Kópavogur 2030 - áfram í sókn!
Málsnúmer: 2606506
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1341. fundur
Frá bæjarstjóra, kynntur málefnasamningur um meirihlutasamstarf í Kópavogi 2026-2030.
Lagt fram.
Fundarhlé hófst kl. 19:36, fundi fram haldið kl. 20:17
Bókun bæjarfulltrúa Miðflokks:
"Miðflokkurinn fagnar þeim fjölda mála sem ratað hafa af málefnaskrá Miðflokksins inn í málefnasamning meirihlutans, þó lítið sé um mælanleg markmið.
Áhrif spjaldtölvuvæðingarinnar eru augljós og er ekki þörf á rannsóknum heldur aðgerðum, hið sama á við um skóla án aðgreiningar og samræmd próf.
Miðflokkurinn fagnar því að heimgreiðslur nái til 12 mánaða barna en saknar þess að upphæðin sé ekki hækkuð ásamt niðurgreiðslum til dagforeldra. Hægt væri að líta til Hafnarfjarðarbæjar sem mun hækka þessa upphæð í 230.000 kr. á mánuði.
Miðflokkurinn mun þrýsta á efndir meirihlutans á loforðum nr. 22 og 29 um bílastæði og fjölskyldubílinn. Breyta þarf aðalskipulagi bæjarins til að uppfylla þessi loforð meirihlutans og vill Miðflokkurinn vita hvenær sú umræða sé áætluð.
Við munum standa vörð um Borgarholtsbrautina, berjast fyrir afturkalli á óhóflegum þéttingaráformum við Silfur- og Sunnusmára sem og öðrum óhóflegum þéttingaráformum, þrýsta á uppfærslu á innanbæjarleið Strætó og kalla eftir endurskoðun áforma um Borgarlínu og þéttingarstefnu bæjarins.
Að lokum bendum við bæjarstjórn á mál sem við teljum brýnt að fara í strax: Endurbætur í Guðmundarlundi með framræsingu svæðisins og betri tengingu við rafmagns- og vatnsleiðslur. Miðflokkurinn mun leggja fram tillögu þess efnis á næsta fundi."
Einar Jóhannes Guðnason
Bókun:
"Meirihlutinn fagnar yfirlýstum vilja um samstarf í þeim málefnum sem ekki ríkir ágreiningur um."
Ásdís Kristjánsdóttir
Andri S. Hilmarsson
Elísabet B. Sveinsdóttir
Orri V. Hlöðversson
Guðmundur J. Jónsson
Hildur Einarsdóttir
Karen Rúnarsdóttir
Bókun bæjarfulltrúa Samfylkingar:
"Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar lýsa áhyggjum af þeim útgjöldum sem lofað er í málefnasamningi Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar. Flest markmið samningsins eru útgjaldaaukandi og mörg um töluverðar fjárhæðir. Svigrúm í rekstri Kópavogsbæjar er takmarkað, enda hafa fjárfestingar hingað til treyst um of á einskiptistekjur af lóðasölu. Slíkt er ekki sjálfbært og veltir vandanum fram í tímann. Þá stendur lausafé bæjarins ekki undir skammtíma skuldum hans, sem leiðir til þess að bærinn þarf sífellt að ýta skammtímalánum á undan sér. Það er ekki trúverðugt að lofa meiriháttar útgjöldum á sama tíma og lækka á skatta og greiða niður skuldir. Af skorti á svörum oddvita meirihlutans að dæma hafa þessi útgjöld hvorki verið kostnaðarmetin né liggja fyrir áform um fjármögnun þeirra.
Samfylkingin saknar einnig áherslu úr fyrri málefnasamningi meirihlutans um uppbyggingu óhagnaðardrifins leiguhúsnæðis, en þörfin í bænum er mikil. Meirihlutinn vísar til séreignastefnunnar og þess að flestir vilji búa í eigin húsnæði, en lítur fram hjá muninum á vilja og getu. Stór hluti vinnandi fólks hefur ekki nægar tekjur til að kaupa húsnæði. Meirihlutinn skilar auðu og hefur ákveðið að gera ekkert fyrir þann hóp venjulegra Kópavogsbúa sem stritar á núverandi húsnæðismarkaði."
Jónas Már Torfason
Eydís Inga Valsdóttir
Bókun:
"Meirihlutinn hafnar þeirri mynd sem er dregin upp í bókun bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar.
Árin 2024 og 2025 eru bestu rekstrarár Kópavogs í 18 ár. Rekstrarniðurstaða 2025 var jákvæð um 4,6 milljarða króna og þegar leiðrétt er fyrir sölu lóðaréttinda var rekstur samstæðunnar að skila 4,8 milljörðum króna. Heildarskuldir og skuldbindingar hafa jafnframt lækkað að raunvirði og skuldahlutfall fer lækkandi þrátt fyrir miklar og nauðsynlegar fjárfestingar í leik- og grunnskólum og öðrum innviðum. Allt tal um ósjálfbæran rekstur sem knúinn er áfram af einskiptistekjum af lóðasölu eða vandanum ýtt á undan sér stenst því enga skoðun.
Málefnasamningur meirihlutans er engu að síður metnaðarfullur. Það er eðli málefnasamnings að setja fram stefnu og áherslur; einstök verkefni eru síðan kostnaðarmetin og fjármögnuð í gegnum fjárhagsáætlunargerð, þar sem minnihlutanum gefst fullt færi á aðkomu og aðhaldi.
Komi til þess að Kópavogsbær stofni til eigin hitaveitu er ljóst að stofnkostnaðurinn verði umtalsverður, en þar koma vitanlega tekjur á móti og er mikið hagsmunamál til langrar framtíðar.
Stefna meirihlutaflokkanna varðandi húsnæðisuppbyggingu var skýr í aðdraganda kosninganna og endurspeglast hún í málefnasamningnum. Þar er svo sannarlega ekki skilað auðu þótt áherslurnar séu aðrar en Samfylkingin hefur í málaflokknum.
Ásdís Kristjánsdóttir
Andri S. Hilmarsson
Elísabet B. Sveinsdóttir
Orri V. Hlöðversson
Guðmundur J. Jónsson
Hildur Einarsdóttir
Karen Rúnarsdóttir
Bókun bæjarfulltrúa Viðreisnar:
"Viðreisn fagnar ýmsum áherslum í málefnasamningi meirihlutans, meðal annars auknum stuðningi við börn í grunnskólum, uppbyggingu stúdentaíbúða, bættum almenningssamgöngum, forvarnarverkefnum fyrir börn og eldri borgara, auk áforma um bæjarhátíð og skilvirkari afgreiðslu skipulagsmála.
Hinsvegar gerum við athugasemdir við nokkra þætti samningsins. Viðreisn bendir á að gjaldskrám sveitarfélagsins hefur ekki öllum verið stillt í hóf, hér er vísað til leikskólagjalda. Við teljum mikilvægt að skoða leiðir til að létta álögum af barnafjölskyldum. Þá er áréttað að fasteignagjöld verði að meta út frá raunverulegum kostnaði í krónum en ekki einungis prósentuhlutföllum.
Viðreisn lýsir einnig efasemdum um aukna áherslu á heimgreiðslur og telur mikilvægara að jafna stöðu foreldra óháð því hvort ung börn þeirra séu með leikskólapláss eða noti önnur dagvistunarúrræði.
Viðreisn mun styðja góð mál en jafnframt veita meirihlutanum aðhald með hagsmuni Kópavogsbúa að leiðarljósi."
María Ellen Steingrímsdóttir
Bókun:
"Meirihlutinn fagnar yfirlýstum vilja um samstarf í þeim málefnum sem ekki ríkir ágreiningur um. Ástæða er þó til þess að árétta að mismunur á fasteignagjöldum í upphafi síðasta kjörtímabils og við lok kjörtímabilsins nemur um fjórum milljörðum króna og gjöldin eru nú þau lægstu á höfuðborgarsvæðinu. Í meirihlutasáttmálanum kemur skýrt fram að stefnan sé að þau verði áfram þau lægstu hér í Kópavogi."
Ásdís Kristjánsdóttir
Andri S. Hilmarsson
Elísabet B. Sveinsdóttir
Orri V. Hlöðversson
Guðmundur J. Jónsson
Hildur Einarsdóttir
Karen Rúnarsdóttir