Reglur um húsnæði fyrir fatlað fólk
Málsnúmer: 26081401
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1345. fundur
Nýjar reglur um húsnæði fyrir fatlað fólk lagt fram til afgreiðslu
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum framlögð drög að nýjum reglum um húsnæði fyrir fatlað fólk.
02
Bæjarráð - 3265. fundur
Nýjar reglur um húsnæði fyrir fatlað fólk lagt fram til afgreiðslu
Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
03
Velferðar- og mannréttindaráð - 20. fundur
Nýjar reglur um húsnæði fyrir fatlað fólk lagt fram til afgreiðslu
Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir fyrir sitt leyti drög að nýjum reglum um húsnæði fyrir fatlað fólk og vísar þeim til afgreiðslu bæjarráðs og staðfestingar bæjarstjórnar.
04
Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks - 24. fundur
Nýjar reglur um húsnæði fyrir fatlað fólk í Kópavogi. Velferðar- og mannréttindaráð vísaði reglunum til umsagnar í Notendaráð.
Notendaráð þakkar góða kynningu á drögum að reglum húsnæði fyrir fatlað fólk í Kópavogi.
Notendaráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti, að teknu tilliti til athugasemda sem fram komu á fundinum.
05
Velferðar- og mannréttindaráð - 19. fundur
Lögð fram til kynningar og umræðu drög að nýjum reglum Kópavogsbæjar um húsnæði fyrir fatlað fólk.
Velferðar- og mannréttindaráð vísar drögum að nýjum reglum um húsnæði fyrir fatlað fólk til umsagnar í notendaráði í málefnum fatlaðs fólks.