Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Lista- og menningarráð - 10. fundur

í Fannborg 2, 1. hæð, stærra fundarherbergi

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Una Björg Einarsdóttir - aðalfulltrúi
  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalfulltrúi
  • Sveinn Sigurðsson - aðalfulltrúi
  • Helga Margrét Reinhardsdóttir - aðalfulltrúi
  • Hjálmar Hjálmarsson - áheyrnarfulltrúi
  • Arna Schram - starfsmaður nefndar
  • Sigrún Skaftadóttir - varafulltrúi

Ritari

  • Arna Schram

Dagskrá fundar

01

Kaffistofa Gerðarsafns

Tillögur lagðar fram um nýtingu rýmis sem losnar vegna kaffistofunnar.

Ljóst er að kaffitería Gerðarsafns verður lögð niður frá og með næstu áramótum. Ráðið ætlar að fara í hugmyndavinnu að nýtingu þess rýmis sem losnar með það að markmiði að auka fjölbreytileika safnsins og aðdráttarafl þess.

02

Styrkumsókn vegna söngferðalags til Færeyja og heimsóknar til Klakksvíkur, vinabæjar Kópavogs

Því miður sér ráðið sér ekki fært að verða við þessari umsókn.

03

Menningarstefna Kópavogs.

Áframhaldandi umræða

04

Ljóðasamkeppnin Jón úr Vör.

Ljóðasamkeppnin hefur verið auglýst í fjölmiðlum og grunnskólar hvattir til að taka þátt í ljóðasamkeppni grunnskólanna. Velja þarf nýja dómnefnd.

Nöfnum velt upp og deildarstjóra falið að vinna að málinu áfram.

05

Umsókn um styrk vegna skáldakynningar

Umsókn er vísað til næstu úthlutunar úr lista- og menningarsjóði.

06

Lista- og menningarsjóður.

Hjálmar Hjálmarsson bókar: "<FONT face=Calibri>Undirritaður leggur til að lista- og menningarsjóður haldist óskertur næsta fjárhagsár 2013 eins og kveður á um í reglum sjóðsins og samþykktum Kópavogsbæjar.<SPAN style="mso-spacerun: yes"> </SPAN>Kostnaður vegna hátíðarhalda 17.júní og kostnaður vegna launa tónlistarráðgjafa Kópavogsbæjar verði þar af leiðandi ekki greiddur úr lista- og menningarsjóði. </FONT><FONT face=Calibri>Undanfarin tvö ár hefur lista- og menningarsjóður mátt þola ríflega 50% niðurskurð og hefur það bitnað á menningarstarfi í bænum. Tekjur sjóðsins eru ákvarðaðar í samþykktum Kópavogsbæjar 0.5% af 6,7% útsvarstekna og var afmælisgjöf til bæjarbúa á 25 ára afmæli Kópavogsbæjar.<SPAN style="mso-spacerun: yes"> Hjálmar Hjálmarsson."</SPAN></FONT><?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /><o:p></o:p>