Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Umhverfis- og samgöngunefnd - 11. fundur

í Fannborg 2, fundarherbergi 3. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

• Margrét Júlía Rafnsdóttir - formaður
• Helgi Jóhannesson - aðalmaður
• Tryggvi Magnús Þórðarson - aðalmaður
• Hákon Róbert Jónsson - aðalmaður
• Jóhanna Heiðdal Sigurðardóttir - aðalmaður
• Steingrímur Hauksson

Ritari

• Hólmfríður Þorsteinsdóttir

Dagskrá fundar

01

Landsáætlun um meðhöndlun úrgangs 2012-2023 og innleiðing á rammatilskipun Evrópusambandsins um úrgang (2008/98/EB) í íslenskan rétt

Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 7. nóvember 2011 var lagt fram bréf frá umhverfisráðuneytinu dags. 26. september 2011 þar sem óskað er tillagna vegna vinnu við gerð landsáætlunar um úrgang 2012- 2023. Sigurbjörg Sæmundsdóttir og Kjartan Ingvarsson frá umhverfisráðuneytinu kynntu fyrirhugaða vinnu.

Umhverfis- og samgöngunefnd þakkar fyrir kynninguna.

02

Átaksverkefni í skógrækt og uppgræðslu 2011

Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 7. nóvember 2011 kynnti garðyrkjustjóri skýrslu um átaksverkefni í skógrækt og uppgræðslu árið 2011.

Lagt fram.

03

Örvasalir 24, kvörtun vegna golfvallar

Á fund umhverfis- og samgöngunefndar 7. nóvember 2011 var lagt fram erindi frá lóðarhafa við Örvasali 24. Lóðarhafi óskaði aðgerða af hálfu bæjarins til að koma í veg fyrir að golfboltar fljúgi inn á lóðina.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir tillögu umhverfissviðs um trjábelti við golfvöllinn.

04

Friðlýsing Skerjafjarðar.

Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 7. nóvember 2011 voru tillögur að friðlýsingu Skerjafjarðar lagðar fram.

Ákveðið að vinna áfram að málinu.

05

Evrópsk samgönguvika 2011

Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 22. ágúst 2011 var verkefnið Evrópsk samgönguvika kynnt. Vikan er haldin árlega 16- 22. september og var þema vikunnar árið 2011 "alternative mobility"$line$Lögð var fram tillaga að dagskrá vikunnar.$line$Samþykkt að vinna áfram að málinu.$line$Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 7. nóvember 2011 var farið yfir niðurstöður könnunar á ferðavenjum sex og tólf ára barna til skóla í Kópavogi.

Umhverfis- og samgöngunefnd leggur til að skýrslan verði notuð sem innlegg í umferðaröryggisáætlun.

06

Umferðaröryggisáætlun

Í janúar 2010 var gerður samningur milli Kópavogsbæjar og Umferðarstofu um gerð umferðaröryggisáætlunar. Lögð var fram tillaga að tímaáætlun og verkferli.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir að stofnaður verði samráðshópur vegna vinnu við umferðaröryggisáætlun og að óskað verði eftir fulltrúum í hópinn frá Vegagerðinni, Lögreglu, Umferðarstofu, menntasviði og skipulags- og byggingardeild Kópavogs. Nefndin samþykkir að Tryggvi Þórðarson verði fulltrúi nefndarinnar í samráðshópnum.

07

Grjótnám í Lækjarbotnum

Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 7. nóvember 2011 var málið tekið upp að nýju og greint frá fundi með forsvarsmönnum S. Helgasonar.

Málið rætt. Nefndin leggur til að grjótnámi í Lækjarbotnum verði hætt sem fyrst.

08

Framtíðarhópur SSH

Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 7. nóvember 2011 voru lagðar fram tillögur verkefnahóps nr. 8 varðandi sameiginlega stefnumótun á sviði almenningssamgangna, vistvænna samgangna, reiðhjóla og samgöngukerfa á höfuðborgarsvæðinu.

Umhverfis- og samgöngunefnd er sammála og gerir ekki athugasemdir við tillögur verkefnahóps 8 að því gefnu að það liggi fyrir hvaða framkvæmdum eigi að fresta og að tryggt verði að fjármunir komi frá ríkinu eins og lofað var. Nefndin leggur einnig áherslu á að með úreldingu olíuvagna fjalli niðurgreiðsla olíugjalds niður samhliða, að því gefnu að ekki verði keyptir inn nýjir olíuvagnar.

09

Tilnefning fulltrúa í vatnasvæðanefnd

Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 7. nóvember 2011 var lagt fram erindi Umhverfisstofnunar dags. 18. október 2011 þar sem óskað er eftir tilnefningu fulltrúa umhverfis- og samgöngunefndar Kópavogs í vatnasvæðanefnd.

Bæjarráð hefur tilnefnt sviðsstjóra umhverfissviðs í nefndina fyrir hönd Kópavogsbæjar.

10

Frumvarp um breytingu á lögum um mat á umhverfisáhrifum. Óskað eftir athugasemdum við frumvarpsdrög

Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 31. október 2011 var lagt fram erindi frá umhverfisráðuneytinu dags. 20. október 2011. Ráðuneytið óskar eftir athugasemdum við frumvarpsdrög um breytingar á lögum 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum.$line$Lagt fram og kynnt og ákveðið að nefndin skili inn ábendingum til umhverfisráðuneytisins.$line$Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 7. nóvember 2011 var lögð fram tillaga frá umhverfissviði vegna þessa.

Umhverfis- og samgöngunefnd gerir ekki athugasemdir við drög að frumvarpi.

11

Fundargerðir stjórnar Reykjanesfólkvangs 2011

Fundargerðir stjórnar Reykjanesfólkvangs dags. 21. september og 8. október 2011 lagðar fram.

Önnur mál:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks óska eftir kostnaðaráætlun vegna bættrar lýsingar við gangbrautir grunnskóla Kópavogs. Einnig óska fulltrúarnir eftir kostnaðaráætlun vegna umferðarstillingar/umferðarnæmni umferðarljósa við Hagasmára í vestur/ suðurátt.