Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Lýðheilsu- og íþróttanefnd - 10. fundur

á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Sverrir Kári Karlsson - formaður
  • Helgi Ólafsson - aðalmaður
  • Sunna Guðmundsdóttir - varaformaður
  • Thelma Bergmann Árnadóttir - aðalmaður
  • Gunnar Gylfason - aðalmaður
  • Matthías Hjartarson - áheyrnarfulltrúi
  • Andrés Pétursson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnar Guðmundsson
  • Ana Tepavcevic

Ritari

  • Gunnar Guðmundsson

Dagskrá fundar

01

Samþætting þjónustu í þágu farsældar barna

Kynning á stöðu innleiðingar farsældar barna.

Lýðheilsu- og íþróttanefnd þakkar Sólveigu Norðfjörð, verkefnastjóra farsældar fyrir góða kynningu.

02

Málefni stúkubyggingar í Kórnum

Tekin til umfjöllunar málefni stúkubyggingar við félagssvæði HK í Kórnum.

Ármann Halldórsson, deildarstjóri framkvæmdadeildar, kynnti stöðu mála.

Lýðheilsu- og íþróttanefnd þakkar fyrir kynninguna.

03

Æfingatöflur íþróttamannvirkja 2026-2027 - Rammi til úthlutunar

Lagður fram rammi að æfingatöflum fyrir veturinn 2026-2027.

Lagt fram.

Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir framlagðan ramma fyrir 2026/2027.

04

Endurskoðun á reglum og reglugerðum lýðheilsu- og íþróttanefndar

Á fundi lýðheilsu- og íþróttanefndar 28. ágúst 2025 var eftirfarandi bókað: "Reglur um aðstöðu til æfinga og keppni þarf hinsvegar að taka til nánari endurskoðunar. Ákveðið að formaður nefndarinnar ásamt fulltrúa Samfylkingarinnar vinni að endurskoðun með starfsmönnum íþróttadeildar". Þessari vinnu er nú lokið og endurskoðaðar reglur lagðar fram til samþykktar í nefndinni.

Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir framlagðar tillögur að endurskoðuðun á Afnotareglum íþróttamannvirkja.

05

Sumarnámskeið íþróttafélaga 2026

Lögð fram gögn varðandi umsóknir íþrótta- og tómstundafélaga um sumarnámskeið á komandi sumri.

Lagt fram.

06

Styrkbeiðni vegna ritunar á sögu Breiðabliks í tilefni 80 ára afmælis félagsins

Tekið fyrir erindi frá Aðalstjórn Breiðabliks, dags. 31.10 2025, þar sem óskað er eftir styrk að upphæð 6 milljónir króna til ritunar sögu félagsins. Menningar- og mannlífsnefnd vísaði beiðninni til lýðheilsu- og íþróttanefndar á fundi sínum 4. febrúar.

Lýðheilsu- og íþróttanefnd vísar málinu til bæjarráðs á þeim forsendum að nefndin hefur ekki fjárheimildir til að ráðstafa í verkefnið.

07

Heimsóknir til íþróttafélaga 2022 - 2026

Hestamannafélagið Sprettur heimsótt í félagsaðstöðu í Samskipahöllinni.

Lýðheilsu- og íþróttanefnd þakkar Spretti fyrir góða kynningu.