskrifstofum".
Bæjarstjórn fellir tillöguna með sex atkvæðum en fimm bæjarfulltrúar greiddu atkvæði með tillögunni.
· 1. mgr. 27. gr. [Frá bæjarstjóra]
o Brott falli "og varamenn".
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með tíu atkvæðum og hjásetu eins bæjarfulltrúa.
· 1. mgr. 28. gr. [Frá forsætisnefnd]
o Í stað komi : "skipunartíma þess, sbr. 47. gr. samþykktar þessarar" í stað "upphafi kjörtímabils".
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna einróma.
· 3. mgr. 29. gr. [Frá forsætisnefnd]
o Við bætist: "gilda ákvæði 24. gr. samþykktar þessarar eftir því sem við á" í stað "Geti bæjarráðsmaður ekki sótt fund skal hann tilkynna bæjarstjóra um forföll og óska eftir því að varamaður verði boðaður eða tilkynna að hann muni boða sjálfur varamann í sinn stað".
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna einróma.
· Ný 1. mgr. 31. gr. [Frá bæjarstjóra]
o "Framboðslista, sem fulltrúa á í bæjarstjórn en ekki í bæjarráði, er heimilt að tilnefna áheyrnarfulltrúa til setu í bæjarráði".
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna einróma.
· 2. mgr. 31. gr. [Frá forsætisnefnd]
o Hljóði svo: "Áheyrnarfulltrúi í bæjarráði skal vera aðalmaður í bæjarstjórn, sbr. 3. mgr. 50. gr. sveitarstjórnarlaga. Varaáheyrnarfulltrúi skal vera aðal- eða varamaður í bæjarstjórn."
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna einróma.
· 35. gr. [HH]
o Inn komi ný málsgrein svo hljóðandi:
"Hlutfall fulltrúa hvers framboðslista í nefndir og ráð á vegum Kópavogsbæjar skal taka mið af fjölda greiddra atkvæða sem hver framboðslisti hlýtur í undangengnum sveitarstjórnarkosningum."
Bæjarstjórn fellir tillöguna með sex atkvæðum en einn bæjarfulltrúi greiddi atkvæði með tillögunni. Fjórir bæjarfulltrúar sátu hjá við afgreiðsluna.
· 36. gr. [Frá forsætisnefnd]
o Heiti greinarinnar verði: "Valdsvið nefnda og framsal bæjarstjórnar til nefnda á valdi til fullnaðarafgreiðslu mála"
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með tíu atkvæðum og hjásetu eins bæjarfulltrúa.
· 2. mgr. 36. gr. [Frá forsætisnefnd]
o Ný málsgrein hljóði svo: "Bæjarstjórn getur falið kjörnum nefndum sem taldar eru upp í 47. gr. samþykktar þessarar, heimild til að afgreiða á grundvelli erindisbréfs skv. 10. tl. 5. gr., án staðfestingar bæjarstjórnar, mál á verksviði þeirra ef:
1. lög eða eðli máls mæla ekki sérstaklega gegn því,
2. þau varða ekki fjárhag sveitarfélagsins umfram það sem kveðið er á um í fjárhagsáætlun, og
3. þau víkja ekki frá stefnu bæjarstjórnar í veigamiklum málum.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með tíu atkvæðum og hjásetu eins bæjarfulltrúa.
· Ný 37. gr. [Frá bæjarstjóra]
o Hljóði svo: "Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna skulu lagðar fyrir bæjarstjórn til kynningar.
Þær ályktanir eða tillögur í fundargerðum sem þarfnast staðfestingar bæjarráðs eða bæjarstjórnar eru lagðar fyrir sem sérstök mál og eru afgreidd með formlegum hætti.
Ályktun nefndar sem hefur fjárútlát í för með sér skal lögð fyrir bæjarráð."
o Númeraröð annarra greina breytist til samræmis við nýja gr. nr. 37.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með átta atkvæðum en einn bæjarfulltrúi greiddi atkvæði gegn tillögunni. Tveir bæjarfulltrúar sátu hjá við afgreiðsluna.
· 1. mgr. 38. gr. [HH]
o Málsgreinin breytist þannig að meginreglan verði opnir fundir og verður svohljóðandi:
Fundir nefnda skulu almennt vera opnir. Nefnd er heimilt að halda fund fyrir luktum dyrum komi fram ósk um slíkt svo fremi sem lög eða eðli máls hamli því ekki. Fundi félagsmálaráðs og barnaverndar skal að jafnaði halda fyrir luktum dyrum.
Bæjarstjórn fellir tillöguna með sjö atkvæðum en einn bæjarfulltrúi greiddi atkvæði með tillögunni. Þrír bæjarfulltrúar sátu hjá við afgreiðsluna.
· 38. gr. [Frá bæjarstjóra]
o Við bætist: "Ósk um opinn fund skal beina til formanns nefndar".
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með tíu atkvæðum en einn bæjarfulltrúi greiddi atkvæði gegn tillögunni.
· Ný 2. mgr. 44. gr. [HH] (gengur lengra en tillaga ÓÞG)
o Njóti framboðslisti sem á kjörinn fulltrúa í bæjarstjórn ekki kjörfylgis í hlutfallskosningu til fastanefndar, er þeim framboðslista heimilt að tilnefna áheyrnarfulltrúa í nefndina. Áheyrnarfulltrúa er skylt að þiggja þóknun fyrir nefndarstörf með sama hætti og kjörnum nefndarfulltrúum. Áheyrnarfulltrúi hefur málfrelsi og tillögurétt á nefndarfundum en ekki atkvæðisrétt.
Tillaga dregin til baka af HH.
· 44.gr. [Frá forsætisnefnd]
o Greininni er skipt upp í þrjár málsgreinar og inn kemur ný 2. mgr. og verður svohljóðandi:
Bæjarstjórn er skylt að ákveða kjörnum fulltrúum í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum bæjarfélagsins hæfilega þóknun fyrir þau störf, samkvæmt mati bæjarstjórnar, í samræmi við reglur sem hún setur.
Áheyrnarfulltrúum þeirra framboða eða stjórnmálasamtaka sem fulltrúa eiga í bæjarstjórn skal einnig greidd þóknun fyrir setu í allt að 5 nefndum og ráðum samtals, hverjum lista, enda hafi fulltrúi/ar þess lista ekki náð kjöri í viðkomandi nefnd í kosningum skv.47. gr.
Bæjarstjórn er með sama hætti heimilt að ákveða að greiða öðrum áheyrnarfulltrúum þóknun fyrir störf þeirra í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum bæjarfélagsins.
Ákvæði til bráðabrigða 2. málsgrein 43.gr. taki gildi eftir sveitarstjórnarkosninga 2014.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með tíu atkvæðum og hjásetu eins bæjarfulltrúa.
· 1. tl. A-liðar 47. gr. [HH]
o Fjöldi bæjarráðsfulltrúa verður 7. Breytingin taki gildi frá og með næstu sveitarstjórnarkosningum.
Tillaga ógild skv. ákvörðun forseta, þar sem hún fer gegn lögum.
· 16. tl. B-liðar 47. gr. [Frá forsætisnefnd]
o Á brott falli: "Ráðið fer jafnframt með vinabæjasamskipti".
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með níu atkvæðum en tveir bæjarfulltrúar greiddu atkvæði gegn tillögunni.
· 16. tl. B-liðar 47. gr. [HH]
o Við bætist: "Lista- og menningarráð fer með stjórn Lista- og menningarsjóðs Kópavogsbæjar og ber ábyrgð á úthlutun sjóðsins. 0,5% af 6,7% útsvarsstofni mynda tekjustofn sjóðsins."
Bæjarstjórn fellir tillöguna með fimm atkvæðum en fjórir bæjarfulltrúar greiddu atkvæði með tillögunni. Tveir bæjarfulltrúar sátu hjá við afgreiðsluna.
· 52. gr. [Frá forsætisnefnd]
o Ný grein sem hljóði svo:
"Bæjarstjórn er heimilt að fela starfsmönnum fullnaðarafgreiðslu mála á sama hátt og með sömu skilyrðum og nefnd eru í 36. gr. samþykktar þessarar. Heimild þessi skal sett í erindisbréf viðkomandi starfsmanna og í erindisbréf viðkomandi nefndar sem málið heyrir undir og staðfest er af bæjarstjórn.
Bæjarstjórn skal setja skýrar reglur um afgreiðslu starfsmanna en viðkomandi fagnefndir hafa eftirlit með þeim og kalla reglulega eftir skýringum og upplýsingum um ákvarðanir sem teknar eru á grundvelli þeirra.
Starfsmanni er alltaf heimilt að vísa ákvörðun skv. 1. mgr. til viðkomandi fagnefndar til fullnaðarafgreiðslu."
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með átta atkvæðum og hjásetu þriggja bæjarfulltrúa.
· 62. gr. [HH]
o Lagt til að 20% þurfi til að knýja fram íbúakosningu.
Bæjarstjórn fellir tillöguna með sjö atkvæðum en þrír bæjarfulltrúar greiddu atkvæði með tillögunni. Einn bæjarfulltrúi sat hjá við afgreiðsluna.
· 62. gr. [Frá forsætisnefnd]
o Lagt til að 25% þurfi til að knýja fram íbúakosningu.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með tíu atkvæðum og hjásetu eins bæjarfulltrúa.
· Ný 63. gr. [Frá forsætisnefnd]
o Ný grein sem hljóði svo:
"Kópavogsbær skal leitast við að hafa sem víðtækast samráð við íbúa bæjarins og miðla upplýsingum um starfsemi bæjarins með rafrænum hætti í gegnum vefinn kopavogur.is. Þar geti íbúar komið á framfæri ábendingum sínum."
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna einróma.
· Ný 64. gr. [HH]
o Hverfisstjórnir.
Á fjögurra ára fresti í upphafi hvers kjörtímabils skal kosið í sérstakar hverfisstjórnir.
Bæjarstjórn skal ákveða hverfaskiptingu bæjarins og skal leitast við að hafa sem víðtækast samráð við hverfisstjórnir um þau málefni sem varða nærumhverfi hvers hverfis fyrir sig. Kosið skal í hverfisstjórnir með sama hætti og aðrar nefndir og ráð bæjarins.
Hverfisstjórn skal funda að jafnaði einu sinni í mánuði og halda fundargerðir með sama hætti og aðrar nefndir og ráð bæjarins.
Ef 30% íbúa eins hverfis óska eftir íbúakosningu vegna máls sem snertir þeirra hverfi sérstaklega skal orðið við þeirri beiðni innan tiltekins hverfis. Yfir 50% hlutfall greiddra atkvæða telst bindandi niðurstaða.
Bæjarstjórn fellir tillöguna með fjórum atkvæðum en tveir bæjarfulltrúar greiddu atkvæði með tillögunni. Fimm bæjarfulltrúar sátu hjá við afgreiðsluna.
· 64. gr. [RHÁ]
o Hverfisstjórnir.
Hverfaráð skulu starfa í Kópavogi og skal bæjarstjórn setja þeim erindisbréf.
Kjósa skal í ráðið í september ár hvert með skipunartíma til tveggja ára og skal helmingur ráðsmanna víkja á hverju ári. Fjöldi ráðsmanna verði 8 og að auki sitji í ráðinu bæjarfulltrúi eða varabæjarfulltrúi með málfrelsi og tillögurétt, sem leiðir starf hvers ráðs og er tengiliður þess við bæjarstjórn. Hverfaráð skal funda fyrir opnum dyrum og halda fundargerðir með sama hætti og aðrar nefndir og ráð bæjarins.
Bæjarstjórn fellir tillöguna með fjórum atkvæðum en tveir bæjarfulltrúar greiddu atkvæði með tillögunni. Fimm bæjarfulltrúar sátu hjá við afgreiðsluna.
Forseti bar undir fundinn í heild sinni tillögu um Samþykkt um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar svo breytta.
Bæjarstjórn samþykkti tillöguna einróma.
16
Forsætisnefnd - 11. fundur
Forsætisnefnd tók til umræðu breytingartillögur bæjarfulltrúa á tillögu um samþykktir Kópavogsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar, sem lögð voru fram til fyrri umræðu bæjarstjórnar á fundi 11. júní sl.Forsætisnefnd vísar með breytingum tillögu að samþykktum Kópavogsbæjar og fundarsköpum bæjarstjórnar til seinni umræðu bæjarstjórnar.
17
Bæjarstjórn - 1079. fundur
Lögð fram til umræðu tillaga að nýrri samþykkt um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköpum bæjarstjórnar.
Hlé var gert á fundi kl. 16:03. Fundi var fram haldið kl. 16:04.
Bæjarstjórn vísar tillögunni til seinni umræðu.
18
Forsætisnefnd - 10. fundur
Forsætisnefnd vísar tillögu að samþykktum um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköpum bæjarstjórnar til afgreiðslu bæjarstjórnar.