Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Íþróttasvæði í Kópavogsdal. Samkeppni.

Málsnúmer: 25121108

Ferill máls

01

Lýðheilsu- og íþróttanefnd - 13. fundur

Á fundinn mættu Auður Dagný Kristinsdóttir skipulagsstjóri og Freyr Snorrason, verkefnastjóri á skipulagsdeild og kynntu fyrirkomulag samkeppni um þróun og aukna nýtingu íþróttasvæðis í Kópavogsdal (ÍÞ-4 í aðalskipulagi Kópavogs)

Lýðheilsu- og íþróttanefnd þakkar Auði Dagnýju Kristinsdóttur og Frey Snorrasyni fyrir góða kynningu.

Bókun:

„Undirritaður fagnar því fyrir hönd Miðflokksins að fyrirhugað sé að undirbúa frekara skipulag og þróun á íþróttasvæði í Kópavogsdal. Það er þarft til að mæta auknum fjölda iðkenda. Slíkt skipulag verður svo ekki síður þarft upp á Vatnsenda miðað við þá byggðastefnu sem er að eiga sér stað í hverfinu þar.

Einnig telur undirritaður að brýnt sé í framhaldinu að vanda vel til verka og hugsa til lengri tíma frekar en að leitast eftir skammtíma lausnum eins og raun hefur borið vitni t.d. í framkvæmd varðandi flóðlýsingu á Kópavogsvelli (núverandi Eikarvöllur).“

Ævar Örn Jóhannsson

02

Skipulags- og umhverfisráð - 27. fundur

Lagt fram erindi skipulagsfulltrúa dags. 17. apríl 2026 um fyrirkomulag samkeppni um þróun og aukna nýtingu íþróttasvæðis í Kópavogsdal (ÍÞ-4 í aðalskipulagi Kópavogs) í samræmi við tillögur skipulagsfulltrúa um áframhaldandi skipulagsvinnu í Kópavogdal dags. 9. janúar 2025 sem samþykktar voru í bæjarráði þann 23. janúar 2025.

Freyr Snorrason verkefnastjóri tók sæti á fundinum og gerði grein fyrir erindinu.

Samþykkt með sex atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Kristins Dags Gissurarsonar, Andra Steins Hilmarssonar, Gunnars Sæs Ragnarssonar, Leós Snæs Péturssonar og Helgu Jónsdóttur að hafin verði vinna við undirbúning hugmyndasamkeppni í samræmi við erindi skipulagsfulltrúa dags. 17. apríl 2026. Hákon Gunnarsson sat hjá við afgreiðslu málsins.

03

Skipulags- og umhverfisráð - 21. fundur

Lagt fram erindi skipulagsfulltrúa dags. 12. desember 2025, þar sem óskað er eftir heimild skipulags- og umhverfisráðs til að hefja vinnu við samkeppni á íþróttasvæði í Kópavogsdal í samræmi við tillögur skipulagsfulltrúa, dags. 15. janúar 2025 sem lagðar voru fram í bæjarráði þann 23. janúar 2025.

Freyr Snorrason verkefnastjóri tók sæti á fundinum undir þessum lið og gerði grein fyrir erindinu.

Afgreiðslu frestað.