Jafnréttis- og mannréttindaráð - 36. fundur
í Fannborg 2, 1. hæð, stærra fundarherbergi
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Ása Arnfríður Kristjánsdóttir - starfsmaður nefndar
- Ragnheiður Bóasdóttir - aðalfulltrúi
- Guðrún Hulda Eyþórsdóttir - aðalfulltrúi
- Lárus Axel Sigurjónsson - aðalfulltrúi
- Unnur Tryggvadóttir Flóvenz - aðalfulltrúi
- Amid Derayat - aðalfulltrúi
- Sigurbjörg Björgvinsdóttir - aðalfulltrúi
Ritari
- Ása A. Kristjánsdóttir
Dagskrá fundar
Farið yfir dagskrá og framkvæmd málþingsins 6. maí nk.
Jafnréttis- og mannréttindaráð samþykkir stefnuna fyrir sitt leyti og vísar henni til bæjarráðs til afgreiðslu.
Umsókn frá heimilisofbeldisteymi barnaverndar Kópavogs
Samþykkt er að veita umsækjanda styrk að fjárhæð kr. 300.000
Umsókn frá Winda, félags áhugafólks um pólska og íslenska menningu.
Afgreiðslu frestað. Jafnréttisráðgjafa er falið að kanna betur grundvöll fyrir veitingu styrks.
Umsókn frá þjónustudeild fatlaðs fólks, Velferðarsviði Kópavogs.
Ekki er unnt að verða við umsókninni.
Umsókn frá Nönnu Hlín Skúladóttur
Ekki er unnt að verða við umsókninni.
Jafnréttis- og mannréttindarað skorar á bæjaryfirvöld að fara að tilmælum ríkisstjórnar um að veita starfsfólki frí frá hádegi 19. júní nk.