Bæjarstjórn - 1339. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Ásdís Kristjánsdóttir - aðalmaður
- Hjördís Ýr Johnson - aðalmaðurBoðaði forföllHjördís Ýr Johnson - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
- Elísabet Berglind Sveinsdóttir - aðalmaður
- Orri Vignir Hlöðversson - aðalmaður
- Björg Baldursdóttir - aðalmaður
- Helga Jónsdóttir - aðalmaður
- Kolbeinn Reginsson - aðalmaður
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllTheódóra S Þorsteinsdóttir - varafulltrúiSat fundinn í staðinn
- Bergljót Kristinsdóttir - aðalmaður
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllSigurbjörg Erla Egilsdóttir - varamaðurSat fundinn í staðinn
Starfsmenn
- Pálmi Þór Másson - bæjarritari
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Lagðir fram ársreikningar Kópavogsbæjar og stofnana bæjarins fyrir árið 2025 til seinni umræðu.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning A-hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Aðalsjóðs Kópavogsbæjar. Staðfestur með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Indriða I. Stefánssonar, Jóhönnu Pálsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning A-hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Eignasjóðs Kópavogsbæjar. Staðfestur með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Indriða I. Stefánssonar, Jóhönnu Pálsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning A-hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Byggingarsjóðs MK. Staðfestur með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Indriða I. Stefánssonar, Jóhönnu Pálsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning A-hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Þjónustumiðstöðvar Kópavogsbæjar. Staðfestur með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Indriða I. Stefánssonar, Jóhönnu Pálsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning B-hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Húsnæðisnefndar Kópavogsbæjar. Staðfestur með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Indriða I. Stefánssonar, Jóhönnu Pálsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning B-hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Tónlistarhúss Kópavogs. Staðfestur með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Indriða I. Stefánssonar, Jóhönnu Pálsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning B-hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Bílastæðasjóðs Kópavogs. Staðfestur með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Indriða I. Stefánssonar, Jóhönnu Pálsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning B-hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Hafnarsjóðs Kópavogsbæjar. Staðfestur með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Indriða I. Stefánssonar, Jóhönnu Pálsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning B-hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Fráveitu Kópavogsbæjar. Staðfestur með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Indriða I. Stefánssonar, Jóhönnu Pálsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning B-hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Vatnsveitu Kópavogsbæjar. Staðfestur með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Indriða I. Stefánssonar, Jóhönnu Pálsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning Vatna ehf. Staðfestur með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Indriða I. Stefánssonar, Jóhönnu Pálsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning Fjarskiptafélagsins Rjúpnahæð ehf. Staðfestur með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Indriða I. Stefánssonar, Jóhönnu Pálsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning félagsins Músik og sögu ehf. Staðfestur með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Indriða I. Stefánssonar, Jóhönnu Pálsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.
Forseti bar undir atkvæði í heild sinni samantekinn ársreikning Kópavogsbæjar, þ.e. ársreikning Kópavogsbæjar, A- og B-hluta fyrirtækja hans ásamt framlögðum ársreikningum B-hluta fyrirtækja og öðrum fylgigögnum. Staðfestur með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Indriða I. Stefánssonar, Jóhönnu Pálsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.
Bókun:
"Ársreikningur Kópavogsbæjar sýnir að hefðbundnar rekstrartekjur standa ekki undir rekstrarútgjöldum og munar þar yfir 400 m.kr. Afgangur ársins skýrist fyrst og fremst af sölu byggingarréttar, sem er einskiptistekjulind og verður ekki endurtekin. Á kjörtímabilinu hafa tekjur af sölu byggingarréttar numið yfir 10 milljörðum króna, en ekki má búast við sambærilegum eignasölutekjum á næstu árum.
Á sama tíma stóraukast skuldbindingar bæjarins jafnt í fjárfestingum sem rekstri. Langtímaskuldir bæjarins nema nú 31,2 milljörðum króna. Af þeirri fjárhæð greiðast aðeins 4,6 milljarðar upp fyrir árið 2030. Ný markaðsbréf að fjárhæð 5,4 milljarðar verða ekki að fullu greidd upp fyrr en árið 2055 og önnur að fjárhæð 7,5 milljarðar árið 2040. Flest lán bæjarins bera háa óbreytanlega vexti og verðtryggingu.
Þrátt fyrir þessa miklu skuldsetningu hefur heildstæð fjárfestingaráætlun aldrei verið lögð fyrir bæjarráð. Þannig hefur kostnaður sem greiða verður upp á komandi kjörtímabilum aldrei verið ræddur í bæjarráði og settur í samhengi við nauðsynlega uppbyggingu á kjörtímabilinu. Með þessari langtímaskuldsetningu hefur framkvæmdageta bæjarsjóðs verið bundin til allt að 30 ára, án þess að fyrir liggi hvaða áhrif það mun hafa á nauðsynlega framtíðaruppbyggingu bæjarins."
Kolbeinn Reginsson
Helga Jónsdóttir
Indriði I. Stefánsson
Jóhanna Pálsdóttir
Bergljót Kristinsdóttir
Bókun:
"Afkoma ársins er ein sú besta í 18 ár. Heildarskuldir hafa lækkað um 11% á kjörtímabilinu og skuldahlutfallið farið úr 86% í 68% og hvergi á höfuðborgarsvæðinu hefur skuldahlutfall lækkað meira á síðustu fjórum árum. Á árinu 2025 voru engin lán tekin þrátt fyrir umfangsmiklar fjárfestingar í leik- og grunnskólum. Reksturinn skilar 5 milljörðum króna eftir að leiðrétt hefur verið fyrir einskiptistekjum eins og lóðasölu. Þá er mikilvægt að árétta að tekjur af lóðasölu eru alls ekki notaðar til rekstrar heldur til fjárfestingar innviða og niðurgreiðslu skulda.
Ávinningi af góðum rekstri hefur verið skilað í formi lægri skatta en fasteignagjöld hafa lækkað að raunvirði á kjörtímabilinu og eru þau lægstu á höfuðborgarsvæðinu."
Orri V. Hlöðversson
Ásdís Kristjánsdóttir
Björg Baldursdóttir
Andri S. Hilmarsson
Elísabet B. Sveinsdóttir
Bergur Þorri Benjamínsson
- 1. Kópavogsbær - ársreikningur ársins 2025-seinni
- 2. Aðalsjóður 31.12.2025-seinni
- 3. Eignasjóður 31.12.2025-seinni
- 4. MK-31.12.2025-seinni
- 5. Þjónustumiðstöð-31.12.2025-seinni
- 6. Fráveita-31.12.2025-seinni
- 7. Vatnsveita-31.12.2025-seinni
- 8. Hafnarsjóður-31.12.2025-seinni
- 9. Tónlistarhús-31.12.2025-seinni
- 10. Bílastæðasjóður-31.12.2025-seinni
- 11. Húsnæðisnefnd-31.12.2025-seinni
- 12. Ársreikningur-Fjarsk-Rjúpnah-2025-seinni
- 13. Ársreikningur-Múík og saga
- 14. Ársreikningur-Vatni-2025-seinni
- 15. Deildaryfirlit samstæðu 2025-seinni
- 16. Málaflokkayfirlit 2025-seinni
- 17. Kópavogsbær endurskoðunarskýrsla - 2025
- 18. Kópavogsbær_viðauki I_Ábendingar og athugasemdir - 2025
- 19.Kópavogsbær_viðauki_UTÁbendingar og athugasemdir 2025
- Breyting milli umræðna
Fundargerð í 15 liðum.
Fundarhlé hófst kl. 17:45, fundi fram haldið kl. 18:43
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslur byggingarfulltrúa með 9 atkvæðum og hjásetu Helgu Jónsdóttur og Kolbeini Reginssyni.
Fundargerð í 15 liðum.
Lagt fram.
3.4 - 26031182 - Sveitarstjórnarkosningar 2026
Frá lögfræðiþjónustu, lagður fram starfsmannalisti undirkjörstjórna, auk staðsetningar kjörstaða vegna sveitarstjórnarkosninga 2026.
Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum framlagðan lista starfsmanna undirkjörstjórna.
Fundargerð í 14 liðum.
Lagt fram.
4.4 - 26031602 - Vatnsendahvarf, lóðarúthlutun
Frá umhverfissviði, tillaga að úthlutun lóða í Vatnsendahvarfi.
Bæjarráð vísar framlögðum tillögum að lóðaúthlutunum og til afgreiðslu bæjarstjórnar með þremur atkvæðum og hjásetu Helgu Jónsdóttur og Jóhönnu Pálsdóttur.
Bæjarstjórn samþykkir með 6 atkvæðum og hjásetu Helgu Jónsdóttur, Kolbeins Reginssonar, Bergljótar Kristinsdóttur, Indriða I. Stefánssonar og Jóhönnu Pálsdóttur framlagðar tillögur að lóðarúthlutunum.
Fundargerð í þremur liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í fjórum liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í fimm liðum.
Lagt fram.
7.3 - 2602358 - Dalsmári 9-11. Breytt deiliskipulag.
Lögð fram að nýju umsókn Jakobs Emils Líndal arkitekts dags. 3. febrúar 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 9-11 við Dalsmára um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst 3.780 m² lóðarstækkun til norðurs og 4.000 m² nýbygging á tveimur hæðum sem tengist núverandi húsnæði á lóð með tengigangi. Lóðarstækkunin fer að hluta til yfir á svæði með landnotkun skilgreinda í aðalskipulagi sem opið svæði, OP-221, en er að öðru leiti innan íþróttasvæðis, ÍÞ-4. Tillagan leggur undir sig núverandi útitennisvelli og útivistarsvæði. Uppdrættir dags. 3. mars 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 25. mars 2026 var erindinu vísað til skipulags- og umhverfisráðs. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17. apríl 2026.
Synjað með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 17. apríl 2026. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir synjun skipulags- og umhverfisráðs með 11 atkvæðum.
Fundargerð í átta liðum.
Lagt fram.
Fundargerð 436. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins.
Lagt fram.
Fundargerð 44. fundar Heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis.
Lagt fram.
Fundargerð 997. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Lagt fram.
Fundargerð 626. fundar stjórnar SSH.
Lagt fram.
Fundargerð 145. fundar stjórnar Svæðisskipulagsnefndar.
Lagt fram.