Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarstjórn - 1291. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Ásdís Kristjánsdóttir - aðalmaður
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
  • Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
  • Elísabet Berglind Sveinsdóttir - aðalmaður
  • Orri Vignir Hlöðversson - aðalmaður
  • Sigrún Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir - aðalmaður
  • Kolbeinn Reginsson - aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir - aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

01

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 382. fundur frá 08.12.2023

Fundargerð í átta liðum.

Bæjarstjórn staðfestir með 11 atkvæðum afgreiðslur byggingarfulltrúa.

02

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 383. fundur frá 21.12.2023

Fundargerð í sex liðum.

Bæjarstjórn staðfestir með 11 atkvæðum afgreiðslur byggingarfulltrúa.

03

Bæjarráð - 3155. fundur frá 14.12.2023

Fundargerð í 16 liðum.

Lagt fram.

04

Bæjarráð - 3156. fundur frá 21.12.2023

Fundargerð í 30 liðum.

Lagt fram.


4.17 - 23031177 - Viðaukar við fjárhagsáætlun 2023

Frá sviðsstjóra fjármálasviðs, lagður fram viðauki nr. 2 við fjárhagsáætlun 2023. Viðaukinn er vegna beiðni Strætó bs. um aukaframlag vegna greiðslu skaðabóta og vaxta vegna niðurstöðu Landssréttar í máli 344/2022, málsnúmer 2312853.

Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum framlagðan viðauka við fjárhagsáætlun 2023 vegna beiðni Strætó bs. um aukaframlag vegna greiðslu skaðabóta og vaxta vegna dómsmáls.



4.18 - 2312853 - Aukaframlag vegna greiðslu skaðabóta og vaxta vegna niðurstöðu Landsréttar

Frá Strætó, dags. 13.12.2023, lögð fram tillaga um að fá aukaframlag vegna greiðslu skaðabóta og vaxta skv. niðurstöðu Landsréttar í máli 344/2022. Óskað er eftir að umrædd tillaga fái flýtimeðferð.

Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum aukaframlag vegna greiðslu skaðabóta og vaxta vegna niðurstöðu Landsréttar í máli nr. 344/2022.



4.19 - 23121125 - Gjaldskrá Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. 2024 til samþykktar

Frá Slökkvilið höfuðborgarsvæðis bs., dags. 18.12.2023, lögð fram gjaldskrá 2024 fyrir slökkviliðið. Óskað er eftir samþykki bæjarráðs Kópavosbæjar á gjaldskránni.

Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum gjaldskrá Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. fyrir árið 2024.


05

Bæjarráð - 3157. fundur frá 04.01.2024

Fundargerð í 15 liðum.


5.10 - 23121195 - Tillögur starfshóps um húsnæðismál Slökkviliðs höfuborgarsvæðisins bs.

Frá SHS, dags. 18.12.2023, lagðar fram tillögur starfshóps um húsnæðismál Slökkviliðs höfuborgarsvæðisins bs. Tillögurnar hafa verið samþykktar af stjórn SGS og er vísað til umfjöllunar í aðildarsveitarfélgunum. Ekki er gert ráð fyrir að tillögurnar hafi áhrif á fjárhagsáætlanir sveitarfélagana til næstu ára. Fjármálastjórum sveitarfélaganna verði falið að stilla upp tillögu að fjármögnun.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn vísar erindinu til bæjarráðs til frekari efnismeðferðar.



5.2 - 2002676 - Stefna fjármálasviðs

Lögð fram drög að stefnu fjármálasviðs til samþykktar bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð frestaði málinu 30.11.2023 og 07.12.2023.

Bæjarráð vísar drögum að stefnu fjármálasviðs til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir stefnu fjármálasviðs með 7 atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Sigurbjargar E. Egilsdóttur, Helgu Jónsdóttur og Kolbeins Reginssonar.



5.3 - 23111907 - Mannauðsstefna Kópavogsbæjar

Lögð fram drög að mannauðsstefnu til samþykktar bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð frestaði málinu 30.11.2023 og 07.12.2023.

Bæjarráð vísar drögum að mannauðsstefnu Kópavogsbæjar til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir mannauðsstefnu Kópavogsbæjar með 7 atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Sigurbjargar E. Egilsdóttur, Helgu Jónsdóttur og Kolbeins Reginssonar.



5.9 - 2310520 - Fjárhagsáætlun heilbrigðiseftirlitsins og gjaldskrá fyrir árið 2024

Frá Heilbrigðiseftirliti Garðabæjar, Hafnarfjarðar Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness, lögð fram til samþykktar fjárhagsáætlun 2024 og gjaldskrár fyrir árið 2024.

Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir framlagða gjaldskrá heilbrigðiseftirlitsins fyrir árið 2024 með 10 atkvæðum gegn atkvæði Theódóru S. Þorsteinsdóttur.


06

Forsætisnefnd - 220. fundur frá 04.01.2024

Fundargerð í einum lið.

Lagt fram.

07

Leikskólanefnd - 159. fundur frá 12.12.2023

Fundargerð í sjö liðum.

Lagt fram.

08

Skipulagsráð - 155. fundur frá 18.12.2023

Fundargerð í 14 liðum.

Lagt fram.


8.14 - 2312250 - Vatnsendahvarf. Götuheiti.

Lögð fram tillaga umhverfissviðs dags. 14. desember 2023 að götuheitum fyrir tólf nýjar húsagötur í nýju íbúðahverfi í Vatnsendahvarfi. Eftirfarandi götuheiti eru lögð til: Hallahvarf, Háahvarf, Heiðarhvarf, Hlíðarhvarf, Hæðarhvarf, Roðahvarf, Skólahvarf, Skírnishvarf, Skyggnishvarf, Skýjahvarf, Sólarhvarf og Stöðvarhvarf. Aðkoma að hverfinu er eftir núverandi Kambavegi og þar sem um er að ræða áframhald af veginum í gegnum hverfið er gert ráð fyrir að nafn hans haldist óbreytt.

Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu að götuheitum í Vatnsendahvarfi. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.



8.5 - 23071265 - Auðbrekka 10. Kynning á byggingarleyfisumsókn

Lagt fram að nýju erindi byggingarfulltrúa dags. 21. júlí 2023 þar sem byggingarleyfisumsókn Jakobs Líndal arkitekts dags. 27. júní 2023 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 10 við Auðbrekku er vísað til skipulagsráðs. Í breytingunni felst að 2. og 3. hæð núverandi atvinnuhúsnæðis á lóðinni verði innréttaðar sem gistiheimili. Aðkoma að gistiheimilinu verður frá Hamrabrekku. Núverandi innaksturshurð verður skipt út fyrir glugga og inngangshurð og lokað verður fyrir núverandi glugga og hurð til hliðar við innganginn. Samtals eru 26 gistiherbergi á tveimur hæðum með að hámarki 40 rúmum. Sameiginleg baðherbergi með salernum og sturtum eru á hvorri hæð. Á fundi skipulagsráðs 6. nóvember 2023 var erindið lagt fram ásamt uppdráttum í mkv. 1:100 og 1:500 dags. 27. júní 2023, uppf. 3. nóvember 2023 og umsögn skipulagsdeildar dags. 3. nóvember 2023. Afgreiðslu var frestað.
Þá er lögð fram uppfærð umsögn skipulagsdeildar dags. 14. desember 2023.

Skipulagsráð hafnar framlagðri umsókn með tilvísun í umsögn skipulagsdeildar dags. 14. desember 2023. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum og hafnar erindinu.



8.6 - 2205056 - Vatnsendablettur 4. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram umsókn lóðarhafa lóðarinnar nr. 4 við Vatnsendablett dags. 22. apríl 2022 um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst breyting á lóðarmörkum, breytingu og stækkun á byggingarreit og tilfærslu á innkeyrslu. Byggingarreitur á lóð nr. 4A yrði færður um 4 m til norðurs, lengdur um 6 m til norðurs og 4 m til vesturs. Stækkaður úr 20x15 m í 24x21 m. Einnig er lagt til að færa innkeyrslu á lóðinni til austurs nær Elliðahvammsvegi og breyta lögun lóðar svo að sameiginleg innkeyrsla sé utan minni lóðar. Lóðarmörkum 4A er breytt á uppdrætti en stærð lóðarinnar 1500 m² helst óbreytt. Hámarksbyggingarmagn 275m² og hámarkshæð 7.5 metrar haldast óbreyttir. Aðrir skilmálar eru óbreyttir.
Uppdrættir í mkv. 1:2000 og 1:500 dags. 30. nóvember 2023.

Skipulagsráð samþykkir framlagða umsókn um breytingu á deiliskipulagi með tilvísun í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.



8.7 - 2311491 - Holtagerði 26. Umsókn um fjölgun bílastæða á lóð.

Lögð fram umsókn lóðarhafa lóðarinnar nr. 26 við Holtagerði dags. 6. nóvember 2023 um að fjölga innkeyrslum og bílastæðum á lóðinni. Samkvæmt útgefnu mæliblaði dags. 6. apríl 2016 er gert ráð fyrir innkeyrslu og tveimur bílastæðum á suðausturhluta lóðarinnar.

Skipulagsráð hafnar framlagðri umsókn. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs og hafnar erindinu með 10 atkvæðum og hjásetu Helgu Jónsdóttur.



8.9 - 23011661 - Álfhólsvegur 17A. Kynning á byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 13. janúar 2023 þar sem umsókn Höllu H. Hamar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 17A við Álfhólsveg um byggingarleyfi er vísað til skipulagsráðs. Í breytingu felst að byggt verði 16,8 m² smáhýsi á lóðinni, hugsað sem vinnurými. Byggingarmagn eykst úr 199,8 m² í 216,6 m². Nýtingarhlutfall eykst úr 0,23 í 0,25.
Skýringaruppdrættir í mkv. 1:100 og 1:500 dags. 28. desember 2022.
Á fundi skipulagsráðs þann 6. febrúar 2023 var samþykkt að grenndarkynna tillöguna. Kynningartíma lauk 2. maí 2023. Á fundi skipulagsráðs þann 15. maí 2023 var erindið lagt fram að nýju ásamt athugasemdum. Afgreiðslu var frestað og vísað til umsagnar skipulagsdeildar. Á fundi skipulagsráðs þann 16. október 2023 var erindið lagt fram ásamt umsögn skipulagsdeildar dags. 17. maí 2023, uppfærð 14. júní og 11. október 2023, afgreiðslu var frestað.
Lagt fram að nýju.

Skipulagsráð samþykkir framlagða umsókn. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 6 atkvæðum og hjásetu Bergljótar Kristinsdóttur, Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Sigurbjargar E. Egilsdóttur, Helgu Jónsdóttur og Kolbeins Reginssonar.


09

Velferðarráð - 128. fundur frá 11.12.2023

Fundargerð í níu liðum.

Lagt fram.

10

Öldungaráð - 23. fundur frá 16.11.2023

Fundargerð í fimm liðum.

Lagt fram.

11

Fundargerð 122. fundar stjórnar Svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins frá 08.12.2023

Fundargerð 122. fundar stjórnar Svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins frá 08.12.2023.

Lagt fram.

12

Fundargerð verkefnahóps um uppbyggingu á skíðasvæðunum frá 30.11.2023

Fundargerð verkefnahóps um uppbyggingu á skíðasvæðunum frá 30.11.2023.

Lagt fram.

13

Fundargerð 569. fundar stjórnar SSH frá 04.12.2023

Fundargerð 569. fundar stjórnar SSH frá 04.12.2023.

Lagt fram.

14

Fundargerð 570. fundar stjórnar SSH frá 18.12.2023

Fundargerð 570. fundar stjórnar SSH frá 18.12.2023.

Lagt fram.

15

Fundargerð 939. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 05.12.2023

Fundargerð 939. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 05.12.2023.

Lagt fram.

16

Fundargerð 940. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 15.12.2023

Fundargerð 940. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 15.12.2023.

Lagt fram.

17

Fundargerð 418. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 29.11.2023

Fundargerð 418. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 29.11.2023.

Lagt fram.

18

Fundargerð 419. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 13.12.2023

Fundargerð 419. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 13.12.2023.

Lagt fram.

19

Fundargerð 486. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 26.09.2023

Fundargerð 486. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 26.09.2023.

Lagt fram.

20

Fundargerð 487. fundar stjórnar Sorpu bs. 03.10.2023

Fundargerð 487. fundar stjórnar Sorpu bs. 03.10.2023.

Lagt fram.

21

Fundargerð 488. fundar stjórnar Sorpu bs. 07.11.2023

Fundargerð 488. fundar stjórnar Sorpu bs. 07.11.2023.

Lagt fram.

22

Fundargerð 489. fundar stjórnar Sorpu bs. 05.12.2023

Fundargerð 489. fundar stjórnar Sorpu bs. 05.12.2023.

Lagt fram.

23

Fundargerð 490. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 20.12.2023

Fundargerð 490. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 20.12.2023.

Lagt fram.

24

Fundargerð 381. fundar stjórnar Strætó frá 11.12.2023

Fundargerð 381. fundar stjórnar Strætó frá 11.12.2023.

Lagt fram.

25

Kosningar í umhverfis- og samgöngunefnd 2022-2026

Svava Halldóra Friðgeirsdóttir kemur inn sem aðalmaður í stað Gunnars Sæs Ragnarssonar.