Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Leikskólanefnd - 67. fundur

í fundarsal Fannborg 2, 2. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
  • Eiríkur Ólafsson - aðalfulltrúi
  • Jóhanna Heiðdal Sigurðardóttir - aðalfulltrúi
  • Gunnlaugur Snær Ólafsson - aðalfulltrúi
  • Signý Þórðardóttir - aðalfulltrúi
  • Helga María Hallgrímsdóttir - aðalfulltrúi
  • Sigurlaug Bjarnadóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Magnús Helgi Björgvinsson - aðalfulltrúi
  • Bergrún Ísleifsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Ritari

  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir

Dagskrá fundar

Almenn mál

01

Skemmtilegri leikskólalóðir.

Friðrik Baldursson, garðyrkjustjóri, kynnti vinnu við verkefnið "skemmtilegri leikskóla- og skólalóðir"

Almenn mál

02

Leikskóladeid-skipulagsdagar leikskóla,Aukinn samráðstími

Málið rætt. Nefndarmenn greiddu atkvæði sérstaklega um fyrri hluta erindis, að leikskólar í Kópavogi fái 4 tíma til viðbótar við 5 skipulagsdaga, vegna sameiginlegs vinnudags leikskóla og grunnskóla í Kópavogi sem áætlaður er 11. nóvember 2016, í tengslum við stefnumótun um læsi og lesskilning. Samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.$line$Seinni hluta erindis varðandi auka skipulagsdag hafnað með atkvæðagreiðslu; Signý Þórðardóttir greiddi atkvæði með erindinu, Eiríkur Ólafsson, Jóhanna Heiðdal og Gunnlaugur Ólafsson greiddu atkvæði gegn tillögunni, Magnús Björgvinsson sat hjá.$line$$line$Bókun: "Mikilvægt er að koma til móts við fagleg sjónarmið við skipulagningu leikskólastarfs með því að veita aukinn tíma til þess." Signý Þórðardóttir og Helga María Hallgrímsdóttir$line$Bókun: "Taka verður tillit til faglegra sjónarmiða, en einnig þarf að hafa í huga þarfir foreldra leikskólabarna. Stefna ber að því að foreldrar fái að hafa áhrif á framtíðarskipan skipulagsdaga hvort um sé að ræða 5 eða 6 daga á ári með virku íbúalýðræði." Eiríkur Ólafsson, Jóhanna Heiðdal og Gunnlaugur Snær Ólafsson