Lista- og menningarráð - 3. fundur
í Fannborg 2, 1. hæð, stærra fundarherbergi
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Una Björg Einarsdóttir - aðalfulltrúi
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalfulltrúi
- Sveinn Sigurðsson - aðalfulltrúi
- Pétur Krogh Ólafsson - aðalfulltrúi
- Helga Margrét Reinhardsdóttir - aðalfulltrúi
- Hjálmar Hjálmarsson - áheyrnarfulltrúi
- Páll Magnússon - bæjarritari
Ritari
- Páll Magnússon
Dagskrá fundar
Frá Þórunni Björnsdóttur, dags. 21. maí, ósk um styrk vegna leigu á Salnum.
Lista- og menningarráð samþykkir að veita styrk sem nemur andvirði leigu á Salnum.
Mál sem var frestað á síðasta fundi ráðsins. Fulltrúar verkefnisins mæta á fundinn.
Eydís Fransdóttir og Hannes Guðrúnarson, fulltrúar tónlistarkennara við Tónlistarskóla Kópavogs, sátu fundinn undir þessum lið og gerðu grein fyrir erindinu. Lista- og menningarráð frestar afgreiðslu til næsta fundar.
03
Óskað eftir samstarfi við Kópavogsbæ við að skrá sögu bæjarins í máli og myndum á nútímalegu formi
Frá Sigurði Sveinssyni, dags. 19. apríl, óskað eftir samstarfi við Kópavogsbæ við að skrá sögu bæjarins í máli og myndum á nútímalegu formi. Bæjarráð vísaði erindinu til lista- og menningarráðs til afgreiðslu.
Lista- og menningarráð frestar afgreiðslu og óskar eftir að bréfritari mæti á næsta fund ráðsins og geri grein fyrir erindinu.
Frá nemendum við Tónlistarskóla Kópavogs, dags. 6. maí, styrkbeiðni vegna tónleika- og námsferðar til Ítalía 14. - 28. ágúst 2012.
Lista- og menningarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu.
Frá formanni lista- og menningarráðs, stefnumörkun um útnefningu heiðurslistamanns.
Lista- og menningarráð frestar afgreiðslu til næsta fundar.
Útilistaverk í Hlíðagarði var fjarlægt úr garðinum vegna viðgerða í garðinum árið 2004.
Lista- og menningarráð óskar eftir því að útilistaverk, sem sett var í viðgerð árið 2004, verði að nýju sett upp í Hlíðargarði.
Frá sóknarpresti Digraneskirkju, dags. 23. maí, umsókn um styrk vegna blúsmessu í Digraneskirkju. Messan er hluti af Jazz- og blúshátíð Kópavogs.
Lista- og menningarráð samþykkir að veita kr. 50.000 til verkefnisins.
Lista- og menningarráð óskar eftir samantekt yfir styrki til menningarmála sl. 4 ár.