Menningarhús Kópavogs. Ímynd, umhverfi og markaðsmál
Málsnúmer: 1510254
Ferill máls
01
Lista- og menningarráð - 74. fundur
Karl Eðvaldsson, deildarstjóri gatnadeildar, kynnir hugmyndir frá Eflu verkfræðistofu að lýsingu á svæðinu við menningarhúsin.
Lista- og menningarráð fagnar þeim tillögum sem komnar eru fram um lýsingu á svæði milli menningarhúsanna. Er hún til mikilla bóta og mun lýsingin draga athygli að fallegum byggingum menningarhúsanna og styrkja þau enn frekar í að vera eitt af kennileitum Kópavogsbæjar.
02
Lista- og menningarráð - 70. fundur
Forstöðumaður menningarmála hjá Kópavogsbæ hefur sagt starfi sínu lausu og tekur á næstunni við starfi sviðsstjóra menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar.
Lista- og menningarráð óskar Örnu Schram til hamingju og velfarnaðar í nýju starfi hjá Reykjavíkurborg. Ráðið þakkar gott samstarf og vel unnin störf í þágu menningar og listalífs í Kópavogi.
03
Lista- og menningarráð - 67. fundur
Öryggismál og lýsing á svæði Menningarhúsa Kópavogsbæjar
Rætt um nauðsyn þess að lýsa upp svæðið í takt við starfsemi svæðisins og útlit húsanna. Formanni nefndarinnar falið að hafa samband við sviðsstjóra umhverfissviðs.
04
Lista- og menningarráð - 66. fundur
Forstöðumaður menningarmála í Kópavogi leggur fram yfirlitsskýrslu um starfsemi menningarmála á vegum Kópavogsbæjar árið 2016.
Nefndin þakkar fyrir greinargóða skýrslu um menningarstarf Kópavogsbæjar á árinu 2016. Starfið er fjölbreytt, metnaðarfullt og vel í takti við samþykkta menningarstefnu. Undanfarin ár hefur orðið mikil ásýndarbreyting á menningarmálum í Kópavogi til hins betra. Kristallast það í frábæru og sýnilegu starfi starfsfólks sem hefur lagt sig fram og sinnt þessum málaflokki af miklum myndarbrag undir styrkri stjórn Örnu Schram.
05
Lista- og menningarráð - 66. fundur
Verkefnastjóri menningarfræðslu kynnir málefni barnamenningarfræðslu hjá Menningarhúsum í Kópavogi.
Nefndin þakkar Ólöfu Breiðfjörð fyrir kynningu á metnaðarfullri menningardagskrá fyrir börn og ungmenni í Kópavogi og telur að starfið sé faglega unnið og í samræmi við menningarstefnu bæjarins.
06
Lista- og menningarráð - 62. fundur
Lista- og menningarráð ræðir framhald ályktunar um lýsingu í og við Menningarhús Kópavogs.
Lista- og menningarráð óskar eftir að leitað verði tilboða í hönnun og lýsingu við Menningarhús Kópavogs í samráði við innkaupafulltrúa bæjarins.
07
Lista- og menningarráð - 55. fundur
Forstöðumaður Listhúss greinir frá ímyndarvinnu, vegna markaðssetningar menningarhúsanna, sem átt hefur sér stað frá samþykkt menningarstefnu Kópavogsbæjar. Verið er að taka útlit í gegn og samræma það og stefnt að því að bæta merkingar á svæðinu samkvæmt hinu nýja heildarútliti. Einnig fór hún yfir samstarf við umhverfis- og samgöngunefnd um lýsingu og fl á svæðinu.
Ráðið þakkar yfirferðina.
08
Umhverfis- og samgöngunefnd - 73. fundur
Frá 53. fundi Lista- og menningarráðs 14.1.2016.$line$Lýsing við menningarhús Kópavogs$line$Lista- og menningarráð beinir því til umhverfis- og samgöngunefndar að hún taki þátt í því með lista- og menningarráði að bæta lýsingu við menningarhús Kópavogs, til að bæta aðgengi og öryggi við húsin, ekki síst á dimmum vetrarmánuðum.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir að fela umhverfissviði að funda með fulltrúa lista- og menningarráðs og skila samantekt til nefndarinnar. Umhverfis- og samgöngunefnd telur brýnt að fara í heildræna uppbyggingu á svæðinu.
09
Lista- og menningarráð - 53. fundur
Lýsing við menningarhús Kópavogs
Lista- og menningarráð beinir því til umhverfis- og samgöngunefndar að hún taki þátt í því með lista- og menningarráði að bæta lýsingu við menningarhús Kópavogs, til að bæta aðgengi og öryggi við húsin, ekki síst á dimmum vetrarmánuðum.