Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Íslenska frisbígolfsambandið - Kynningarerindi

Málsnúmer: 1111331

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2832. fundur

Frá Íslenska frisbígolfsambandinu, lagt fram erindi vegna frisbígolfvallar í Kópavogi.

02

Bæjarráð - 2832. fundur

Frá Íslenska frisbígolfsambandinu, lagt fram erindi vegna frisbígolfvallar í Kópavogi.

03

Bæjarráð - 2831. fundur

Frá Íslenska frisbígolfsambandinu, lagt fram erindi vegna frisbígolfvallar í Kópavogi.

Bæjarráð vísar málinu til umhverfissviðs til úrvinnslu.

04

Umhverfis- og samgöngunefnd - 62. fundur

Lagt fram erindi frá formanni íslenska frisbígolfsambandsins dags. 20.1.2015.

Hreiðar Oddson leggur fram tillögu að fresta erindinu og kalla eftir frekari gögnum fyrir næsta fund nefndarinnar. $line$Hreiðar Oddsson, Arnar Ingólfsson og Sigurður Grétarsson greiddu atkvæði með tillögunni en Einar Baldursson greiddi atkvæði gengn tillögunni.$line$Einar Baldursson bókar að hann vill fresta erindinu á meðan vinna við heildrænt skipulag Kópavogsdals á sér stað.$line$Gylfi Sigurðsson vék af fundi.

05

Bæjarráð - 2728. fundur

Íslenska frisbígolfsambandið - Kynningarefni - Óskað eftir leyfi til að setja upp körfur á landi Kópavogsbæjar.$line$$line$Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir erindið til reynslu í samráði við garðyrkjustjóra Kópavogsbæjar og vísar því til afgreiðslu bæjarráðs.$line$

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu umhverfis- og samgöngunefndar.

06

Umhverfis- og samgöngunefnd - 48. fundur

Lagt fram erindi frá Íslenska frisbígolfsambandinu varðandi uppsetningu á körfum dags. 14.4.2014.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir erindið til reynslu í samráði við garðyrkjustjóra Kópavogsbæjar og vísar því til afgreiðslu bæjarráðs.

07

Umhverfis- og samgöngunefnd - 32. fundur

Sviðsstjóri kynnir tillögu að Frisbígolfvelli í Kópavogi.

Verkefnið er ekki á fjárhagsáætlun og því er ekki hægt að fara í það að svo stöddu.

08

Íþróttaráð - 8. fundur

Lagt fram kynningarbréf frá Íslenska frisbígolfsambandinu ódags. þar sem kyntir eru möguleikar á uppsetningu á frisbígolfvelli.

Lagt fram til kynningar. Starfsmönum falið að skoða kostnað og mögulegar staðsetningar.