Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Lista- og menningarráð - 26. fundur

í Fannborg 2, 1. hæð, stærra fundarherbergi

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Una Björg Einarsdóttir - aðalfulltrúi
  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalfulltrúi
  • Pétur Krogh Ólafsson - aðalfulltrúi
  • Helga Margrét Reinhardsdóttir - aðalfulltrúi
  • Hjálmar Hjálmarsson - áheyrnarfulltrúi
  • Arna Schram - starfsmaður nefndar
  • Matthías Páll Imsland - aðalfulltrúi

Ritari

  • Arna Schram

Dagskrá fundar

01

Málverkagjöf til Listasafns/Gerðarsafns

Telma Haraldsdóttir sérfræðingur frá Gerðarsafni er viðstödd umfjöllun um þennan lið. Forstöðumaður Gerðarsafns, Guðbjörg Kristjánsdóttir, hafði áður lagt til að málverkagjöfin yrði ekki þegin, þar sem hún samrýmdist ekki stefnu safnsins um kaup á verkum.

Ráðið tekur undir ákvörðun forstöðumanns Gerðarsafns.

02

Heiðurslistamaður og bæjarlistamaður Kópavogs.

Umræðu fram haldið.

03

Kópavogsdagar 2014

Umræðu fram haldið.

04

Styrkbeiðni vegna Punkhátíðar 2014

Afgreiðslu var áður frestað.

Ráðið samþykkir að veita styrk að upphæð 350.000 kr.

05

Umsókn um styrk vegna tónleikahalds

Afgreiðslu var frestað á síðasta fundi.

Ráðið samþykkir að veita styrk að upphæð 450.000 kr.

06

Umsókn um styrk til endurnýjunar á hluta af búningum Skólahljómsveitar Kópavogs

Skólanefnd vísaði málinu aftur til lista- og menningarráðs.

Ráðið getur ekki orðið við þessari styrkbeiðni.

07

Tillaga um kaup á útsaumuðum skermi eftir Barböru Árnason.

Tillaga Guðbjargar Kristjánsdóttur lögð fram um kaup á útsaumuðum skermi eftir Barböru Árnason á 350.000 kr. Telma Haraldsdóttir sérfræðingur hjá Gerðarsafni situr fundinn undir þessum lið.

Ráðið samþykkir tillögu forstöðumanns Gerðarsafns enda samræmist hún söfnunar - og sýningarstefnu Gerðarsafns.