Innkaupanefnd - 8. fundur
á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Sveinn Gíslason - formaður
- Sigvaldi Egill Lárusson - aðalmaður
- Árnína Steinunn Kristjánsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllÁrnína Steinunn Kristjánsdóttir - aðalfulltrúiSat fundinn í staðinn
- Jóhann Már Sigurbjörnsson - aðalmaður
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
- Elvar Bjarki Helgason - áheyrnarfulltrúi
- Sigurlaug Kristín Sævarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Aðalbjörg Katrín Arnórsdóttir - starfsmaður nefndar
- Hjalti Jón Pálsson - starfsmaður nefndar
- Loftur Steinar Loftsson - Þjónustustjóri
Ritari
- Katrín Arnórsdóttir
Dagskrá fundar
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar dags. 16.10.2025 lagt fram erindi þar sem óskað er eftir heimild innkaupanefndar fyrir auglýsingu fyrir þátttöku til samkeppnisviðræðna sbr. 33 gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 fyrir hönnun og byggingu knattspyrnuleikvangs við Kórinn.
Lagt fram til ákvörðunar.
Lagt fram til samþykktar. Umræður.
Gestur víkur af fundi kl. 16:27
Fundarhlé kl. 16:31
Fundur settur að nýju kl. 16:50
Umræður
Innkaupanefnd samþykkir, með 3 atkvæðum og hjásetu Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur og Jóhanns Más Sigurbjörnssonar, að veita umbeðna heimild til forvals fyrir samkeppnisviðræður á hönnun og byggingu knattspyrnuleikvangs við Kórinn, enda verkefnið á fjárhagsáætlun.
Lagðar eru fram upplýsingar um samninga Kópavogsbæjar, innkaup á launa- og mannauðskerfi, örútboð á endurnýjun Microsoft 365 leyfa og minnisblað um framhaldssamning ljósleiðara.
Lagt fram til upplýsinga.
Lagðar eru fram upplýsingar um greiningar innkaupa fyrir innkaupanefnd.
Lagt fram.
Drög að innkaupaferli fyrir stjórnsýslu Kópavogsbæjar lagt fram til upplýsinga.
Lagt fram til upplýsinga.