Strætó, vinna við leiðakerfisbreytingar 2014.
Málsnúmer: 1302078
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2677. fundur
Lagt fram minnisblað sviðsstjóra umhverfissviðs, sem telur ekki þörf á breytingum á leiðakerfi Strætó innan Kópavogs, nema þeim sem bent er á í bréfi Strætó frá 4. febrúar sl.
Bæjarráð telur ekki þörf á breytingum á leiðarkerfi Strætó umfram það sem fram kemur í bréfi Strætó frá 4. febrúar sl.Hjálmar Hjálmarsson, Guðríður Arnardóttir og Arnþór Sigurðsson lögðu fram eftirafarandi bókun:<SPAN style="FONT-FAMILY: " Calibri?,?sans-serif?; FONT-SIZE: 11pt; mso-ascii-theme-font: mso-fareast-font-family: Calibri; mso-fareast-theme-font: mso-hansi-theme-font: minor-latin; mso-bidi-font-family: ?Times New Roman?; mso-bidi-theme-font: minor-bidi; mso-ansi-language: IS; mso-fareast-language: EN-US; mso-bidi-language: AR-SA?><EM>"Undirrituð hvetja til þess að umhverfis og samgöngunefnd sýni frumkvæði í því að kalla eftir ábendingum frá bæjarbúum og notendum Strætó bs. um það hvað má betur fara í leiðakerfi Strætó innan bæjarmarka Kópavogs.<SPAN style="mso-spacerun: yes"> </SPAN>Á það skal bent að fyrir rúmu ári síðan var stofnaður starfshópur sem átti að fara yfir leiðarkerfi Strætó og annað er tengist aðkomu Kópavogs að rekstrinum í því skyni að bæta þjónustu við bæjarbúa. Sá starfshópur hef enn ekki fundað. Þar átti að kalla eftir ábendingum frá bæjarbúum og stofnunum bæjarins sem og frístundafélögum.<SPAN style="mso-spacerun: yes"> </SPAN>Við minnum á hlutverk umhverfis- og samgöngunefndar sem stefnumótandi nefnd í samgöngumálum Kópavogs.´</EM></SPAN><SPAN style="FONT-FAMILY: " Calibri?,?sans-serif?; FONT-SIZE: 11pt; mso-ascii-theme-font: mso-fareast-font-family: Calibri; mso-fareast-theme-font: mso-hansi-theme-font: minor-latin; mso-bidi-font-family: ?Times New Roman?; mso-bidi-theme-font: minor-bidi; mso-ansi-language: IS; mso-fareast-language: EN-US; mso-bidi-language: AR-SA?><EM>Hjálmar Hjálmarsson, Guðríður Arnardóttir, Arnþór Sigurðsson"</EM></SPAN>
02
Umhverfis- og samgöngunefnd - 31. fundur
Á fundi bæjarráðs dags. 14. febrúar 2013 var erindinu vísað til sviðsstjóra umhverfissviðs og umhverfis- og samgöngunefndar til úrvinnslu. Lagt fram minnisblað umhverfissviðs.
Umhverfis- og samgöngunefnd felur sviðsstjóra að svara erindinu.
03
Bæjarráð - 2673. fundur
Frá Strætó bs., dags. 4. febrúar, tilkynntar fyrirhugaðar breytingar á leiðakerfi og óskað eftir staðfestingu Kópavogsbæjar.
Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra umhverfissviðs og umhverfis- og samgöngunefndar til úrvinnslu.