Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Lýðheilsu- og íþróttanefnd - 13. fundur

á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Hildur Einarsdóttir - formaður
  • Leifur Andri Leifsson - aðalfulltrúi
  • Heiðdís Geirsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Jónas Skúlason - varafulltrúi
    Sat fundinn í staðinn
  • Friðmey Jónsdóttir - aðalfulltrúi
  • Ævar Örn Jóhannsson - aðalfulltrúi
  • Arnar Grétarsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnar Guðmundsson
  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir
  • Ana Tepavcevic

Ritari

  • Gunnar Guðmundsson

Dagskrá fundar

Almenn mál

01

Erindisbréf lýðheilsu- og íþróttanefndar

Á fundinn mætti Pálmi Þór Másson, bæjarritari og kynnti erindisbréf lýðheilsu- og íþróttanefndar sem samþykkt var á fundi bæjarstjórnar 24. júní 2025.

Lýðheilsu- og íþróttanefnd þakkar Pálma Þór Mássyni fyrir góða kynningu.

Almenn mál

02

Íþróttasvæði í Kópavogsdal. Samkeppni.

Á fundinn mættu Auður Dagný Kristinsdóttir skipulagsstjóri og Freyr Snorrason, verkefnastjóri á skipulagsdeild og kynntu fyrirkomulag samkeppni um þróun og aukna nýtingu íþróttasvæðis í Kópavogsdal (ÍÞ-4 í aðalskipulagi Kópavogs)

Lýðheilsu- og íþróttanefnd þakkar Auði Dagnýju Kristinsdóttur og Frey Snorrasyni fyrir góða kynningu.

Bókun:

„Undirritaður fagnar því fyrir hönd Miðflokksins að fyrirhugað sé að undirbúa frekara skipulag og þróun á íþróttasvæði í Kópavogsdal. Það er þarft til að mæta auknum fjölda iðkenda. Slíkt skipulag verður svo ekki síður þarft upp á Vatnsenda miðað við þá byggðastefnu sem er að eiga sér stað í hverfinu þar.

Einnig telur undirritaður að brýnt sé í framhaldinu að vanda vel til verka og hugsa til lengri tíma frekar en að leitast eftir skammtíma lausnum eins og raun hefur borið vitni t.d. í framkvæmd varðandi flóðlýsingu á Kópavogsvelli (núverandi Eikarvöllur).“

Ævar Örn Jóhannsson

Almenn mál

03

Menntasvið - kynning á sviði og deildum.

Lögð fram kynning á menntasviði Kópavogsbæjar og íþróttadeild sviðsins.

Lagt fram.

Almenn mál

04

Frístundastyrkir 2025 - Samantekt, nýting og þróun styrkja sl.ár

Lögð fram og kynnt nýting frístundastyrks fyrir árið 2025 ásamt þróun styrksins síðustu ár.

Lagt fram til kynningar.

Aðsend erindi

05

HK - Ósk um mótahald í Kórnum veturinn 2026-2027

Lagt fram erindi frá HK dags. 20. maí 2026, þar sem óskað er eftir að fá afnot af Kórnum helgina 7.- 8. nóvember og 14.- 15. nóvember 2026 undir knattspyrnumót yngri flokka.

Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir erindið.

Önnur mál

06

Fundaráætlun lýðheilsu- og íþróttanefndar

Lögð fram tillaga að fundaráætlun fyrir veturinn 2026/2027.

Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir framlagða fundaráætlun.