Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Hraunbraut 9. Byggingarleyfisumsókn.

Málsnúmer: 2607300

Ferill máls

01

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 55. fundur

Lögð fram að nýju að lokinni grenndarkynningu byggingarleyfisumsókn Kristjáns Georgs Leifssonar byggingafræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 9 við Hraunbraut. Sótt er um að byggja 108 m² viðbyggingu á tveimur hæðum með bílskúr á 1. hæð og stofu þar ofan á. Uppdrættir dags. 3. mars 2026. Byggingarleyfisumsóknin var grenndarkynnt frá 1. september til 1. október 2026. Engar athugasemdir bárust.

Samþykkt með vísan 4.tl. 3. gr. í viðauka lV við samþykkt um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 1691/2024. Vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.

02

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 52. fundur

Lagt fram að nýju erindi byggingarfulltrúa dags. 3. júlí 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Kristjáns Georgs Leifssonar f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 9 við Hraunbraut er vísað til skipulagsfulltrúa til umsagnar eða ákvörðunar um grenndarkynningu. Sótt er um að byggja 108 m² viðbyggingu á tveimur hæðum með bílskúr á 1. hæð og stofu þar ofan á. Uppdrættir dags. 3. mars 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 13. júlí 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir lóðarhöfum lóðanna nr. 1-11, 12, 14 og 16 við Hraunbraut. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 28. gr. í samþykkt Kópavogsbæjar nr. 1725/2024.

03

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 50. fundur

Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 3. júlí 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Kristjáns Georgs Leifssonar f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 9 við Hraunbraut er vísað til skipulagsfulltrúa til umsagnar eða ákvörðunar um grenndarkynningu. Sótt er um að byggja 108 m² viðbyggingu á tveimur hæðum með bílskúr á 1. hæð og stofu þar ofan á. Uppdrættir dags. 3. mars 2026.

Vísað til umsagnar verkefnastjóra.