Samskiptareglur leik- og grunnskóla Kópavogs við aðila utan skólanna
Málsnúmer: 1301134
Ferill máls
01
Jafnréttis- og mannréttindaráð - 25. fundur
Jafnréttis- og mannréttindaráð samþykkir samskiptareglurnar fyrir sitt leyti.
02
Leikskólanefnd - 46. fundur
Leik- og grunnskóladeild vann samskiptareglurnar að beiðni jafnréttis- og mannréttindarnefndar og voru þær samþykktar í nefndum á vormisseri 2013. Bæjarstjórn óskaði eftir því á fundi sínum 14. maí 2013 að þær færu í ýtarlegra umsagnarferli eða til allra foreldra í Kópavogi. Nokkrar athugasemdir komu fram og hafa reglurnar verið endurskoðaðar í ljósi þeirra.
Leikskólanefnd samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti.
Sigurður Grétarsson bókar: "ég legg til að eftirfarandi verði bætt inn í reglurnar:"Trúboð í skólum og eða í ferðum á vegum skóla er alfarið bannað. Skilgreina þarf mörkin á milli trúboðs og fræðslu"
03
Skólanefnd - 69. fundur
Leik- og grunnskóladeild vann samskiptareglurnar að beiðni jafnréttis- og mannréttindaráðs og voru þær samþykktar í nefndum á vormisseri 2013. Bæjarstjórn óskaði eftir því á fundi sínum 14. maí 2013 að þær færu í ýtarlegra umsagnarferli eða til allra foreldra í Kópavogi. Nokkrar athugasemdir komu fram og hafa reglurnar verið endurskoðaðar í ljósi þeirra.
Skólanefnd samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til jafnréttis- og mannréttindaráðs.
04
Jafnréttis- og mannréttindanefnd - 20. fundur
Skólanefnd vísar samskiptareglum leik- og grunnskóla Kópavogs til jafnréttis- og mannréttindaráðs til umsagnar
Jafnréttis- og mannréttindaráð fagnar tilkomu samskiptareglna leik- og grunnskóla Kópavogs og samþykkir þær fyrir sitt leyti.
05
Bæjarstjórn - 1077. fundur
06
Leikskólanefnd - 38. fundur
Lagðar fram og ræddar. Sigurður Grétarsson óskar eftir leggja fram bókun (sjá fylgiskjal)
07
Skólanefnd - 57. fundur
Skil vinnuhóps um viðmiðunarreglur.
Skólanefnd samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti með breytingum og vísar þeim til jafnréttis- og mannréttindanefndar til umsagnar.
08
Skólanefnd - 53. fundur
Lagt fram.
Skólanefnd telur mikilvægt að sett séu víðtæk viðmið um aðkomu utanaðkomandi samtaka, félaga og fyrirtækja að skólastarfi. Skólanefnd felur grunnskóladeild menntasviðs að móta þessi viðmið í samráði við stjórnendur leik- og grunnskóla.