Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks - 24. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Signý Sigurrós Skúladóttir - formaður
- Arnar Þór Pétursson - aðalfulltrúi
- Trausti Örn Þórðarson - aðalfulltrúi
- Salóme Mist Kristjánsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllFrímann Sigurnýasson - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Hekla Björk Hólmarsdóttir - aðalmaður
- Bergur Þorri Benjamínsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Jón Kristján Rögnvaldsson - starfsmaður velferðarsviðs
- Anna Guðrún Halldórsdóttir - starfsmaður velferðarsviðs
Ritari
- Anna Guðrún Halldórsdóttir
Kosning varaformanns, formaður tilnefnir Arnar Þór Pétursson sem varaformann og hlýtur hann kjör sem varaformaður.
Dagskrá fundar
Jóhanna Lilja Ólafsdóttir skrifstofustjóri velferðarsviðs kynnir starfsemi velferðarsviðs.
Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks þakkar fyrir góða kynningu.
Drög að breytingum á reglum um akstursþjónustu fyrir fatlað fólk. Velferðar- og mannréttindaráð vísaði drögunum til umsagnar í Notendaráð.
Notendaráð þakkar fyrir góða kynningu á drögum að breytingum á reglum um akstursþjónustu fyrir fatlað fólk.
Notendaráð samþykkir drögin fyrir sitt leyti.
Nýjar reglur um húsnæði fyrir fatlað fólk í Kópavogi. Velferðar- og mannréttindaráð vísaði reglunum til umsagnar í Notendaráð.
Notendaráð þakkar góða kynningu á drögum að reglum húsnæði fyrir fatlað fólk í Kópavogi.
Notendaráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti, að teknu tilliti til athugasemda sem fram komu á fundinum.