Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Lista- og menningarráð - 74. fundur

Í Bókasafni Kópavogs

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - formaður
  • Sigurður Sigurbjörnsson - aðalfulltrúi
  • Auður Cela Sigrúnardóttir - aðalfulltrúi
  • Þórunn Sigurðardóttir - aðalfulltrúi
  • Björg Baldursdóttir - aðalfulltrúi
  • Þuríður Backman - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Anna Kristín Guðmundsdóttir - starfsmaður nefndar
  • Aino Freyja Jarvela - starfsmaður nefndar
  • Ólöf Hulda Breiðfjörð - starfsmaður nefndar

Ritari

  • Aino Freyja Jarvela

Dagskrá fundar

01

Málefni Bókasafns Kópavogs 2017

Lísa Z. Valdimarsdóttir, forstöðumaður Bókasafns Kópavogs, fer yfir ýmis mál safnsins.

Forstöðumaður Bókasafns Kópavogs leggur til að komið verði á vinnuhópi sem myndi vinna að hugmyndum um nýtt útibú bókasafns í efri byggðum Kópavogs. Bókasafn Kópavogs stefnir að jöfnum aðgangi allra hópa samfélagsins að safninu með hentugri staðsetningu. Markmið bókasafnsins er að vera bæjarbúum "heimili að heiman" í daglegu lífi.

02

Menningarhús Kópavogs. Ímynd, umhverfi og markaðsmál

Karl Eðvaldsson, deildarstjóri gatnadeildar, kynnir hugmyndir frá Eflu verkfræðistofu að lýsingu á svæðinu við menningarhúsin.

Lista- og menningarráð fagnar þeim tillögum sem komnar eru fram um lýsingu á svæði milli menningarhúsanna. Er hún til mikilla bóta og mun lýsingin draga athygli að fallegum byggingum menningarhúsanna og styrkja þau enn frekar í að vera eitt af kennileitum Kópavogsbæjar.

03

Fjölskyldu- og fræðslustarf í Menningahúsum Kópavogsbæjar haustið 2017

Ólöf Breiðfjörð, verkefnastjóri, kynnir fyrir ráðinu fjölskyldustundir og fræðslustarfið í Menningarhúsunum haustið 2017

Lista- og menningarráð hlakkar til spennandi og metnaðarfullra fjölskyldustunda í menningarhúsunum í haust.

04

Umsókn um styrk frá lista- og menningarráði

Lögð fram umsókn um styrk fyrir gjörningum og vídeóverkum í Kópavogi frá Rúnari Erni Jóhönnu Marínóssyni.

Lista- og menningarráð vísar umsókninni frá þar sem verkefnið hefur þegar átt sér stað.

05

Óskað eftir aðstoð við útvegun æfingahúsnæðis

Lögð fram ósk Kvennakórs Kópavogs um aðstoð ráðsins við að útvega æfingahúsnæði

Lista- og menningarráð vísar beiðninni frá þar sem það býr ekki yfir húsnæði sem hentað gæti sem æfingahúsnæði fyrir Kvennakór Kópavogs.

06

Náttúrufræðistofa Kópavogs. Hugmyndahönnun/samningur

Finnur Ingimarsson, forstöðumaður Náttúrufræðistofu Kópavogs, fer yfir stöðu mála í verkefni Gagarin á Náttúrufræðistofu.

Lista- og menningarráð samþykkir að veita 1.5 milljónir til að ljúka gangi í Náttúrufræðistofu Kópavogs. Er ráðið reiðubúið til að gera undantekningu í þessu tilfelli og styrkja framkvæmdir án þess að það sé fordæmisgefandi fyrir öðrum slíkum framkvæmdarverkefnum.

Auður Sigrúnardóttir sat hjá við atkvæðagreiðslu.