Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Íþróttaráð - 112. fundur

á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Jón Finnbogason - aðalmaður
  • Signý Sigurrós Skúladóttir - aðalmaður
  • Sverrir Kári Karlsson - aðalmaður
  • Hlín Bjarnadóttir - aðalmaður
  • Einar Örn Þorvarðarson - aðalmaður
  • Matthías Hjartarson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnar Guðmundsson - starfsmaður nefndar
  • Jón Júlíusson - íþróttafulltrúi
  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs

Ritari

  • Jón Júlíusson

Dagskrá fundar

Almenn mál

01

Samstarfsvettvangur íþróttafélaga í Kópavogi

Lögð fram drög að endurskoðuðum reglum, stuðlum og reglugerðum sem hafa verið í gildi frá því Samningur milli Kópavogsbæjar og Samstarfsvettvangs íþróttafélaga í Kópavogi var undirritaður árið 2017.

Afgreiðslu málsins frestað.

Stefnt að afgreiðslu málsins með rafrænum hætti milli funda.

Almenn mál

02

Tilraunasamningur um greiðslur vegna stuðningsaðila

Lagður fram til kynningar samningur milli velferðarsviðs og íþróttafélagsins Gerplu um stuðning við fötluð börn á fimleikaæfingum fyrir komandi starfsár.

Lagt fram til kynningar.

Íþróttaráð lýsir yfir ánægju sinni með það framtak sem felst í samningi þessum.

Almenn mál

03

Stefnumótun - nefndir ráð

Áframhaldandi umræða og vinna við stefnumótun bæjarins.

Fyrstu drög að stefnu Menntasviðs í skóla- frístunda- og íþróttamálum rýnd.

María Kristín Gylfadóttir verkefnastjóri stýrði hópavinnu ráðsis.