Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Bæjarlistamaður Kópavogs og heiðurslistamaður Kópavogs

Málsnúmer: 1505226

Ferill máls

01

Lista- og menningarráð - 62. fundur

Ráðið fer yfir tímasetningu og umfang viðburðar þegar útnefningar eru tilkynntar. Jafnframt farið yfir tillögu að verkefni bæjarlistamanns.

Útnefning verður 2. september. Ráðið óskar útnefndum einstaklingum til hamingju með heiðurinn.

02

Lista- og menningarráð - 61. fundur

Útnefndur bæjarlistamaður mætir fyrir ráðið.

Ráðið ákveður að formleg útnefning bæjarlistamanns og heiðurslistamanns fari fram 17. júní.

03

Lista- og menningarráð - 60. fundur

Ráðið fer yfir hugmyndir og tillögur.

Bæjarlistamaður er valinn en útnefning verður gerð opinber síðar.

04

Lista- og menningarráð - 59. fundur

Fimm umsóknir bárust en auglýst var eftir umsóknum og tillögum í byrjun apríl. Ráðið fer yfir umsóknir og tilnefningar.

Heiðurslistamaður er valinn en útnefning verður gerð opinber síðar. Jafnframt ákveðið að kalla eftir frekari tillögum að verkefnum frá mögulegum bæjarlistamönnum.

05

Lista- og menningarráð - 58. fundur

Bæjarlistamaður Kópavogs, Jón Adolf Steinólfsson, gerir ráðinu grein fyrir störfum sínum á liðnu ári og fyrirhugaðri sýningu.

Lista- og menningarráð fagnar góðu samstarfi við bæjarlistamanninn Jón Adolf Steinólfsson en leiðarljósið í vinnu hans er jákvæð hugsun og skapandi verkefni. Afrakstur vinnu hans og nemenda í tréútskurði verður sýndur 11. maí, í menningarhúsum bæjarins, á afmælisdegi Kópavogsbæjar. Starf hans með börnum og ungmennum fellur vel að nýrri menningarstefnu bæjarins en þar er rík áhersla lögð á menningarfræðslu.$line$$line$

06

Lista- og menningarráð - 45. fundur

Ráðið ræðir hvenær tilkynna á útnefningarnar.

Stefnt að því að útnefningar fari fram í ágúst.

07

Lista- og menningarráð - 44. fundur

Ráðið fundar með tilnefndum bæjarlistamanni þar sem farið var yfir drög að samningi um verkefni.

Samningur um verkefni bæjarlistamanns framundan verður frágenginn og undirritaður í ágúst.

08

Lista- og menningarráð - 43. fundur

Ráðið fjallar um málið áfram og fer yfir umsóknir.

Ákvörðun tekin um bæjarlistamann. Útnefning tilkynnt síðar.

09

Lista- og menningarráð - 42. fundur

Ráðið fór yfir umsóknir og tilnefningar.

Ráðið frestar afgreiðslu málsins.