Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Undirbúningur reksturs leik- og grunnskóla í Vatnsendahvarfi.

Málsnúmer: 26022644

Ferill máls

01

Leikskólanefnd - 179. fundur

Viljayfirlýsing og minnisblað lögð fram til kynningar.

Lagt fram til upplýsinga.

Bókun:

Undirrituð harma að meirihluti Menntaráðs Kópavogs hafi tekið þá ákvörðun að bjóða ekki út rekstur leik og grunnskóla í Vatnsendahvarfi líkt og leikskólanefnd hefur tekið varðandi útboð einkareksturs leikskóla í Naustavör.

Fyrir hönd minnihluta

Hreiðar Oddsson

María Ellen Steingrímsdóttir

Bókun:

Meirihlutinn fagnar því að Kópavogsbær hyggist ganga til samninga við Skóla Ísaks Jónssonar um rekstur nýs samrekins leik- og grunnskóla í Vatnsendahvarfi. Meirihlutinn telur að tilkoma Ísaksskóla samræmist vel menntastefnu Kópavogsbæjar og verði mikilvæg viðbót við það öfluga skólasamfélag sem þegar er til staðar í Kópavogi.

Skóli Ísaks Jónssonar býr yfir áratugalangri reynslu af menntun yngstu barna og hefur sinnt markvissri kennslu fimm ára barna og nemenda á yngsta stigi grunnskóla frá stofnun hans árið 1926. Meirihlutinn er stoltur af því að skóli með slíka reynslu og þekkingu hafi sýnt áhuga á að útvíkka starfsemi sína og taka þátt í uppbyggingu skólastarfs í Kópavogi.

Heiðdís Geirsdóttir

Bergur Þorri Benjamínsson

Hannes Þ.Hafstein Þorvaldsson



02

Bæjarstjórn - 1336. fundur

Minnisblað varðandi undirbúning reksturs samrekins leik- og grunnskóla í Vatnsendahvarfi lagt fram.

Viljayfirlýsing lögð fram til samþykktar.

Fundarhlé hófst kl. 16:47, fundi fram haldið kl. 17:28.

Tillaga:

Bæjarstjórn samþykkir að auglýsa opinberlega eftir áhugasömum sjálfstætt starfandi skólum sem fullnægja málefnalegum kröfum bæjarins til samstarfs um áformaðan samrekinn leik- og grunnskóla í Vatnsendahvarfi. Kópavogsbær mun leggja til og vera eigandi að skólahúsnæðinu sem og þeim búnaði sem bærinn leggur til. Reiknað húsnæðisframlag mun koma á móti reiknaðri leigu. Framlag Kópavogsbæjar til þjónustusamningsins byggist á að ekki verði innheimt skólagjöld í skólanum.

Greinargerð:

Almenna reglan er sú að sveitarfélög auglýsi með opinberum hætti fyrirhugaða samninga um verk, vöru eða þjónustu, sem fleiri en einn aðili geta veitt. Þannig gefst öllum sem fullnægja kröfum færi á að upplýsa um þekkingu sína, reynslu og hæfni til að takast á við verkefnið. Það er í samræmi við grundvallareglur stjórnsýsluréttar um jafnræði og sjónarmið um vandaða stjórnsýsluhætti. Nokkrir sjálfstætt starfandi skólar annast skólastarf samkvæmt þjónustusamningum við einstök sveitarfélög. Búast má við að einhverjir úr þeim flokki myndu lýsa áhuga á að eiga viðræður við Kópavogsbæ um þjónustu sína. Með opinberri auglýsingu er unnt að tryggja út frá málefnalegum sjónarmiðum að þeir gefi sig fram sem áhuga hafa og telja sig geta nýtt mjög verðmætt tækifæri til nýsköpunar í skólastarfi í Kópavogi.

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir

Helga Jónsdóttir

Theódóra S. Þorsteinsdóttir

Bergljót Kristinsdóttir

Þórarinn Ævarsson

Bæjarstjórn hafnar tillögunni með 6 atkvæðum gegn atkvæðum Sigurbjargar E. Egilsdóttur, Helgu Jónsdóttur, Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Bergljótar Kristinsdóttur og Þórarins Ævarssonar


Bæjarstjórn samþykkir með 6 atkvæðum og hjásetu Sigurbjargar E. Egilsdóttur, Helgu Jónsdóttur, Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Bergljótar Kristinsdóttur og Þórarins Ævarssonar drög að viljayfirlýsingu á milli Kópavogsbæjar og Skóla Ísaks Jónssonar ses.

Bókun:

"Meirihlutinn sér ekki tilefni til þess að hverfa frá viljayfirslýsingunni og leggur til að gengið verði til samningaviðræðna við Ísaksskóla.

Við fögnum því að Kópavogsbær hyggst ganga til samninga við Skóla Ísaks Jónssonar, skóli sem hefur 100 ára sögu og sterka hefð. Tilkoma Ísaksskóla samræmist vel menntastefnu Kópavogsbæjar og verði mikilvæg viðbót við það öfluga skólasamfélag sem þegar er til staðar í Kópavogi.

Meirihlutinn er stoltur af því að skóli með slíka reynslu hafi áhuga á að útvíkka starfsemi sína í fyrsta skipti og kýs að horfa til Kópavogs."

Ásdis Kristjánsdóttir

Orri V. Hlöðversson

Hjördís Ýr Johnson

Andri S. HIlmarsson

Elísabet B. Sveinsdóttir

Gunnar Sær Ragnarsson

03

Bæjarráð - 3250. fundur

Minnisblað varðandi undirbúning reksturs samrekins leik- og grunnskóla í Vatnsendahvarfi lagt fram.

Viljayfirlýsing lögð fram til samþykktar.

Umræður

Fundarhlé hófst kl. 8:55, fundi fram haldið kl. 9:52

Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum og hjásetu Einars A. Þorvarðarsonar og Helgu Jónsdóttur framlögð drög að viljayfirlýsingu á milli Kópavogsbæjar og Skóla Ísaks Jónssonar ses. og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.

Bókun:

Efni fyrirliggjandi viljayfirlýsingar felur í sér ráðstöfun mjög mikilla verðmæta af hálfu Kópavogsbæjar. Við ráðstöfun takmarkaðra gæða er Kópavogsbæ skylt að gæta ákvæða stjórnsýslulaga m.a. um jafnræði, lögmæti og gagnsæi áður en gengið er til samningaviðræðna við einn ákveðinn aðila. Bæjastjóri gekk til slíkra viðræðna án nokkurrar vitneskju eða heimildar bæjarráðs.

Einar Örn Þorvarðarson

Hákon Gunnarsson

Helga Jónsdóttir

Indriði Ingi Stefánsson

Hákon Gunnarsson vék af fundi kl. 9:10.


Bókun:

"Meirihluti bæjarráðs fagnar vilja beggja aðila til samstarfs vegna fyrirhugaðs reksturs samrekins leik- og grunnskóla í Vatnsendahvarfi. Þetta er jákvætt og mikilvægt skref í uppbyggingu skólaþjónustu og stuðlar að fjölbreyttum lausnum og auknu framboði í menntamálum.

Viljayfirlýsing þessi er ekki lögformlega bindandi samningur um rekstur eða fjárskuldbindingar milli aðila, heldur lýsing á ásetningi þeirra til að hefja formlegar viðræður og samstarf um ofangreint verkefni af heilindum."

Ásdís Kristjánsdóttir

Orri V. Hlöðversson

Hjördís Ýr Johnson

Andri S. Hilmarsson


Bókun:

"Viljayfirlýsingin útilokar að aðrir komi að verkefninu. Afstaða okkar ræðst ekki af viðhorfi til viðsemjandans heldur viljum við að sveitarfélagið Kópavogur standi vörð um meginreglur stjórnsýslulaga."

Einar Örn Þorvarðarson

Helga Jónsdóttir

Indriði Ingi Stefánsson


Bókun:

"Samkvæmt lögum er sveitarfélögum heimilt að fela sjálfstæðum aðila rekstur skóla á grundvelli þjónustusamnings og velja sér samstarfsaðila við slíkt verkefni. Að sjálfsögðu verður gætt að því í ferlinu sem framundan er að góðum stjórnsýsluháttum verði áfram fylgt."

Ásdís Kristjánsdóttir

Orri V. Hlöðversson

Hjördís Ýr Johnson

Andri S. Hilmarsson


Bókun:

"Við drögum ekki í efa heimild Kópavogsbæjar til að fela sjálfstæðum aðila rekstur skóla á grundvelli þjónustusamnings. Sú heimild er þó bundin því að í upphafi sé kannað hvort fleiri aðilar en einn geti komið til móts við skilgreindar þarfir bæjarins."

Einar Örn Þorvarðarson

Helga Jónsdóttir

Indriði Ingi Stefánsson

04

Menntaráð - 159. fundur

Minnisblað varðandi undirbúning reksturs samrekins leik- og grunnskóla í Vatnsendahvarfi lagt fram.

Viljayfirlýsing lögð fram til samþykktar.

Pálmi Þór Másson, Steinn Sigríðar Finnbogason og Sindri Sveinsson víkja af fundi kl. 18:45.

Umræður

Fundarhlé hófst kl. 18:45, fundi fram haldið kl. 19:10.

Dagskrártillaga:

“Lagt er til að málinu verði frestað til næsta fundar menntaráðs."

Björn Þór Rögnvaldsson

Hreiðar Oddsson

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir.

Dagskrártillögu um frestun hafnað með fjórum atkvæðum gegn atkvæðum Björns Þór Rögnvaldssonar, Hreiðars Oddssonar og Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur.

Bókun:

"Undirrituð telja ekki tímabært að undirrita viljayfirlýsingu um rekstur nýs skóla í Vatnsendahvarfi á þessu stigi máls. Ekki liggja fyrir nauðsynlegar valkostagreiningar og ekki hefur verið gerð fullnægjandi grein fyrir samningsmarkmiðum sveitarfélagsins. Því liggja ekki fyrir þær upplýsingar sem þarf til að meta hvort að það að fara í umræddar viðræður sé gert á málefnalegum og faglegu grunni.

Jafnframt er það verulegt áhyggjuefni að sveitarfélagið skuli ganga til viðræðna við einn tiltekinn aðila án þess að öðrum hafi verið gefinn kostur á að koma að borðinu. Með því er ekki aðeins komið í veg fyrir að hægt sé að bera saman ólíkar leiðir áður en afstaða er tekin, heldur vakna einnig spurningar um hvort jafnræðis sé gætt með fullnægjandi hætti við undirbúning málsins. Undirrituð telja því að áður en til undirritunar viljayfirlýsingar kemur þurfi að liggja fyrir opnari og vandaðri undirbúningur málsins.

Björn Þór Rögnvaldsson

Hreiðar Oddsson

María Ellen Steingrímsdóttir

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir


Bókun:

“Meirihlutinn fagnar því að Kópavogsbær hyggst ganga til samninga við Skóla Ísaks Jónssonar um rekstur nýs samrekins leik- og grunnskóla í Vatnsendahvarfi. Meirihlutinn telur að tilkoma Ísaksskóla samræmist vel menntastefnu Kópavogsbæjar og verði mikilvæg viðbót við það öfluga skólasamfélag sem þegar er til staðar í Kópavogi.

Skóli Ísaks Jónssonar býr yfir áratugalangri reynslu af menntun yngstu barna og hefur sinnt markvissri kennslu fimm ára barna og nemenda á yngsta stigi grunnskóla frá stofnun hans árið 1926. Meirihlutinn er stoltur af því að skóli með slíka reynslu og þekkingu hafi sýnt áhuga á að útvíkka starfsemi sína og taka þátt í uppbyggingu skólastarfs í Kópavogi.

Hanna Carla Jóhannsdóttir

Hildur Karen Sveinbjarnardóttir

Jónas H. T. Einarsson

Hjördís Einarsdóttir


Menntaráð samþykkir fyrir sitt leyti viljayfirlýsingu milli Kópavogsbæjar og Skóla Ísaks Jónssonar ses. með fjórum atkvæðum og hjásetu Björns Þórs Rögnvaldssonar, Hreiðars Oddssonar og Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur og vísar málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar til afgreiðslu.

05

Menntaráð - 158. fundur

Lagt fram til upplýsinga erindi frá bæjarstjóra dags. 27. febrúar 2026, vegna mögulegs rekstrarfyrirkomulags samrekins leik- og grunnskóla í Vatnsendahvarfi.

Lagt fram til kynningar.

Umræður.

Bókun:

Menntaráð þakkar bæjarstjóra fyrir veittar upplýsingar. Jafnframt er óskað eftir því að menntasvið taki saman minnisblað um helstu álitaefni, kosti og galla, er felast í því að gera samning við sjálfstætt starfandi rekstraraðila á grunnskóla í Vatnsendahvarfi.

Minnisblaðið verði lagt formlega fyrir menntaráð til frekari umfjöllunar.