Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarstjórn - 1271. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Ásdís Kristjánsdóttir - aðalmaður
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Hjördís Ýr Johnson - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
  • Hannes Steindórsson - aðalmaður
  • Orri Vignir Hlöðversson - aðalmaður
  • Sigrún Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir - aðalmaður
  • Kolbeinn Reginsson - aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Bergljót Kristinsdóttir - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

01

Staða framkvæmda á Fannborgarreit - Samningur Kópavogsbæjar við Árkór. Erindi frá bæjarfulltrúa Samfylkingar.

Erindi frá bæjarfulltrúa Samfylkingar.

Umræður.

02

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 360. fundur frá 13.01.2023

Fundargerð í sjö liðum.

Bæjarstjórn staðfestir með 11 atkvæðum afgreiðslur byggingarfulltrúa.

03

Bæjarráð - 3114. fundur frá 12.01.2023

Fundargerð í sex liðum.

Lagt fram.

04

Bæjarráð - 3115. fundur frá 19.01.2023

Fundargerð í 21 lið.

Lagt fram.

05

Forsætisnefnd - 209. fundur frá 19.01.2023

Fundargerð í tveimur liðum.

Lagt fram.

06

Íþróttaráð - 127. fundur frá 11.01.2023

Fundargerð í sex liðum.

Lagt fram.


6.6 - 2210817 - SÍK - Erindi frá SÍK varðandi málefni Samstarfsvettvangsins

Lagður fram til kynningar viðaukasamningur við Samstarfssamning milli Kópavogsbæjar og SÍK.

Íþróttaráð samþykkir framlagðan samning fyrir sitt leiti og vísar honum til bæjarráðs.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum viðaukasamning við samstarfssamning milli Kópavogsbæjar og SÍK


07

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 92. fundur frá 11.01.2023

Fundargerð í tveimur liðum.

Lagt fram.

08

Skipulagsráð - 135. fundur frá 16.01.2023

Fundargerð í 14. liðum.

Lagt fram.


8.13 - 22115501 - Grenigrund 8. Kynning á byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram að nýju erindi byggingarfulltrúa dags. 25. nóvember 2022, vegna umsóknar K.R. arkitekta f.h. lóðarhafa um byggingarleyfi.
Á lóðinni er fjölbýlishús á þremur hæðum byggt árið 1958. Ekki er í gildi deiliskipulag á lóðinni. Í breytingunni felst viðbygging á einni hæð við vesturhlið hússins, 8,3 m² að flatarmáli. Byggingarmagn eyskt úr 386 m² í 394,3 m². Nýtingarhlutfall eykst úr 0,38 í 0,39. Samþykki meðeigenda liggur fyrir.
Meðfylgjandi: Skýringaruppdrættir í mkv. 1:100 dags. 14. september 2022.
Á fundi skipulagsráðs 5. desember 2023 var samþykkt með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Grenigrundar 2A, 2B, 4, 6 og 10.
Kynningartíma lauk 13. janúar 2023, engar athugasemdir bárust.

Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir með 11 atkvæðum afgreiðslu skipulagsráðs.



8.4 - 22114382 - Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2040. Breyting á vaxtarmörkum við Rjúpnahlíð. Skipulagslýsing.

Lagt fram að nýju erindi Jóns Kjartans Ágústssonar, svæðisskiplagsstjóra höfuðborgarsvæðisins dags. 9. nóvember 2022 um skipulagslýsingu vegna fyrirhugaðrar breytingar á vaxtarmörkum við sveitarfélagsmörk Kópavogs og Garðabæjar í Rjúpnahlíð/Rjúpnahæð. Óskað er eftir því að lýsingin verði tekin til efnislegrar umræðu, afgreiðslu og staðfestingar sbr. 1. mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Á fundi skipulagsráðs 14. nóvember 2022 var afgreiðslu frestað, vísað til umsagnar skipulagsdeildar.
Á fundi skipulagsráðs 19. desember 2022 var lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 15. desember 2022. Afgreiðslu frestað.

Skipulagsráð samþykkir ofangreinda umsögn skipulagsdeildar dags. 15. desember 2022 og hafnar framlagðri skipulagslýsingu á tillögu að breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins.

Bæjarstjórn staðfestir með 11 atkvæðum afgreiðslu skipulagsráðs og hafnar erindinu.



8.7 - 2208095 - Boðaþing 5-13. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram að nýju tillaga umhverfissviðs að breyttu deiliskipulagi Boðaþings 5-13
Í breytingunni felst að innri byggingarreitur fyrir Boðaþing nr. 11 og nr. 13 breytist og færist fjær Boðaþingi 1-3. Gert er ráð fyri aðkomu þjónustubíla á norðurhluta lóðarinnar (sjúkra- sorp og matarbíla) með nýjum einbreiðum akvegi 3,5 til 4 m. á breidd sem liggur frá núverandi bílastæðum að nýjum þjónustuinngangi austan núverandi þjónustukjarna.
Rökin fyrir umræddri breytingu liggja í ósk lóðarhafa um betra innra fyrirkomulag fyrirhugaðra bygginga til hagsbóta fyrir íbúa Boðaþings og til að auka vinnuhagræðingu hjá starfsfólki þar sem minni fjarlægð verður milli heimiliseininga.
Aðkoma og lega bílastæða breytist.
Að öðru leyti er vísað í gildandi deiliskipulag samþykkt í bæjarstjórn 24. ágúst 2006 m.s.br. samþykkt 12. apríl 2016 og birt í B- deild Stjórnartíðinda 26. apríl 2016.
Á fundi skipulagsráðs 15. ágúst 2022 var afgreiðslu frestað.
Á fundi skipulagsráðs 5. september 2022 var samþykkt með tilvísun í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga verði auglýst. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Á fundi bæjarstjórnar 13. septmber 2022 var afgreiðsla skipulagsráðs staðfest.
Kynningartíma lauk 4. nóvember 2022.
Á fundi skipulagsráðs 14. nóvember 2022 voru lagðar fram athugasemdir og ábendingar sem bárust á kynningartíma. Afgreiðslu frestað, vísað til umsagnar skipulagsdeildar.
Þá lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 12. janúar 2023 ásamt breyttri tillögu dags. 12. janúar 2023 þar sem komið er til móts við sjónarmið í framkomnum athugasemdum. Lega aðkomuvegar og núverandi bílastæða færist til suðurs fjær Boðaþingi 1-3, umferð um þjónustuveg verður aðgangsstýrð og merkt er inn á uppdrátt staðsetning smáhýsis/geymsluskúrs á lóð.

Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu með áorðnum breytingum dags. 12. janúar 2023. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir með 11 atkvæðum afgreiðslu skipulagsráðs.



8.8 - 2212629 - Gilsbakki. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram umsókn lóðarhafa dags. 22. desember 2022 um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar Vatnsendablettur Gilsbakki. Í breytingunni felst að komið verði fyrir nýjum byggingarreit að stærð 16.5 x 8.35m á norðvesturhluta lóðarinnar fyrir stakstætt aukahús, alls 107 m². Á lóðinni er fyrir einbýlishús 175,7 m² að flatarmáli og vinnuskúr. Vinnuskúrinn verður fjarlægður.
Byggingarmagn á lóðinni er 175,5 m², verður 282,4 m². Nýtingarhlutfall er 0,06, verður 0,09.
Uppdráttur í mkv. 1:2000, 1:1000 og 1:200 dags. 29. desember 2022 og aðaluppdrættir í mkv. 1:100 dags. 14. desember 2022.

Skipulagsráð samþykkir með tilvísun í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga að breyttu deiliskipulagi verði auglýst. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir með 11 atkvæðum afgreiðslu skipulagsráðs.



8.9 - 2211265 - Baugakór 10. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram að nýju umsókn Magnúsar Aðalmundssonar arkitekts f.h. lóðarhafa dags. 7. nóvember 2022 um breytingu á deiliskipulagi. Stækkun byggingarreits sem nemur stærð svala efri hæðar 34,3 m². Ekki gert ráð fyrir að breyta samþykktu útliti lokunar. Breytingin snýr að nýtingu svalalokunar, að svalalokun verði upphitað rými, sólskáli (A-rými). Sólskálinn verði full glerjaður með möguleika til opnunar til suðurs. Samþykki meðeigenda liggur fyrir.
Meðfylgjandi: Kynningaruppdráttur dags. 19. september 2022.
Á fundi skipulagsráðs 28. nóvember 2022 var samþykkt með tilvísun í 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga að breyttu deiliskipulagi verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Baugakórs 8, 10 og 12.
Kynningartíma lauk 6. janúar 2023, engar athugasemdir bárust.

Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir með 11 atkvæðum afgreiðslu skipulagsráðs.


09

Velferðarráð - 112. fundur frá 09.01.2023

Fundargerð í sjö liðum.

Lagt fram.

10

Menntaráð - 107. fundur frá 17.01.2023

Fundargerð í sex liðum.

Lagt fram.

11

Fundargerð verkefnahóps um uppbyggingu á Skíðasvæðunum frá 13.12.2022

Fundargerð verkefnahóps um uppbyggingu á Skíðasvæðunum frá 13.12.2022.

Lagt fram.

12

Fundargerð verkefnahóps um uppbyggingu á Skíðasvæðunum frá 20.12.2023

Fundargerð verkefnahóps um uppbyggingu á Skíðasvæðunum frá 20.12.2023.

Lagt fram.

13

Fundargerð 363. fundar stjórnar Strætó frá 16.12.2022

Fundargerð 363. fundar stjórnar Strætó frá 16.12.2022.

Lagt fram.

14

Fundargerð 549. fundar stjórnar SSH frá 09.01.2023

Fundargerð 549. fundar stjórnar SSH frá 09.01.2023.

Lagt fram.

15

Fundargerð 475. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 09.12.2022

Fundargerð 475. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 09.12.2022.

Lagt fram.