Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 55. fundur
á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Auður Dagný Kristinsdóttir - skipulagsfulltrúi
- Karlotta Helgadóttir - fulltrúi skipulagsdeildar
- Harri Ormarsson - lögfræðingur
Ritari
- Karlotta Helgadóttir
Eftirtaldir verkefnastjórar kynntu mál á fundinum: Ester Anna Ármannsdóttir, Elín Mjöll Lárusdóttir og Kristjana H. Kristjánsdóttir.
Dagskrá fundar
Lögð fram umsókn VSÓ dags. 1. október 2026 f.h. Skíðasvæðanna á höfuðborgarsvæðinu um framkvæmdaleyfi til að endurnýja siturbeð á skíðasvæðinu í Bláfjöllum.
Frestað.
Lögð fram að nýju að lokinni grenndarkynningu byggingarleyfisumsókn lóðarhafa lóðarinnar nr. 62 við Álfhólsveg. Sótt er um að hækka þak og breyta útliti hússins. Uppdrættir dags. 12. nóvember 2023, uppfærðir 27. maí 2026 og skráningartafla dags. 12. nóvember 2023, uppfærð 20. maí 2025. Byggingarleyfisumsóknin var grenndarkynnt frá 2. september til 2. október 2026. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt með vísan 4.tl. 3. gr. í viðauka lV við samþykkt um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 1691/2024. Vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 25. september 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Vals Þórs Sigurðarsonar byggingafræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 24 við Hófgerði er vísað til skipulagsfulltrúa. Sótt er um að byggja 26 m² garðskála í bakgarði einbýlishúss. Uppdrættir og skráningartafla dags. 4. september 2026.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum á lóðum nr. 22 og 26 við Hófgerði og 26 við Borgarholtsbraut. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 28. gr. í samþykkt Kópavogsbæjar nr. 1725/2024.
Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 25. september 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Gests Ólafssonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 20 við Kópavogsbraut er vísað til skipulagsfulltrúa. Sótt er um 80 m² viðbyggingu við bílskúr einbýlishús.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum á lóðum nr. 18 og 22 við Kópavogsbraut og 22 og 24 við Meðalbraut. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 28. gr. í samþykkt Kópavogsbæjar nr. 1725/2024.
Lögð fram að nýju að lokinni grenndarkynningu byggingarleyfisumsókn Kristjáns Georgs Leifssonar byggingafræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 9 við Hraunbraut. Sótt er um að byggja 108 m² viðbyggingu á tveimur hæðum með bílskúr á 1. hæð og stofu þar ofan á. Uppdrættir dags. 3. mars 2026. Byggingarleyfisumsóknin var grenndarkynnt frá 1. september til 1. október 2026. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt með vísan 4.tl. 3. gr. í viðauka lV við samþykkt um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 1691/2024. Vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
Lögð fram að nýju fyrirspurn lóðarhafa lóðarinnar nr. 18 við Fjallalind dags. 15. september 2026 um að reisa 15 m² geymsluskúr utan byggingarreits, við lóðarmörk til vestur og um 1m frá gangstétt á bæjarlandi. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 28. september 2026 var afgreiðslu frestað.
Ekki eru gerðar athugasemdir við erindið.
Lögð fram fyrirspurn Ívars Sveinssonar arkitekts dags. 5. október 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 11 við Hlíðarhvarf um breytingu á deiliskipulagi. Spurst er hvork heimilt sé að auka byggingarmagn um 4,5 m², úr 246 m² í 250,5m² og hvort heimilt sé að færa stoðvegg á jarðhæð til norðurs. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. október 2026.
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. október 2026, samþykkt.
Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 25. september 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Smára Björnssonar byggingafræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 64 við Digranesveg er vísað til skipulagsfulltrúa. Sótt er um að byggja 23 m² viðbyggingu við einbýlishús. Uppdrættir og skráningartafla dags. 12. ágúst 2026.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum á lóðum nr. 62 og 66 við Digranesveg og 83 og 91 við Hrauntungu. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 28. gr. í samþykkt Kópavogsbæjar nr. 1725/2024.
Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 25. september 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Helga Hjálmarssonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 45 við Digranesheiði er vísað til skipulagsfulltrúa. Sótt er um stækka bílskýli, fella út þakglugga og breyta stigum á raðhúsum. Uppdrættir dags. 25. júní 2026.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.
Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 25. september 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Aðalsteins Snorrasonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 32 við Skemmuveg er vísað til skipulagsfulltrúa. Sótt er um að byggja 15 m² viðbyggingu við atvinnuhús. Uppdrættir dags. 31. október 2025.
Samþykkt með vísan 6. tl. 3. gr. í viðauka lV við samþykkt um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 1691/2024, sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
Lögð fram fyrirspurn Hjalta Brynjarssonar arkitekts dags. 1. október 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 10-32 við Roðahvarf um fjölgun íbúða úr 73 í 97.
Vísað til skipulags- og umhverfisráðs.
Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 25. september 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Mardísar Möllu Andersen byggingafræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 7 við Dalsmára er vísað til skipulagsfulltrúa. Sótt er um að setja LED skilti á þak stúku. Uppdrættir dags. 21. september 2026.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.
Lögð fram fyrirspurn Hjalta Brynjarssonar arkitekts dags. 7. október 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 25-33 við Hallahvarf um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst fjölgun íbúða um þrjár, úr 33 í 36.
Vísað til skipulags- og umhverfisráðs.
Lögð fram fyrirspurn Bryndísar Eyfjörð Alfreðsdóttur arkitekts dags. 1. október 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 57 við Kópavogsbraut um mögulega uppbyggingu lóðanna nr. 51, 53-55 og 57 við Kópavogsbraut.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.
Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 25. september 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Guðmundar Gunnlaugssonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 2 við Turnahvarf er vísað til skipulagsfulltrúa. Sótt er um að gera breytingu á lóðaruppdrætti atvinnuhúsnæðis. Uppdrættir dags. 28. október 2025, uppfærður 7. september 2026 og uppdráttur dags. 5. september 2019, uppfærður 4. september 2026.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.
Lögð fram umsókn Kristins Ragnarssonar arkitekts dags. 8. október 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 723 við Vatnsendablett um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að veitt verði heimild til að byggja yfirbyggðar svalir á suðurhluta núverandi byggingar sem ná 2,5 m út fyrir gildandi byggingarreit. Uppdrættir dags. 8. október 2026.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.
Lögð fram umsókn lóðarhafa lóðarinnar nr. 3 við Múlalind dags. 13. október 2026 um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst leyfi fyrir kvisti á austurhlið hússins.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.
Lögð fram umsókn Kristins Ragnarssonar arkitekts dags. 13. október 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 66 við Fjallalind um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst 27 m² viðbygging vestan megin við núverandi hús. Uppdrættir dags. 12. október 2026.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.