Lista- og menningarráð - 11. fundur
í Fannborg 2, 1. hæð, stærra fundarherbergi
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Una Björg Einarsdóttir - aðalfulltrúi
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalfulltrúi
- Pétur Krogh Ólafsson - aðalfulltrúi
- Helga Margrét Reinhardsdóttir - aðalfulltrúi
- Arna Schram - starfsmaður nefndar
Ritari
- Arna Schram
Dagskrá fundar
Umsóknarfrestur rann út að kvöldi dags 14. janúar. Yfir fjörutíu umsóknir bárust.
Ákveðið að Karen E. Halldórsdóttir, Pétur Ólafsson og Una Björg Einarsdóttir fari yfir umsóknir og geri tillögu til ráðsins.
02
Ljóðasamkeppnin Jón úr Vör og ljóðasamkeppni grunnskólanna. Úrslit liggja fyrir. Hátíðin verður haldin 21. janúar nk. kl. 17:00 í Salnum.
Lista- og menningarráð fagnar miklum áhuga landsmanna á ljóðasamkeppninni Ljóðstafur Jóns úr Vör. Ráðið bindur vonir við að fleiri grunnskólanemendur taki þátt í ljóðasamkeppni grunnskólanna á næsta ári.
8. febrúar. Öll söfnin taka þátt.
Umræður um það hvernig best megi halda utan um þetta verkefni.
Samþykkt að skoðuð verði aðferðarfræði og kannaður verði mögulegur kostnaður við gerð menningarstefnu fyrir Kópavog.
Bæjarbókavörður óskar eftir því að gjaldskrá safnsins verði endurskoðuð og leggur fram tillögu þar um.
Lista- og menningarráð tekur undir ósk Bókasafns Kópavogs um að hækka gjaldskrá ti lsamræmis við Millireykjasöfnin en hvetur jafnframt til aukins samstarfs um verðbreytingar hjá söfnunum. Tillögunni er vísað áfram til afgreiðslu bæjarráðs.