Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Stúka HK Kórinn

Málsnúmer: 2402380

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1338. fundur

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar dags. 10.4.2026 lögð fram beiðni um heimild til samninga vegna samkeppnisviðræðna um byggingu á nýrri stúku við Kórinn. Lagt fram til ákvörðunar.

Fundarhlé hófst kl. 19:44, fundi fram haldið kl. 20:27.


Tillögu Helgu Jónsdóttur um frestun málsins hafnað með sex atkvæðum gegn atkvæðum Kolbeini Reginssyni, Helgu Jónsdóttur, Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Hákonar Gunnarssonar og Sigurbjargar E. Egilsdóttur.


Bæjarstjórn staðfestir með 6 atkvæðum gegn atkvæðum Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Sigurbjargar E. Egilsdóttur og Hákonar Gunnarssonar afgreiðslu innkaupanefndar, dags. 13. apríl 2026, með fyrirvara um niðurstöðu kærunefndar útboðsmála, skv. 2. mgr. 107. gr. laga nr. 120/2016.


Bókun:

Undirrituð frábiður sér að bæjarstjóri geri henni upp skoðanir og ásetning í þessu máli, og væntir þess að forseti áminni bæjarstjóra. Siðareglur kveða á um að bæjarfulltrúar skuli sýna háttvísi og bera virðingu fyrir skoðunum annarra.

Undirrituð telur gögnin sem fylgja þessu máli vera ófullnægjandi með öllu. Enginn gæðamatstafla né rökstuðningur liggur fyrir og því er ótækt að taka ákvörðun.

Theódóra S. Þorsteinsdóttir


Bókun:

Matsaðferðarfræðin lá skýrt fyrir með vægi og forsendum við upphaf innkaupaferlisins. Niðurstöður matsins liggja fyrir varðandi verð, gæði og heildarniðurstöðu matsins. Við val á hagstæðasta tilboði var byggt á þessum atriðum. Að halda því fram að engin gögn eða rökstuðningur liggi fyrir er því alrangt.

Ásdís Kristjánsdóttir

Orri Hlöðversson

Andri Steinn Hilmarsson

Björg Baldursdóttir

Elísabet Sveinsdóttir

Bergur Þorri Benjamínsson

02

Bæjarráð - 3253. fundur

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar dags. 10.4.2026 lögð fram beiðni um heimild til samninga vegna samkeppnisviðræðna um byggingu á nýrri stúku við Kórinn. Lagt fram til ákvörðunar.

Umræður.

Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum umbeðna heimild til samninga og vísar málinu til staðfestingar bæjarstjórnar.

03

Innkaupanefnd - 16. fundur

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar dags. 10.4.2026 lögð fram beiðni um heimild til samninga vegna samkeppnisviðræðna um byggingu á nýrri stúku við Kórinn. Lagt fram til ákvörðunar.

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 10.4.2026 er lögð fram til ákvörðunar beiðni um heimild til samninga vegna samkeppnisviðræðna um byggingu á nýrri stúku við Kórinn.

Umræður og skýringar.

Samþykkt er með fjórum atkvæðum og hjásetu Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur.

Gestur víkur af fundi kl. 15:45.

04

Innkaupanefnd - 11. fundur

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar dags. 12.12.2025 er lagt fram erindi þar sem óskað er eftir heimild innkaupanefndar fyrir því að afhenda lokuð útboðsgögn til þátttakenda í forvali í samkeppnisviðræðum fyrir knattleikvang í Kórnum. Lagt fram til ákvörðunar.

Kynning og umræður.

Gestir viku af fundi kl. 16:10

Fundarhlé hófst kl. 16:50, fundi framhaldið kl. 16:56.

Tillaga:

"Undirrituð leggur til að málinu verði vísað til afgreiðslu bæjarráðs."

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir

Bókun Sigurbjargar E. Egilsdóttur færð í trúnaðarbók þar til lokatilboðum hefur verið skilað.

Innkaupanefnd hafnar ofangreindri tillögu með 3 atkvæðum gegn atkvæði Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur og hjásetu Jóhanns Más Sigurbjörnssonar.


Fundarhlé hófst kl. 17:10, fundi framhaldið kl. 17:15.

Bókun:

"Samkvæmt erindisbréfi innkaupanefndar leikur enginn vafi á heimild nefndarinnar til ákvörðunar í þessu máli sbr. 1. tl. 11. greinar erindisbréfs innkaupanefndar. Þetta var skýrt út í upphafi fundar af lögfræðingi Kópavogsbæjar. Þá byggir túlkun í bókun á orðalagi á 12. grein erindisbréfs á misskilningi. Var einnig farið yfir það á fundinum. Valin innkaupleið, samkeppnisviðræður, er skýr og forsendur hennar vel rökstuddar í þeim gögnum sem fyrir liggja. Kostnaður þessa verks getur ekki orðið hærri en samþykkt fjárheimild Kópavogsbæjar leyfir."

Sveinn Gíslason, Sigvaldi Egill Lárusson og Þorvarður Hrafn Ásgeirsson


Bókun:

"Undirritaður telur að innkaupanefnd ætti með réttu að heita innkauparáð sé tekið tillit til valdheimilda skv. erindisbréfi."

Jóhann Már Sigurbjörnsson


Tillaga:

Innkaupanefnd samþykkir að halda áfram innkaupaferli samkeppnisviðræðna vegna verksins "Stúka við Aðalvöll HK í Kópavogi" og veitir heimild til þess að senda útboðsgögn til þátttakenda forvals fyrir samkeppnisviðræður sem metnir voru hæfir, enda rúmast framkvæmdin innan fjárhagsáætlunar.

Samþykkt með 4 atkvæðum gegn atkvæði Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur.

Bókun Sigurbjargar E. Egilsdóttur færð í trúnaðarbók þar til lokatilboðum hefur verið skilað.

05

Innkaupanefnd - 8. fundur

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar dags. 16.10.2025 lagt fram erindi þar sem óskað er eftir heimild innkaupanefndar fyrir auglýsingu fyrir þátttöku til samkeppnisviðræðna sbr. 33 gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 fyrir hönnun og byggingu knattspyrnuleikvangs við Kórinn.

Lagt fram til ákvörðunar.

Lagt fram til samþykktar. Umræður.

Gestur víkur af fundi kl. 16:27

Fundarhlé kl. 16:31

Fundur settur að nýju kl. 16:50

Umræður

Innkaupanefnd samþykkir, með 3 atkvæðum og hjásetu Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur og Jóhanns Más Sigurbjörnssonar, að veita umbeðna heimild til forvals fyrir samkeppnisviðræður á hönnun og byggingu knattspyrnuleikvangs við Kórinn, enda verkefnið á fjárhagsáætlun.