Lista- og menningarráð - 155. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Elísabet Berglind Sveinsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllElísabet Berglind Sveinsdóttir - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Elvar Bjarki Helgason - aðalmaður
- Helga Hauksdóttir - aðalmaður
- Ísabella Leifsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllÍsabella Leifsdóttir - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Jónas Skúlason - aðalmaður
- Margrét Vilborg Tryggvadóttir - áheyrnarfulltrúi
- Margrét Ásta Arnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Vilborg Soffía Karlsdóttir - starfsmaður nefndar
Ritari
- Soffía Karlsdóttir
Helga Hauksdóttir var formaður ráðsins á fundinum.
Dagskrá fundar
01
Fyrirspurn bæjarfulltrúa Margrétar Tryggvadóttur og Ísabellu Leifsdóttur um stöðu menningarstofnanna
Fyrirspurn bæjarfulltrúa Margrétar Tryggvadóttur og Ísabellu Leifsdóttur um stöðu menningarstofnanna. Málinu var vísað til umsagnar bæjarritara.
Lagt fram og rætt.
Bókun:
Fulltrúar Samfylkingarinnar, Vina Kópavogs, Viðreisnar og Pírata ítreka þá fyrirspurn sem lýtur að stöðu ráðsins við stjórn stofnanna. Það er ótækt að ekki liggi fyrir hver stjórnsýsluleg staða ráðsins sé núna. Samkvæmt bæjarmálasamþykkt og erindisbréfi ráðsins fer ráðið með stjórn menningarhúsanna og það gengur ekki að staða þeirra sé óljós.
Margrét Tryggvadóttir
Elvar Bjarki Helgason
Kolbeinn Reginsson
Margrét Ásta Arnarsdóttir
Umsókn Leikfélags Kópavogs um styrk þar sem óskað var eftir nánari fjárhagsáætlun.
Lista- og menningarráð samþykkir að veita Leikfélagi Kópavogs styrk að upphæð kr. 600.000. Fulltrúi Vina Kópavogs situr hjá.
- Fjárhagsáætlun - Svar LK við fyrirspurn lista- og menningarráðs
- Yfirlýsing um kvöð á fasteign.doc
- Yfirlýsing frá bæjarlögmanni.docx
- Lista- og menningarráð - 154 (24.5.2023) - Umsókn um styrk frá lista- og menningarsjóði Kópavogs
- Umsókn um styrk frá lista- og menningarsjóði Kópavogs
- Þakkarbréf til Kópavogsbæjar 2023.docx
- Verkefna styrkumsókn til Kópavogsbæjar 2023 - Ferðin til Limbó - Viðhengi.docx
03
Erindi frá fulltrúum Vina Kópavogs, Samfylkingar, Viðreisnar og Pírata varðandi hvenær gögn til umræðu á fundum berast
Erindi frá fulltrúum Vina Kópavogs, Samfylkingar, Viðreisnar og Pírata varðandi hvenær á að senda fundarboð og gögn til fundarfólks.
Stefnt er að birtingu gagna fyrir kl. 14 á mánudögum fyrir fundi ráðsins.
Fyrri fyrirspurn Elvars Bjarka Helgasonar, um stöðu Náttúrufræðistofu í kjölfar uppsagna starfsfólks.
Lagt fram og rætt.
Bókun:
Fulltrúar Viðreisnar, Samfylkingarinnar, Vina Kópavogs og Pírata harma að ráðið hafi ekki verið upplýst um fyrirhugaðar uppsagnir starfsfólks á sama tíma og fyrirhugað er að ráða aðra náttúrufræðinga til stofunnar þegar hlutverk hennar og starfsemi er óljós. Ljóst er að mikil þekking mun glatast við þessar hrókeringar.
Margrét Tryggvadóttir
Elvar Bjarki Helgason
Kolbeinn Reginsson
Margrét Ásta Arnarsdóttir
05
Fyrirspurn Elvars Bjarka Helgasonar um áhrif breytinga á menningarstofnunum bæjarins á Öndvegisstyrk frá Safnasjóði
Síðari fyrirspurn Elvars Bjarka Helgasonar, um áhrif breytinga á menningarstofnunum bæjarins á Öndvegisstyrk til Náttúrufræðistofu og Gerðarsafns frá Safnasjóði.
Lagt fram og rætt.
Bókun:
Fulltrúar Viðreisnar, Samfylkingarinnar, Vina Kópavogs og Pírata ítreka áhyggjur sínar og minna á erindi frá Safnaráði frá 21. apríl s.l. þar sem fjallað er um hlutverk og skyldur viðurkenndra safna. Hætta er á að Náttúrufræðistofa Kópavogs missi stöðu sína sem viðurkennt safn og þar með styrki sem því hafa fylgt.
Margrét Tryggvadóttir
Elvar Bjarki Helgason
Kolbeinn Reginsson
Margrét Ásta Arnarsdóttir
Tilkynning um skemmd á listaverkinu Kópur.
Málið rætt og beðið eftir sérstakri skoðun forstöðumanns Gerðarsafns.
Umsögn um Jafnréttis- og mannréttindastefnu.
Lista- og menningarráð leggur til að umfjöllun um aðgengi verði víkkuð út þannig að hún nái ekki eingöngu til opinberra stofnana heldur líka til annarrar þjónustu í bæjarfélaginu. Einnig að í umfjöllun um fræðslu um fjölbreytileika verði nefnd dæmi um hvers konar fræðslu, t.d. hinsegin fræðslu. Þá er lagt til að undir liðnum menntun, tómstundir og atvinna verði fjallað um mikilvægi að jöfnu aðgengi að menningarstarfsemi bæjarins.