Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Endurskoðun á reglum og reglugerðum lýðheilsu- og íþróttanefndar

Málsnúmer: 25081671

Ferill máls

01

Lýðheilsu- og íþróttanefnd - 10. fundur

Á fundi lýðheilsu- og íþróttanefndar 28. ágúst 2025 var eftirfarandi bókað: "Reglur um aðstöðu til æfinga og keppni þarf hinsvegar að taka til nánari endurskoðunar. Ákveðið að formaður nefndarinnar ásamt fulltrúa Samfylkingarinnar vinni að endurskoðun með starfsmönnum íþróttadeildar". Þessari vinnu er nú lokið og endurskoðaðar reglur lagðar fram til samþykktar í nefndinni.

Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir framlagðar tillögur að endurskoðuðun á Afnotareglum íþróttamannvirkja.

02

Lýðheilsu- og íþróttanefnd - 6. fundur

Lagðar fram tillögur íþróttadeildar að endurskoðuðum reglum og reglugerðum lýðheilsu- og íþróttanefndar, í samræmi við bókun nefndarinnar á síðasta fundi 28. ágúst.

Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir framlagðar tillögur að endurskoðuðum reglum.

03

Lýðheilsu- og íþróttanefnd - 5. fundur

Lagt fram skjal með þeim reglum og reglugerðum sem heyra undir lýðheilsu- og íþróttanefnd. Taka þarf allar reglur og reglugerðir nefndarinnar til endurskoðunar hvað varðar orðalag með tilliti til breytinga á heiti nefndarinnar sem áður hét íþróttaráð en heitir nú lýðheilsu- og íþróttanefnd. Einnig er komin tími á frekari endurskoðun og uppfærslu á einstaka reglum með tilliti til þeirar þróunar og breytinga sem átt hafa sér stað frá því þær voru settar eða endurskoðaðar síðast.

Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að fela starfsmönnum íþróttadeildar að gera þær nauðsynlegu breytingar á orðalagi í reglunum sem um var rætt á fundinum og leggja fyrir að nýju til samþykktar á næsta fundi nefndarinnar. Reglur um aðstöðu til æfinga og keppni þarf hinsvegar að taka til nánari endurskoðunar. Ákveðið að formaður nefndarinnar ásamt fulltrúa Samfylkingarinnar vinni að endurskoðun með starfsmönnum íþróttadeildar.