Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Framkvæmdaráð - 54. fundur

í Fannborg 2, fundarherbergi 3. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Gunnar Ingi Birgisson - aðalfulltrúi
  • Ómar Stefánsson - aðalfulltrúi
  • Guðríður Eldey Arnardóttir - aðalfulltrúi
  • Ólafur Þór Gunnarsson - áheyrnarfulltrúi
  • Hjálmar Hjálmarsson - áheyrnarfulltrúi
  • Ármann Kristinn Ólafsson - bæjarstjóri
  • Steingrímur Hauksson - embættismaður
  • Sólveig Helga Jóhannsdóttir - embættismaður

Ritari

  • Sólveig H. Jóhannsdóttir

Dagskrá fundar

01

Þrúðsalir 8. Umsókn um lóð

Borist hefur umsókn um lóðina Þrúðsalir 8 frá Elmari Þór Erlendssyni. kt. 080578-3429 og Erlendi Borgþórssyni kt. 100351-4719. Umsækjendur uppfylla skilyrði úthlutunarreglna. Lóðin hefur verið auglýst á heimasíðu Kópavogsbæjar. Framkvæmdaráð samþykkir að leggja til við bæjarráð að umsækjendum verði úthlutað lóðinni Þrúðsalir 8.

02

Hafraþing 2-4, umsókn um lóð undir parhús

Borist hefur umsókn um parhúsalóðina Hafraþing 2-4 frá North Team Invest ehf. kt. 620188-1669. Umsækjendur uppfylla skilyrði úthlutunarreglna. Lóðin hefur verið auglýst á heimasíðu Kópavogsbæjar. Framkvæmdaráð samþykkir að leggja til við bæjarráð að umsækjendum verði úthlutað lóðinni Hafraþing 2-4.

03

Hafraþing 6-8, umsókn um lóð undir parhús

Borist hefur umsókn um parhúsalóðina Hafraþing 6-8 frá Verkfræðistofu Kópavogs ehf. kt. 700501-2640. Umsækjendur uppfylla skilyrði úthlutunarreglna. Lóðin hefur verið auglýst á heimasíðu Kópavogsbæjar. Framkvæmdaráð samþykkir að leggja til við bæjarráð að umsækjendum verði úthlutað lóðinni Hafraþing 2-4. Guðríður Arnardóttir mætti til fundar kl: 8:18

04

Smáraskóli, lausar kennslustofur

Sviðsstjóri gerði grein fyrir niðurstöðu auglýsingar eftir tilboðum í tvær færanlegar kennslustofur á lóð Smáraskóla. Framkvæmdaráð samþykkir að mæla með við bæjarráð að samið verði við hæstbjóðanda, Skjót ehf.Guðríður Arnardóttir bókar að heppilegra sé að tilboðum sé skilað inn í lokuðum umslögum og opnuð með formlegum hætti í votta viðurvist.Ármann Kr. Ólafsson bókar að vel hafi verið að verki staðið. Gunnar I. Birgisson, Ármann Kr. Ólafsson og Ómar Stefánsson bóka að tilboð bárust bæði í umslögum og á rafrænum hætti og voru opnuð eftir að tilboðsfresti lauk og ekkert óeðlilegt við þetta ferli.

05

Ýmsar framkvæmdir 2013, yfirlit.

Lagt fram yfirlit umhverfissviðs (nr. 13) yfir framkvæmdir á árinu, dags. 19. ágúst 2013. Deildarstjóri framkvæmdadeildar gerði grein fyrir stöðu hestu verkefna.

06

Hamraendi 21, umsókn um lóð undir hesthús

Borist hefur erindi frá Páli Briem kt. 280472-5069 og Guðrúnu Sylvíu Pétursdóttur kt. 071167-5939 dags. 14. ágúst 2013, sem var úthlutað lóðinni Hamraendi 21 í febrúar sl. Óskað er eftir þeirri breytingu að í stað þess að lóðin sé skráð á þau bæði, þá verði Guðrún ein skráð fyrir lóðnni. Framkvæmdaráð samþykkir að leggja til við bæjarráð að Guðrún Sylvía Pétursdóttir verði ein lóðarhafi Hamraenda 21.

07

Staða byggingarframkvæmda á lóðum

Óskað eftir að byggingafulltrúi komi á næsta fund framkvæmdaráðs og geri grein fyrir stöðu byggingaframkvæmda á lóðum.

08

Hver er staðan á innkaupum á félagslegum íbúðum?

Hjálmar Hjálmarsson spyr hver sé staðan á innkaupum á félagslegum íbúðum?