Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Lista- og menningarráð - 58. fundur

í Fannborg 2, 1. hæð, stærra fundarherbergi

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalfulltrúi
  • Björg Baldursdóttir - aðalfulltrúi
  • Þuríður Backman - áheyrnarfulltrúi
  • Sigurður Sigurbjörnsson - aðalfulltrúi
  • Auður Cela Sigrúnardóttir - aðalfulltrúi
  • Þórunn Sigurðardóttir - aðalfulltrúi

Ritari

  • Arna Schram

Dagskrá fundar

01

Bæjarlistamaður Kópavogs 2015-2016.

Bæjarlistamaður Kópavogs, Jón Adolf Steinólfsson, gerir ráðinu grein fyrir störfum sínum á liðnu ári og fyrirhugaðri sýningu.

Lista- og menningarráð fagnar góðu samstarfi við bæjarlistamanninn Jón Adolf Steinólfsson en leiðarljósið í vinnu hans er jákvæð hugsun og skapandi verkefni. Afrakstur vinnu hans og nemenda í tréútskurði verður sýndur 11. maí, í menningarhúsum bæjarins, á afmælisdegi Kópavogsbæjar. Starf hans með börnum og ungmennum fellur vel að nýrri menningarstefnu bæjarins en þar er rík áhersla lögð á menningarfræðslu.$line$$line$

02

Menningarstefna Kópavogs.

Áframhaldandi vinna við aðgerðaráætlun 2016 og næstu ára.

Samþykkt að verja 5,9 milljónum kr. í Óperudaga í Kópavogi, sem kemur í stað Kópavogsdaga í ár.

03

Skipulagsskrá fyrir Stofnun Wilhelms Beckmann

Tilnefning Kópavogsbæjar í stjórn og varastjórn.

Lísa Z. Valdimarsdóttir, forstöðumaður Bókasafns Kópavogs, er tilnefnd af lista- og menningarráði í stjórn stofnunar Wilhelms Beckmann. Hrafn A. Harðarson er tilnefndur sem varamaður hennar.

04

Erindisbréf lista- og menningarráðs

Uppfært erindisbréf lagt fram til kynningar en láðst hafði að endurnýja erindisbréfið þegar nafni nefndarinnar var breytt á sínum tíma og Listhúsið stofnað.