Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Umferðaröryggisáætlun

Málsnúmer: 0903018

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1060. fundur

Tillaga að umferðaröryggisáætlun, samþykkt í bæjarráði 24. maí, sbr. lið 16 í fundargerð.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs og samþykkir tillögu að umferðaröryggisáætlun Kópavogsbæjar.

02

Bæjarráð - 2642. fundur

Lögð fram að nýju tillaga að umferðaröryggisáætlun, sem samþykkt var í umhverfis- og samgönguráði 7/5 sl., en frestað var í bæjarráði 10/5.

Bæjarráð samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti.

03

Bæjarráð - 2641. fundur

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir Umferðaröryggisáætlun Kópavogsbæjar og vísar henni til afgreiðslu bæjarráðs.

Bæjarráð frestar afgreiðslu til næsta fundar.

04

Umhverfis- og samgöngunefnd - 19. fundur

Lögð fram á ný tillaga að umferðaröryggisáætlun Kópavogsbæjar.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir Umferðaröryggisáætlun Kópavogsbæjar og vísar henni til afgreiðslu bæjarráðs.

05

Umhverfis- og samgöngunefnd - 18. fundur

Lögð fram drög að umferðaröryggisáætlun Kópavogs.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkti drögin.

06

Umhverfis- og samgöngunefnd - 16. fundur

Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 23. janúar 2012 var staða vinnu við umferðaröryggisáætlun kynnt og tillaga lögð fram um dagsetningu á íbúafundi.$line$Kynnt og samþykkt að starfsfólk umhverfissviðs vinni að kynningu á málinu.$line$Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 5. mars 2012 er lagt til að kosinn verði fulltrúi í samráðshóp umferðaröryggisáætlunar.

Formaður umhverfis- og samgöngunefndar tilnefnir Tryggva Magnús Þórðarsson áfram í samráðshópinn.

07

Umhverfis- og samgöngunefnd - 15. fundur

Staða vinnu við umferðaröryggisáætlun kynnt og tillaga lögð fram um dagsetningu á íbúafundi.

Kynnt og samþykkt að starfsfólk umhverfissviðs vinni að kynningu á málinu.

08

Umhverfis- og samgöngunefnd - 11. fundur

Í janúar 2010 var gerður samningur milli Kópavogsbæjar og Umferðarstofu um gerð umferðaröryggisáætlunar. Lögð var fram tillaga að tímaáætlun og verkferli.

<STRONG>Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir að stofnaður verði samráðshópur vegna vinnu við umferðaröryggisáætlun og að óskað verði eftir fulltrúum í hópinn frá Vegagerðinni, Lögreglu, Umferðarstofu, menntasviði og skipulags- og byggingardeild Kópavogs. Nefndin samþykkir að Tryggvi Þórðarson verði fulltrúi nefndarinnar í samráðshópnum.</STRONG>

09

Umferðarnefnd - 365. fundur

Lagður fram samningur við Umferðarstofu vegna umferðaröryggisáætlunar sbr. samþykkt umferðarnefndar.

<DIV&gt;Umferðarnefnd leggur til við bæjarráð að samningurinn verði samþykktur.</DIV&gt;

10

Umferðarnefnd - 362. fundur

Sigurður Helgason mætir á fundinn og kynnir aðferðafræði við umferðaröryggisáætlun.

<DIV&gt;%0D<DIV&gt;Umferðarnefnd þakkar Sigurði fyrir fróðlegt og áhugavert erindi og leggur til við bæjaráð að ganga til samninga við umferðarstofu um aðstoð við vinnu við umferðaröryggisáætlun fyrir Kópavog. Starfsmanni falið að fylgja málinu eftir.</DIV&gt;</DIV&gt;