Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Strætisvagnaskýli í efstu byggðum Kópavogs

Málsnúmer: 1209243

Ferill máls

01

Umhverfis- og samgöngunefnd - 26. fundur

Lagt fram erindi íbúa í Vatnsendahverfi dags. 14. september 2012, ábending varðandi aðstöðu fyrir farþega strætisvagna. Lögð fram staðsetning biðstöðva við Vatnsendaveg og Vatnsendahvarf og tillaga um að gerð verði útskot fyrir stætisvagna á þessum biðstöðvum og komi til framkvæmda á næstu árum. Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir tillögu um gerð útskota fyrir strætisvagna og vísar til fjárhagsáætlunar.

02

Bæjarráð - 2654. fundur

Lagt fram erindi, dags. 14. september, frá Mörtu Ólafsdóttur, varðandi strætivagnaskýli í efstu byggðum Kópavogs.

Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til umhverfis- og samgöngunefndar til úrvinnslu.Bókun Hjálmars Hjálmarssonar:"Í janúar á þessu ári skipaði bæjarráð starfshóp undir forystu fulltrúa Kópavogs í Strætó b.s. Var starfshópnum ætlað að fara yfir öll þau mál sem tengjast almenningssamgöngum í Kópavogi. Eðlilegt væri að umrætt mál yrði tekið þar fyrir. Hins vegar hefur fyrrgreindur starfshópur ekki gert neitt og aldrei komið saman. Þetta sýnir glöggt áhugaleysi Gunnars Inga Birgissonar fulltrúa Kópavogs í Strætó b.s. í þessum málaflokki. Það er ámælisvert að bæjarstjóri skuli ekki hafa fylgt eftir ákvörðunum bæjarráðs hvað þetta varðar og lýsir vel sinnuleysi meirihluta Sjálfstæðis og Framsóknarflokksins."Bókun Ármanns Kr. Ólafssonar:"Þetta var starfshópurinn sem stofnaður var á meðan Hjálmar Hjálmarsson var í meirihluta og undir hans forystu var aldrei kallaður saman fundur. Það er mjög eðlilegt að fela umhverfis- og samgöngunefnd að fjalla um þetta mál og þarf ekki sérstakan starfshóp til. Þá fjallar erindið ekki um slæmar strætósamgöngur heldur biðskýli."Bókun Hjálmars Hjálmarssonar:"Fyrrverandi bæjarstjóra var falið að framfylgja ákvörðun bæjarráðs. Þar var fulltrúa Kópavogs í Strætó b.s. falið að stýra vinnu starfshópsins. Í febrúar var bæjarstjórinn rekinn og Ármann Kr. Ólafsson ráðinn í hans stað. Þá var Gunnar Ingi Birgisson kjörinn fulltrúi Kópavogs í stjórn Strætó bs. Eðli málsins samkvæmt er það í verkahring nýs bæjarstjóra að fylgja eftir ákvörðun bæjarráðs og nýs fulltrúa í stjórn Strætó bs. að stýra vinnu starfshópsins. Þó svo að undirritaður, fyrrverandi fulltrúi Kópavogs beri ábyrgð á því að umræddur starfshópur var settur á laggirnar getur hann ekki tekið ábyrgð á sleifarlagi Ármanns Kr. Ólafssonar og Gunnars Inga Birgissonar í þessu máli."Bókun Rannveigar Ásgeirsdóttur:"<FONT color=#000000 size=2 face=Tahoma>Að gefnu tilefni vill formaður bæjarráðs minna fundarmenn á að hafa í huga háttvísi í bókunum sínum og gæta að því að niðrandi ummæli sem geta talist beinast að persónum eru fulltrúum í bæjarráði ósæmandi.</FONT>"Bókun Ármanns Kr. Ólafssonar:"Það er formanna nefnda og starfshópa að boða til funda og það eiga bæjarfulltrúar að vita."Bókun Hjálmars Hjálmarssonar:"Ég vil benda bæjarstjóra á að kynna sér feril málsins en undirritaður var aldrei skipaður í þennan hóp með formlegum hætti."