Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 44. fundur

á Digranesvegi 1, Fífuhvammur 1. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Andrea Kristinsdóttir - verkefnastjóri
  • Karlotta Helgadóttir - starfsmaður umhverfissviðs
  • Harri Ormarsson - lögfræðingur

Ritari

  • Karlotta Helgadóttir

Andrea Kristinsdóttir stýrði fundinum í fjarveru skipulagsfulltrúa.

Eftirtaldir verkefnastjórar kynntu mál á fundinum: Freyr Snorrason, Ester Anna Ármannsdóttir og Elín Mjöll Lárusdóttir.

Dagskrá fundar

01

Óskað eftir samstarfi varðandi aðstöðu og þjónustu í Kópavogshöfn

Lagt fram að nýju erindi Seatrips ehf. dags. 30. ágúst 2023 þar sem óskað var eftir samstarfi við hafnarstjórn Kópavogsbæjar varðandi aðstöðu og þjónustu við Kópavogshöfn. Hafnarstjórn vísaði erindinu til skipulagsfulltrúa. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 5. september 2025 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Vísað til skipulags- og umhverfisráðs.

02

Álftröð 1. Breytt akstursstefna. Fyrirspurn.

Lögð fram að nýju fyrirspurn Snorra Þórissonar dags. 10. mars 2026 f.h. húsfélagsins nr. 1 við Traðarreit um breytta akstursstefnu götunar. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 25. mars 2026 var fyrirspurninni vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Lögð fram að nýju ásamt skipulagsfulltrúa dags. 27. apríl 2026.

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. apríl 2026, samþykkt.

03

Álalind 2. Fyrirspurn.

Lögð fram fyrirspurn Ellerts Más Jónssonar arkitekts dags. 2. apríl 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 2 við Álalind um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst leyfi til að reisa svalaskýli á 5. hæð. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 13. apríl 2026 var fyrirspurninni vísað til umsagnar verkefnastjóra. Lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. apríl 2026.

Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 27. apríl 2026.

04

Álalind 14. Byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram að nýju erindi byggingarfulltrúa dags. 13. mars 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Eiríks Vignis Pálssonar byggingafræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 14 við Álalind er vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Sótt er um að koma fyrir svalalokunum á 1. til 9. hæð hússins. Uppdrættir dags. 12. febrúar 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 25. mars 2026 var byggingarleyfisumsókninni vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. apríl 2026.

Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 27. apríl 2026.

05

Silfursmári 2-8. Fyrirspurn.

Lögð fram að nýju fyrirspurn Arnars Þórs Jónssonar arkitekts dags. 17 .mars 2026 f.h. húsfélags Silfursmára 4-8, lóðarhöfum lóðarinnar nr. 2, 4, 6, og 8 við Silfursmára og 2, 4, 6, 10, 12 og 14 við Sunnusmára, þar sem óskað er eftir afstöðu skipulagsyfirvalda Kópavogsbæjar um heimild til að loka svölum á efstu hæð hússins nr. 4-8 við Silfursmára. Þá lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. apríl 2026.

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. apríl 2026, samþykkt.

06

Bergsmári 2. Fyrirspurn.

Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa lóðarinnar nr. 2 við Bergsmára dags. 17. apríl 2026 um að kantsteinn fyrir framan húsið verði fjarlægður að hluta til.

Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

07

Hagasmári 3. Fyrirspurn.

Lögð fram fyrirspurn Ellerts Hreinssonar arkitekts dags. 20. apríl 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 3 við Hagasmára um aukið byggingarmagn lóðarinnar með tveimur tveggja hæða viðbyggingum við núverandi inngang til vesturs á norðurturni. Byggingarmagn lóðarinnar myndi hækka um 1000 m², úr 18.195,3 m² í 19.195,3 m². Nýtingarhlutfall lóðarinnar hækkar úr 1,52 1,60.

Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

08

Stígagerð í botni Kópavogs. Framkvæmdaleyfi.

Lögð fram umsókn Betri Samganga ofh. dags. 17. apríl 2026 um framkvæmdaleyfi. Framkvæmdin felur í sér að útbúa aðskilda göngu- og hjólastíga frá stígamótum við undirgöng Hafnarfjarðarvegar við Kópavogstún sem liggur vestan Hafnarfjarðarvegar að sveitarfélagsmörkum Garðabæjar og Kópavogs.

Vísað til umsagnar verkefnastjóra.