Lista- og menningarráð - 361. fundur
í Fannborg 2, 2. hæð Litli salur
Mætt til fundar
Ritari
- Una Eydís Finnsdóttir
Dagskrá fundar
Inga Kristjánsdóttir, deildarstjóri barna- og unglingadeildar Bókasafns Kópavogs mætti á fundinn.

Inga fór yfir helstu atriði á dagskrá vetrarins hjá Bókasafninu. Dagskráin er fjölbreytt yfir árið og af mörgu að taka. Mikið samstarf er á milli Náttúrufræðistofu Kópavogs og bókasafnsins.

Ráðið beinir því til bæjarráðs að settur verði á fót undirbúningshópur vegna nýs útibús bókasafnsins í Kórum.

Inga fór af fundi.
Hilmar Malmquist forstöðumaður Náttúrufræðistofu Kópavogs kom inn á fundinn.

Hilmar kynnti málefni náttúrufræðistofu Kópavogs fyrir ráðinu og lagði fram ársskýrslu Náttúrufræðistofu Kópavogs frá árinu 2009. Hann sagði frá Kópavogsdögum, sýningum í safninu, t.d. næstu sýningu sem nefnist Timburmenn. Einnig kynnti hann hina ýmsu fræðslu sem er á vegum safnsins, t.d. um fugla í Ríkisútvarpinu. Samstarf við ýmsa aðila í ferskvatnsrannsóknum. Væntanlegt samstarf við aðila á vegum umhverfisráðuneytisins við rannsóknir á Okinu.

Hilmar fór af fundinum.
Guðbjörg Kristjánsdóttir forstöðumaður Listasafns Kópavogs - Gerðarsafns kom inn á fundinn.

Guðbjörg lagði fram ársskýrslu safnsins fyrir árið 2009, og sagði frá helstu hlutverkum safnsins. Hún greindi frá gjöf sem safninu barst, verk Valgerðar Briem. Hún sagði einnig frá safneign á verkum Gerðar Helgadóttur og því kynningarstarfi sem á sér stað á hennar verkum. Von er á nýrri bók um Gerði á næstunni. Hún greindi frá helstu sýningum á árinu, auk sölu á safnbúðarmunum. Guðbjörg greindi frá hinum ýmsu styrkjum sem safnið fær til forvinnslu á listmunum.

Guðbjörg fór af fundi.
Andri Þór Lefever forstöðumaður Menningarhúss ungs fólks - Molans kom inn á fundinn.

Andri greindi frá starfsemi Molans - ungmennahúss og helstu markmiðum stofnunarinnar. Hann greindi frá því sem þar fer fram og þeirri aðstöðu sem ungmennum býðst. Einnig var rætt um hugmyndafræðina á bak við ungmennahúsið og því hvernig vel hefur tekist að fá breiðan hóp fólks inn í húsið.

Andri Þór fór af fundi.
Elísabet Sveinsdóttir forstöðumaður Tónlistarhúss Kópavogs - Salarins kom inn á fundinn.

Elísabet kynnti starfsemi og tónleikahald í tónlistarhúsi bæjarins, Salnum.

Elísabet fór af fundinum.
Hrafn Sveinbjarnarson forstöðumaður Héraðsskjalasafns Kópavogs kom inn á fundinn.

Hrafn greindi frá starfsemi héraðsskjalasafnsins, skyldum þess og vinnureglum. Safnið geymir skjöl af ýmsum toga, ljósmyndir, myndbönd, bækur, bréf og fleira. Stærsti þátturinn í safninu er skjalasafn bæjarins. Hrafn sýndi ráðinu ársrit safnsins, þar sem safnkostinum er lýst og í eru einnig greinar um bæinn.

Hrafn fór af fundi.

Lögð var fram menningarstefna Kópavogs, sem fyrri ráð hafa unnið að. Stefnt er að endurskoðun á stefnunni á haustmánuðum.

08
Afrika-Lole óskar eftir verkefnis- og viðburðastyrk vegna guineskrar hátíðar á SPOT í október 2010.

Erindinu er frestað til styrkúthlutunar í nóvember 2010.