Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Fyrirspurn um útilistaverk

Málsnúmer: 1010095

Ferill máls

01

Lista- og menningarráð - 9. fundur

Guðbjörg Kristjánsdóttir, forstöðumaður Gerðarsafns, gerði grein fyrir ástandi útilistaverks eftir Jóhann Eyfells.

Ráðið þakkar Guðbjörgu Kristjánsdóttur fyrir greinargóða skýrslu um ferli viðgerðar útilistaverks eftir Jóhann Eyfells sem stóð í Hlíðargarði frá 1970 til 2004. Forvarsla hefur farið fram og verkið er komið í geymslu Gerðarsafns. Haft verður samband við Jóhann Eyfells varðandi framhaldið en ljóst er að ástand verksins leyfir ekki að það verði sett út.

02

Lista- og menningarráð - 8. fundur

Hjálmar Hjálmarsson spyr um stöðu mála vegna útilistaverks í Hlíðagarði eftir Jóhann Eyfells sem hefur verið í viðgerð frá árinu 2002. Formaður hyggst hafa samband við forstöðumann Gerðarsafns og spyrja um gang mála.

03

Lista- og menningarráð - 5. fundur

Formaður lista- og menningarráðs ætlar að hafa samband við forstöðumann Gerðarsafns og ræða við hana um málið.

04

Lista- og menningarráð - 3. fundur

Útilistaverk í Hlíðagarði var fjarlægt úr garðinum vegna viðgerða í garðinum árið 2004.

Lista- og menningarráð óskar eftir því að útilistaverk, sem sett var í viðgerð árið 2004, verði að nýju sett upp í Hlíðargarði.

05

Bæjarráð - 2564. fundur

Pétur Ólafsson óskar upplýsinga um útilistaverk í Hlíðargarði, sem fór í viðgerð árið 2004.

<DIV&gt;</DIV&gt;