Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Bókasafn Kópavogs.

Málsnúmer: 0907066

Ferill máls

01

Lista- og menningarráð - 57. fundur

Forstöðumaður Bókasafns Kópavogs, Lísa Zachrison Valdimarsdóttir, fer yfir starfsemi safnsins og verkefnin framundan. Á næstu vikum verður safninu lokað vegna breytinga á innra rými þess til að þjóna betur þörfum gesta.

Lista- og menningarráð þakkar forstöðumanni Bókasafns Kópavogs yfirferðina.

02

Bæjarráð - 2673. fundur

Frá upplýsingafulltrúa, dags. 4. febrúar, bókun á fundi lista- og menningarráðs þann 31. janúar, sbr. lið 1 í fundargerð. Lista- og menningarráð leggur til að bæjarráð taki þátt í kostnaði hátíðarhalda vegna 60 ára afmælis Bókasafns Kópavogs ásamt lista- og menningarráði.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjóra til úrvinnslu.

03

Lista- og menningarráð - 12. fundur

Bæjarbókavörður, Hrafn Andrés Harðarson, fór yfir sögu og starfsemi Bókasafns Kópavogs. Safnið á 60 ára afmæli í mars.

<P style="MARGIN: 0cm 0cm 10pt" class=MsoNormal><FONT face=Calibri>Lista- og menningarráð þakkar bæjarbókaverði fyrir góða kynningu. Ráðið leggur til að bæjarráð taki þátt í kostnaði hátíðarhalda vegna 60 ára afmælis Bókasafns Kópavogs ásamt lista- og menningarráði. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /><o:p></o:p></FONT></P><P style="MARGIN: 0cm 0cm 10pt" class=MsoNormal><FONT face=Calibri>Lista- og menningarráð hefur áhuga á því að endurvekja starfshóp sem fjalla eigi um framtíðarsýn um Bókasafn í Kópavogi.<o:p></o:p></FONT></P>

04

Bæjarráð - 2671. fundur

Bæjarbókavörður óskaði eftir því að gjaldskrá safnsins verði endurskoðuð og lagði fram tillögu þar um. Lista- og menningarráð tekur undir ósk bæjarbókavarðar um að hækka gjaldskrá til samræmis við Millireykjasöfnin, en hvetur jafnframt til aukins samstarfs um verðbreytingar hjá söfnunum. Tillögunni er vísað áfram til afgreiðslu bæjarráðs.

Bæjarráð vísar afgreiðslu til bæjarstjórnar.

05

Lista- og menningarráð - 11. fundur

Bæjarbókavörður óskar eftir því að gjaldskrá safnsins verði endurskoðuð og leggur fram tillögu þar um.

Lista- og menningarráð tekur undir ósk Bókasafns Kópavogs um að hækka gjaldskrá ti lsamræmis við Millireykjasöfnin en hvetur jafnframt til aukins samstarfs um verðbreytingar hjá söfnunum. Tillögunni er vísað áfram til afgreiðslu bæjarráðs.

06

Bæjarráð - 2511. fundur

Upplýsingar um útlán Bókasafns Kópavogs, sem bæjarráð óskaði eftir á fundi sínum 25/6 sl., varðandi lið 7 í fundargerð lista- og menningarráðs 341. fundar 9/6. Upplýsingum var dreift til bæjarfulltrúa á fundi bæjarstjórnar 30/6.

<DIV&gt;Lagt fram.</DIV&gt;