Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Jafnréttis- og mannréttindanefnd - 9. fundur

í Fannborg 4, fundarherbergi 2. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Erla Karlsdóttir - formaður
  • Lára Jóna Þorsteinsdóttir - aðalfulltrúi
  • Þorsteinn Ingimarsson - aðalfulltrúi
  • Helga Skúladóttir - varafulltrúi
  • Ása Arnfríður Kristjánsdóttir - starfsmaður nefndar

Ritari

  • Ása A. Kristjánsdóttir

Dagskrá fundar

01

Erindi frá foreldri vegna mismununar í grunnskólum Kópavogs

Jafnréttisráðgjafi aflaði upplýsinga frá grunnskólum Kópavogsbæjar og sóknum í sveitarfélaginu um skipulag fermingafræðslu og fermingaferðalaga vegna kvörtunar foreldris grunnskólabarns um að fermingaferðalög séu farin á skólatíma. Allir sóknarprestar svöruðu og svör bárust frá sjö af ellefu grunnskólum bæjarins. Þau voru lögð fram og rædd.

02

Athugun vegna þáttöku trúfélaga í aðventudagskrá grunnskóla í Kópavogi

Jafnréttisráðgjafi skrifaði öllum grunnskólum sveitarfélagsins og óskaði eftir upplýsingum um hvort nemendur færu í kirkjuheimsóknir á aðventunni eða hvort prestur væri fenginn í heimsókn. Þá var spurt hvað væri gert fyrir þá nemendur sem kysu ekki að taka þátt í undirbúningi jólanna í skólanum. Að lokum var spurt hvort sérstaklega væri gætt að þeim nemendum sem ekki tækju þátt í jólaundirbúningi eða kirkjuheimsóknum. Svör bárust frá fimm skólum af ellefu grunnskólum sveitarfélagsins. Þau voru lögð fram og rædd.

03

Tillaga um sameiginlega stefnu/áætlun til að sporna við einelti innan stofnana bæjarins

Allar nefndir sem komu að vinnslu áætlunarinnar hafa samþykkt hana fyrir sitt leyti. Áætlunin verður send bæjarráði Kópavogs til fullnaðarafgreiðslu.