Fagrahvarf 2-8. Breytt deiliskipulag.
Málsnúmer: 2606909
Ferill máls
01
Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 51. fundur
Lögð fram að nýju að lokinni grenndarkynningu umsókn Gunnars Loga Gunnarssonar arkitekts dags. 9. júní 2026 f.h. lóðarhafa lóðanna nr. 2-8 við Fagraþing um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst stækkun byggingarreits um 1,65 m til suðurs til að koma fyrir 9 m² utanáliggjandi svölum. Uppdrættir ódags. Tillagan var grenndarkynnt frá 7. júlí til 7. ágúst 2026, engar athugasemdir bárust.
Samþykkt með vísan 3.tl. 3. gr. í viðauka lV við samþykkt um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 1691/2024.
02
Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 49. fundur
Lögð fram umsókn Gunnars Loga Gunnarssonar arkitekts dags. 9. júní 2026 f.h. lóðarhafa lóðanna nr. 2-8 við Fagraþing um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst stækkun byggingarreits um 1,65 m til suðurs til að koma fyrir 9m² utanáliggjandi svölum. Uppdrættir ódags. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. júní 2026.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum á lóðum 1 til 13 við Faldarhvarf, oddatölur. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 27. gr. í samþykkt Kópavogsbæjar nr. 1725/2024.