Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Umhverfis- og samgöngunefnd - 31. fundur

í Fannborg 6, fundarherbergi 2. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Margrét Júlía Rafnsdóttir - aðalfulltrúi
  • Helgi Jóhannesson - aðalmaður
  • Steingrímur Hauksson
  • Kristján Matthíasson - aðalfulltrúi
  • Margrét Björnsdóttir - aðalfulltrúi
  • Tryggvi Magnús Þórðarson - áheyrnarfulltrúi
  • Eiríkur Ólafsson - varafulltrúi
  • Gylfi Sigurðsson - áheyrnarfulltrúi
  • Sólveig Helga Jóhannsdóttir - starfsmaður nefndar
  • Friðrik Baldursson

Ritari

  • Sólveig Helga Jóhannsdóttir

Dagskrá fundar

01

Samgönguáætlun 2011- 2022

Lagt fram kynningarrit um samgönguáætlun 2011-2022 frá Innanríkisráðuneytinu.

Lagt fram og kynnt.

02

Áramótabrennur, skýrsla um brennuhald

Lögð fram til kynningar úttekt heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis á áramóta- og þrettándabrennu, áramótin 2012 til 2013.

Lagt fram og kynnt, frágangur og viðskilnaður brennuhalds var fullnægjandi í Kópavogi.

03

Hávaðakort og kort yfir stóra vegi.

Sviðsstjóri gerir aðgerðaáætluninni nánari skil.

Sviðsstjóri kynnti framlagt erindi. Frestað.

04

Hreinsunarátak 2013 í samvinnu við bæjarbúa.

Hreinsunarátak hjá íbúum. Minnisblað umhverfisfulltrúa, dags. 22.02.2013, lagt fram.

Umhverfisfulltrúi kynnti. Umhverfis- og samgöngunefnd leggur áherslu á að vorhreinsunin sé vel kynnt á vef bæjarins.

05

Hálsatorg - Reiðhjólastæði.

Lagðar eru fram nýjar tillögur umhverfisfulltrúa, dags. 25.02.2013, um útfærslu á hjólastæðum á Hálsatorgi.

Umhverfisfulltrúi kynnti tillögurnar. Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir að koma fyrir hjólagrindabogum að norðanverðu við Íslandsbanka, við Hálsatorg.

06

Náttúrustofur í Kópavogi

Lögð er fram greinargerð, dagsett í febrúar 2013, um Náttúrustofur í Kópavogi, endurskoðun og kynning á nýjum svæðum. Lagt er fram minnisblað umhverfisfulltrúa, dags. 22.02.2013.

Umhverfisfulltrúi kynnti nýja greinargerð um útikennslusvæði í Kópavogi. Umhverfissviði er falið að vinna áfram að undirbúningi svæðanna.

07

Álfkonuhvarf - hraðahindrun/gangbraut

Lagt fram erindi frá íbúa í Álfkonuhvarfi, dags. 10.10.2012. Þar er óskað eftir hraðahindrun þar sem kantsteinn er tekinn niður við göngustíg. Einnig er lagt fram minnisblað umhverfissviðs, dags. 26.02.2013.

Umhverfis- og samgöngunefnd vekur athygli á því að gatan er 30 km gata og ekki er talin þörf á annnarri hraðahindrun í götunni og felur umhverfissviði að svara erindinu.

08

Samningar við Strætó um fyrirtækjakort. Tillaga frá Ólafi Þór Gunnarssyni, Hafsteini Karlssyni og Hjálmari Hjálmarssyni

Lögð er fram tillaga umhverfisfulltrúa um að gera ferðavenjukönnun meðal starfsmanna í ljósi þess að fáir eru að nýta sér fyrirtækjakort Strætó bs. Minnisblað umhverfisfulltrúa, dags. 22.02.2013, er einnig lagt fram.

Umhverfisfulltrúi kynnti framlagt erindi. Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir hjálagða tillögu umhverfisfulltrúa. Umhverfissviði er falið að skoða nánar greiðslumöguleika á strætókortum fyrir starfsmenn Kópavogsbæjar.

09

Strætó, vinna við leiðakerfisbreytingar 2014. Óskað eftir tillögum um úrbætur eða breytingar

Á fundi bæjarráðs dags. 14. febrúar 2013 var erindinu vísað til sviðsstjóra umhverfissviðs og umhverfis- og samgöngunefndar til úrvinnslu. Lagt fram minnisblað umhverfissviðs.

Umhverfis- og samgöngunefnd felur sviðsstjóra að svara erindinu.

10

Söfnunargámar skilagjaldskyldra drykkjarumbúða.

Á fundi framkvæmdaráðs 27. febrúar 2013 var eftirfarandi erindi vísað til umhverfis- og samgöngunefndar. $line$Borist hefur erindi frá Bandalagi íslenskra Skáta dags. 22.02.2013 þar sem óskað er eftir samstarfi við Kópavogsbæ um að koma upp söfnunargámum á öllum grenndarstöðvum í Kópavogi. Lagt er fram minnisblað sviðsstjóra umhverfissviðs.

Sviðsstjóri kynnti erindið. Umhverfis- og samgöngunefnd felur umhverfissviði að svara erindinu og vinna að heildstæðri áætlun fyrir grenndarstöðvar.

11

Drög að reglugerð um náttúruvernd - óskað eftir umsögn umhverfisráðs

Lagt er fram bréf frá Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, dags. 22. febrúar 2013. Þar er óskað eftir umsögn umhverfis- og samgöngunefndar um drög að reglugerð, um eftirlit Umhverfisstofnunar með náttúru landsins. Einnig er lögð fram umsögn, dags. 27.02.2013, frá umhverfisfulltrúa.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir framlagða umsögn.

12

Göngu- og hlaupaleiðir frá Sundlaugum Kópavogs.

Lögð fram tillaga að nýju korti með hlaupa- og gönguleiðum frá sundlaugum Kópavogs. Lagt fram minnisblað frá umhverfisfulltrúa, dags. 18.02.2013.

Umhverfisfulltrúi kynnti. Samþykkt.

13

Dalvegur - hringtorg, breytt deiliskipulag

Lögð fram tillaga að útfærslu deiliskipulags á Dalvegi. Skipulagsstjóri gerir grein fyrir tillögunni.

Umhverfis- og samgöngunefnd gerir ekki athugasemdir við að tillagan verði kynnt í samræmi við skipulagslög. Fulltrúi Samfylkingarinnar tekur ekki undir þessa tillögu og situr hjá.

14

Bláfáninn - Fossvogshöfn - Skilti

Umhverfisfulltrúi gerir grein fyrir stöðu málsins.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir staðsetningu fræðsluskiltis fyrir sitt leiti og vísar til hafnarstjórnar til kynningar.

15

Verkefni 2013 á útivistarsvæðum.

Lögð eru fram fyrirhugðu verkefni á útivistarsvæðum fyrir árið 2013, dags. 25.02.2013.

Garðyrkjustjóri kynnti framlagt erindi. Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir tillögur.

16

Hálsatorg og nágrenni

Lögð er fram tillaga að lagfæringum við Hálsatorg, dags. 26.02.2013.

Garðyrkjustjóri kynnti tillögu. Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir framlagða tillögu.

17

Garðaganga um trjásafnið í Meltungu

Garðyrkjustjóri kynnir eitt stærsta trjásafn hérlendis í Meltungu, í austari hluta Fossvogs.

Kynnt.