Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Lista- og menningarráð - 53. fundur

í Fannborg 2, 1. hæð, stærra fundarherbergi

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalfulltrúi
  • Björg Baldursdóttir - aðalfulltrúi
  • Þuríður Backman - aðalfulltrúi
  • Sigurður Sigurbjörnsson - aðalfulltrúi
  • Auður Cela Sigrúnardóttir - aðalfulltrúi

Ritari

  • Arna Schram

Dagskrá fundar

01

Menningarstyrkir

Listi yfir styrkumsóknir lagður fram en hátt í 30 umsóknir bárust. Umsóknarfrestur rann út 22. desember en hann var auglýstur á vef bæjarins og á vefjum menningarhúsanna.

Stefnt að því að umsóknir verði afgreiddar í næstu viku.

02

Náttúrufræðistofa Kópavogs. Margmiðlunarvæðing náttúrugripasafns.

Hugmyndir kynntar að áfangaskiptingu verkefnisins.

Ráðið ítrekar óskir sínar um að verkefnið verði kynnt bæjarráði sem fyrst.

03

Menningarhús Kópavogs: Ímynd, ásýnd og markaðsmál

Lýsing við menningarhús Kópavogs

Lista- og menningarráð beinir því til umhverfis- og samgöngunefndar að hún taki þátt í því með lista- og menningarráði að bæta lýsingu við menningarhús Kópavogs, til að bæta aðgengi og öryggi við húsin, ekki síst á dimmum vetrarmánuðum.

04

Menningarstefna Kópavogs og starfsemi menningarhúsa.

Forstöðumaður Listhúss Kópavogsbæjar leggur fram yfirlitsskýrslu yfir menningarstarf á vegum bæjarins á árinu 2015.