Bakkasmári 16, breytt deiliskipulag
Málsnúmer: 1201099
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2635. fundur
Bæjarráð samþykkir erindið.
02
Skipulagsnefnd - 1207. fundur
Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju erindi Sigurþórs Aðalsteinssonar, arkitekts f.h. lóðarhafa þar sem óskað er eftir að byggja við sökkulrými við norðausturgafl hússins að Bakkasmára 16 og reisa þar á garðskála. Uppdráttur í mkv. 1:200 og 1:1000 ásamt greinargerð og skýringarmyndum dags. 6. desember 2011. Tillagan var grenndarkynnt með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir lóðarhöfum Bakkasmára 14, 18, 21,. 23 og Bergsmára 7 og 8. Þá lagt fram undirritað samþykki ofangreindra lóðarhafa fyrir fyrirhuguðum breytingu.
Samþykkt.Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
03
Skipulagsnefnd - 1202. fundur
Lagt fram erindi Sigurþórs Aðalsteinssonar, arkitekts f.h. lóðarhafa þar sem óskað er eftir að byggja við sökkulrými við norðausturgafl hússins að Bakkasmára 16 og reisa þar á garðskála. Uppdráttur í mkv. 1:200 og 1:1000 ásamt greinargerð og skýringarmyndum dags. 6. desember 2011.
Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Bakkasmára 14, 18, 21, 23 og Bergsmára 7 og 9.