Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Leikskólanefnd - 179. fundur

á Digranesvegi 1, Fífuhvammur 1. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Heiðdís Geirsdóttir - formaður
  • Bergur Þorri Benjamínsson - varaformaður
  • Hannes Þ. Hafstein Þorvaldsson - aðalmaður
  • Hreiðar Oddsson - aðalmaður
  • María Ellen Steingrímsdóttir - aðalmaður
  • Eva Sjöfn Helgadóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Sigríður Kristín Sigurðardóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Aldís Sif Bjarnhéðinsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Erla Stefanía Magnúsdóttir - vara áheyrnarfulltrúi
  • Hákon Gunnarsson - vara áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari
  • Sigrún Hulda Jónsdóttir - starfsmaður menntasviðs

Ritari

  • Sigrún Hulda Jónsdóttir

Dagskrá fundar

Almenn mál

01

Sprotasjóður - Lausnahringur - leikskóladeild

Arnrún María Magnúsdóttir, ráðgjafi Lausnahringsins og Elín Guðrún Pálsdóttir, leikskólaráðgjafi kynna þróunarverkefnið "Lausnahringurinn í leikskóla Kópavogs" sem hlaut styrk úr Sprotasjóði 2026.

Leikskólanefnd óskar styrkhöfum til hamingju með styrkinn og þakkar fyrir kynningu á verkefninu.

Almenn mál

02

Innra mat leikskóla í Kópavogi

Kynning á stafrænu innra mati í leikskólum Kópavogs.

Leikskólanefnd fagnar því að innra mat verði starfrænt og stuðli að samræmdri gangnaöflun, bæta yfirsýn og eftirfylgni með gæðastarfi í leikskólum Kópavog.

Almenn mál

03

Skipulag skráningardaga í leikskóla 2026

Lagt fram til upplýsinga minnisblað um skipulag skráningardaga í dymbilviku 2026.

Lagt fram. Leikskólanefnd leggur áherslu á að Aðalþing veiti sömu þjónustu og aðrir leikskólar bæjarins hvað varðar skráningardaga.

Almenn mál

04

Leikskólinn Naustavör - tillaga útboði til einkareksturs

Lögð er fram til samþykktar tillaga um að leikskólinn Naustavör verði boðinn út til einkareksturs.

Fulltrúi Viðreisnar, Samfylkingar, Pírata og Vinir Kópavogs óska eftir fundarhlé kl 18:55-18:58.

Leikskólanefnd samþykkir samhljóða að leikskólinn Við Naustavör verði boðinn út til einkareksturs.

Almenn mál

05

Undirbúningur reksturs leik- og grunnskóla í Vatnsendahvarfi.

Viljayfirlýsing og minnisblað lögð fram til kynningar.

Lagt fram til upplýsinga.

Bókun:

Undirrituð harma að meirihluti Menntaráðs Kópavogs hafi tekið þá ákvörðun að bjóða ekki út rekstur leik og grunnskóla í Vatnsendahvarfi líkt og leikskólanefnd hefur tekið varðandi útboð einkareksturs leikskóla í Naustavör.

Fyrir hönd minnihluta

Hreiðar Oddsson

María Ellen Steingrímsdóttir

Bókun:

Meirihlutinn fagnar því að Kópavogsbær hyggist ganga til samninga við Skóla Ísaks Jónssonar um rekstur nýs samrekins leik- og grunnskóla í Vatnsendahvarfi. Meirihlutinn telur að tilkoma Ísaksskóla samræmist vel menntastefnu Kópavogsbæjar og verði mikilvæg viðbót við það öfluga skólasamfélag sem þegar er til staðar í Kópavogi.

Skóli Ísaks Jónssonar býr yfir áratugalangri reynslu af menntun yngstu barna og hefur sinnt markvissri kennslu fimm ára barna og nemenda á yngsta stigi grunnskóla frá stofnun hans árið 1926. Meirihlutinn er stoltur af því að skóli með slíka reynslu og þekkingu hafi sýnt áhuga á að útvíkka starfsemi sína og taka þátt í uppbyggingu skólastarfs í Kópavogi.

Heiðdís Geirsdóttir

Bergur Þorri Benjamínsson

Hannes Þ.Hafstein Þorvaldsson



Almenn mál

06

Leikskóladeild-þróunarsjóður

Vigdís Guðmundsdóttir, leikskólaráðgjafi, kynnir umsóknir sem bárust í þróunarsjóð leikskóla Kópavogs til úthlutunar 2026.

Erla Stefanía Magnúsdóttir fulltrúi leikskólastjóra vék af fundi við afgreiðslu málsins.

Leikskólanefnd samþykkir styrkveitingar í samræmi við niðurstöður fundarins og felur starfsmönnum leikskóladeildar afgreiðslu þeirra.

Almenn mál

07

Fyrirspurn um morgunverð í leikskólum Kópavogs

Erindi tekið inn með afbrigðum og lagt fram til umræðu.

Leikskólanefnd hvetur leikskólana til að hlusta á raddir foreldra varðandi óskir um morgunmat.