Leikskóladeild-þróunarsjóður
Málsnúmer: 1911584
Ferill máls
01
Leikskólanefnd - 179. fundur
Vigdís Guðmundsdóttir, leikskólaráðgjafi, kynnir umsóknir sem bárust í þróunarsjóð leikskóla Kópavogs til úthlutunar 2026.
Erla Stefanía Magnúsdóttir fulltrúi leikskólastjóra vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Leikskólanefnd samþykkir styrkveitingar í samræmi við niðurstöður fundarins og felur starfsmönnum leikskóladeildar afgreiðslu þeirra.
02
Bæjarráð - 3239. fundur
Anna Guðrún Jensdóttir,sérkennslustjóri í leikskólanum Dal, Ragnheiður Gróa Hafsteinsdóttir, sérkennslustjóri í leikskólanum Austurkór og Sigríður Kristín Sigurðardóttir, sérkennslustjóri í leikskólanum Kópahvoli og Svanhvít Friðriksdóttir, aðstoðarleikskólastjóri í leikskólanum Austurkór kynna þróunarverkefnið "Allir með".
03
Leikskólanefnd - 175. fundur
Anna Guðrún Jensdóttir,sérkennslustjóri í leikskólanum Dal, Ragnheiður Gróa Hafsteinsdóttir, sérkennslustjóri í leikskólanum Austurkór og Sigríður Kristín Sigurðardóttir, sérkennslustjóri í leikskólanum Kópahvoli og Svanhvít Friðriksdóttir, aðstoðarleikskólastjóri í leikskólanum Austurkór kynna þróunarverkefnið "Allir með".
Leikskólanefnd þakkar fyrir góða kynningu á þróunarverkefninu "Allir með" og óskar höfundum til hamingju með frábæra vinnu.
Gestir fóru 17:30
04
Leikskólanefnd - 171. fundur
Kynning á þróunarverkefni Fögrubrekku "Skapandi verkefni um veður".
Leikskólanefnd þakkar fyrir greinagóða kynningu. Gaman verður að fylgjast með heimasíðu verkefnisins og óskar leikskólanefnd starfsfólki Fögrubrekku til hamingju með árangurinn.
Gestir: Edda Valsdóttir, leikskólastjóri og Asako Ichihashi, sérgreinastjóri - mæting:17:00
Gestir véku af fundi kl. 17:15
05
Leikskólanefnd - 165. fundur
Lagt fram.
Sigríður Kristín Sigurðardóttir sérkennslustjóri og Stefanía Finnbogadóttir aðstoðarleikskólastjóri kynntu þróunarverkefnið Skráningarform vegna Hæfniramma fyrir fjöltyngd börn í leikskóla. Nefndin lýsir yfir mikilli ánægju með verkefnið og sér fram á að hægt sé að nota það sem víðast.
06
Leikskólanefnd - 165. fundur
Lagt fram.
Rakel Ýr Ísaksen aðstoðarleikskólastjóri kynnti þróunarverkefnið Innra mat leikskólans Álfaheiðar - fundardagatal og gátlisti. Nefndin þakkar fyrir góða kynningu.
07
Leikskólanefnd - 165. fundur
Lagt fram.
Inga Sif Gísladóttir sérgreinastjóri í Fífusölum kynntu þróunarverkefnið Námsáætlun leikskólans Fífusala. Nefndin lýsir yfir ánægju með kynninguna og þá vinnu sem hefur verið unnin.
08
Leikskólanefnd - 165. fundur
Lagt fram.
Sonja M. Halldórsdóttir aðstoðarleikskólastjóri í Dal kynni þróunarverkefnið Mat barna í leikskólanum Dal. Nefndin þakkar fyrir góða kynningu.
09
Leikskólanefnd - 164. fundur
Lagt fram.
Gunnhildur og Ingibjörg leikskólakennarar í Urðarhóli kynntu þróunarverkefnið Krakkakúnst.
10
Leikskólanefnd - 163. fundur
Lagt fyrir beiðnir fjögurra leikskóla um styrk úr þróunarsjóði leikskóla Kópavogs.
Sótt var um styrki fyrir fjögur verkefni í þróunarsjóð leikskóla Kópavogs. Að undangenginni kynningu á verkefnum samþykkir leikskólanefnd að úthluta styrkjum til verkefnanna fjögurra.
11
Leikskólanefnd - 157. fundur
Leikskólastjóri Rjúpnahæðar kynnir niðurstöðu þróunarverkefnisins.
Hrönn Valentínusardóttir leikskólastjóri kynnti niðurstöðu þróunarverkefnisins Túlkun barna á friði. Þökkum einnig fyrir áhugaverða og góða kynningu á starfsáttum og stefnu leikskólans. Í lok kynningar afhenti leikskólastjóri deildarstjóra leikskóladeildar bókina Börn og friður sem er afreksur þróunarverkefnsins.
12
Leikskólanefnd - 157. fundur
Leikskólastjóri Marbakka Alda Agnes Sveinsdóttir kynnir niðurstöðu verkefnis.
Alda Agnes Sveinsdóttir leikskólastjóri og Steinunn Jónsdóttir aðstoðarleikskólastjóri fóru yfir niðurstöðu þróunarverkefnisins Faglegt lærdómssamfélag með áherslu á teymisvinnu. Þökkum áhugaverða á mjög áhugaverðu verkefni og góða kynningu.
13
Leikskólanefnd - 153. fundur
Tillaga lögð fram um styrkþega úr þróunarsjóði leikskóla.
Leikskólanefnd samþykkir tillöguna.
14
Leikskólanefnd - 140. fundur
Tillaga lögð fram um styrkþega úr þróunarsjóði leikskóla.
Leikskólanefnd þakkar metnaðarfullar og góðar umsóknir og samþykkir tillögu að styrkveitingu fyrir sitt leiti, um styrk úr þróunarsjóð Kópavogs fyrir skólaárið 2022-2023.
Verkefnin eru mjög metnaðarfull og áhugaverð fyrir leikskólastarfið í þessum leikskólum, sem og öðrum leikskólum í Kópavogi.
15
Leikskólanefnd - 137. fundur
Vigdís Guðmundsdóttir segir frá hvernig gengur innleiðing réttindaleikskóla UNICEF
Leikskólanefnd þakkar Vigdísi Guðmundsdóttir leikskólaráðgjafa fyrir greinagóðar upplýsingar um innleiðingu á Réttindaleikskóla verkefni UNICEF.
16
Leikskólanefnd - 128. fundur
Vigdís Guðmundsdóttir upplýsir um hvernig gengur að innleiða réttindaleikskóla UNICEF, sem hlaut styrk úr þróunarsjóð fyrir starfsárið 2020.
Leikskólanefnd þakkar Vigdísi fyrir greinagóða lýsingu á framgangi verkefnisins, sem lýsir vel hvar þetta áhugaverða verkefnið er statt í innleiðingunni. Einnig kom skýrt fram hvert markmiðið með innleiðingu verkefnisins er, þ.e. að gera starfsmenn leikskólanna betur í stakk búið til að gera innihald Barnasáttmálans að rauðum þræði í öllu starfi leikskólans. Það er áhugavert og sennandi að Kópavogsbær verði eitt af fyrstu sveitarfélögum í heiminum til að verða réttindaleikskóli UNICEF
17
Leikskólanefnd - 128. fundur
Leikskólastjóri Fögrabrekku og leikskólakennarar í Urðarhóli munu kynna verkefnin sem leikskólarnir eru að sækja um styrki, úr þróunarsjóði leikskóla.
Leikskólanefnd þakkar leikskólunum Fögrabrekku og Urðarhóli fyrir greinagóða og upplýsandi kynningu á verkefnum sínum og samþykkir fyrir sitt leiti beiðnina um styrk úr þróunarsjóð Kópavogs fyrir skólaárið 2021-2022.
Verkefnin eru mjög metnaðarfull og áhugaverð fyrir leikskólastarfið í þessum leikskólum, sem og öðrum leikskólum í Kópavogi.
18
Leikskólanefnd - 126. fundur
Birte Harkesen leikskólakennari í Urðarhóli kynnir verkefnin Leikur að bókum, Stafagaldur og leikmiðaða starfshætti í leikskólum með vefsvæðunum Börn og tónlist.
Leikskólanefnd þakkar Birte Harkesen fyrir góða kynningu á framsæknum verkefnum sem hún hefur verið að vinna að í samstarfi við leikskólann Urðarhól.
19
Leikskólanefnd - 124. fundur
Tillaga að breytingum á reglum um styrki vegna þróunar- og nýbreytniverkefna í leikskólum Kópavogs. Lagt fram til samþykktar.
Tillaga að breytingu á reglum um styrki vegna þróunar- og nýbreytniverkefna í leikskólum Kópavogs samþykkt.
20
Leikskólanefnd - 115. fundur
Kynning á innleiðingu réttindaleikskóla UNICEF
Anna Birna sviðsstjóri menntasviðs og Sigurlaug deildarstjóri leikskóladeildar kynntu fyrirhugaða innleiðingu réttindaleikskóla UNICEF.
21
Leikskólanefnd - 113. fundur
Umsóknir frá leikskólum í Kópavogi um styrk úr þróunarsjóði leikskóla.
Leikskólanefnd samþykkir tillöguna.