Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Vatnsendakrikar. Nýting Kópavogsbæjar á grunnvatni

Málsnúmer: 1204003

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2760. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 28. janúar, umsögn um erindi Orkustofnunar sem óskað var eftir í bæjarráði þann 22. janúar sl.

Lagt fram.

02

Bæjarráð - 2759. fundur

Frá Orkustofnun, dags. 14. janúar, umsögn um umsókn OR og Vatnsveitu Kópavogs um aukna vatnsvinnslu í Vatnsendakrikum í Heiðmörk.

Sviðsstjóri umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið. $line$$line$Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar umhverfissviðs.

03

Bæjarráð - 2679. fundur

Lagt fram minnisblað sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 18. mars sl. varðandi endurnýjun á nýtingarleyfi grunnvatns í Vatnsendakrikum. Á fundinum er lögð fram fundargerð fundar fulltrúa Kópavogsbæjar og Orkuveitu Reykjavíkur ásamt ráðgjöfum, dags. 14. mars sl. Lagt er fram minnisblað Vatnaskila dags. 21. desember sl. og yfirlit Vatnsveitu Kópavogs yfir vatnstöku í Vatnsendakrikum 2008-2013 og áætluð notkun til 2050.$line$Í umsögn sviðsstjóra kemur m.a. fram að miðað við núverandi vatnstökusvæði og þegar horft er til framtíðar telur sviðsstjóri rétt að sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu komi sér saman um með hvaða hætti vatnsbólin verði nýtt til framtíðar.$line$

Bæjarráð áréttar að sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu komi sér saman um með hvaða hætti vatnsbólin verði nýtt til framtíðar.

04

Framkvæmdaráð - 47. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs

Umssögn frá sviðstjóra lögð fram og áréttað að sveitafélögin á höfuðborgasvæðinu komi sér saman um með hvaða hætti vatnsbólin verði nýtt til framtíðar.

05

Umhverfis- og samgöngunefnd - 29. fundur

Lögð fram skýrsla frá Vatnaskil dags. 21. desember 2012.

Kynnt og rætt.

06

Bæjarráð - 2637. fundur

Frá Orkustofnun, dags. 29/3, varðandi nýtingu á grunnvatni í Vatnsendakrikum.

Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra umhverfissviðs til úrvinnslu.Guðríður Arnardóttir óskar eftir því að framkvæmdaráð fjalli um málið.